Ferill 480. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 815 — 480. mál.
Frumvarp til laga
um breyting á lögum nr. 96/1995, um gjald af áfengi.
(Lagt fyrir Alþingi á 122. löggjafarþingi 1997–98.)
1. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. skulu vörur sem innihalda meira en 2,25% af vínanda, en eru óhæfar til neyslu og ekki er hægt að gera neysluhæfar, undanþegnar áfengisgjaldi. Ráðherra getur með reglugerð ákveðið nánar hvaða vörur falla hér undir.
2. gr.
Áfengisgjald skal vera sem hér segir á hvern sentilítra af vínanda í hverjum lítra hins áfenga drykkjar samkvæmt flokkun hans í tollskrá:
1. Af öli sem flokkast í vörulið 2203, svo og af vörum sem innihalda blöndur af öli og óáfengum drykk og flokkast í vörulið 2206: 58,70 kr. á hvern sentilítra umfram 2,25 sentilítra.
2. Af víni og öðrum gerjuðum drykkjarvörum sem flokkast undir vöruliði 2204, 2205 og 2206 og eru að hámarki 15% að styrkleika, enda innihaldi varan eingöngu vínanda sem myndast hefur við gerjun, án hvers kyns eimingar: 52,80 kr. á hvern sentilítra umfram 2,25 sentilítra.
3. Af öðru áfengi: 57,50 kr.
Gjald skv. 1. mgr. skal reiknast hlutfallslega á brot af sentilítra af vínanda og brot af lítra hins áfenga drykkjar.
Ef umbúðir vöru greina ekki magn eða styrkleika áfengis sem aðilar sem tilgreindir eru í 2. mgr. 2. gr. flytja til landsins eða fá sent erlendis frá er tollyfirvöldum heimilt að meta magn eða styrkleika áfengis og ákvarða gjald samkvæmt því.
3. gr.
4. gr.
a. Í stað orðanna „skattstjóra þar sem þeir eru heimilisfastir“ í 1. mgr. kemur: ríkisskattstjóra.
b. Í stað orðanna „Skattstjórar skulu hver í sínu umdæmi“ í 3. mgr. kemur: Ríkisskattstjóri skal.
5. gr.
a. 1. málsl. 1. mgr. orðast svo: Áfengisgjald skal fellt niður eða endurgreitt í eftirtöldum tilvikum.
b. 5. tölul. 1. mgr. orðast svo: Af áfengi sem ferðamenn og farmenn hafa með sér inn í landið til eigin nota, að tilteknu hámarki sem fjármálaráðherra kveður á um í reglugerð.
c. Við 1. mgr. bætast tveir nýir töluliðir er orðast svo:
6. Af áfengi, sem talið er upp í lyfjaskrá, til lækna og lyfsala til sölu sem lyf.
7. Af áfengi til iðnþarfa samkvæmt nánari skilgreiningu fjármálaráðherra.
d. Orðin „svo og lækna og lyfsala vegna áfengis sem talið er upp í lyfjaskrá og selt er sem lyf, sbr. 7. tölul. 1. mgr. 11. gr. áfengislaga, og áfengis sem selt er skv. 8. tölul. 1. mgr. 11. gr. sömu laga“ í 2. mgr. falla brott.
e. Við greinina bætist ný málsgrein er orðast svo:
Fjármálaráðherra setur með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd þessarar greinar, m.a. um skilyrði niðurfellingar eða endurgreiðslu.
6. gr.
Af innheimtu áfengisgjaldi þeirra sem eru gjaldskyldir skv. 1. mgr. 2. gr. skal 1% renna í Forvarnasjóð. Tilgangur sjóðsins skal vera að stuðla að forvörnum gegn áfengis- og fíkni
Af innheimtu áfengisgjaldi þeirra sem eru gjaldskyldir skv. 1. mgr. 2. gr. skulu 0,3% renna til áfengiseftirlits lögregluyfirvalda.
7. gr.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
I. Almennt.
Samhliða frumvarpinu eru lögð fram önnur frumvörp þar sem kveðið er á um ýmsar breytingar í áfengismálum hér á landi, í samræmi við tillögur nefndarinnar.
Helstu breytingar sem frumvörp þessi miða að eru sem hér segir: Í fyrsta lagi að rekstur áfengisútsala verði háður eftirliti og sambærilegum skilyrðum og rekstur vínveitingastaða. Í öðru lagi að leyfisveitingar vegna innflutnings og heildsölu áfengis, svo og yfirumsjón eftirlits með allri verslun með áfengi, verði á vegum lögregluyfirvalda. Jafnframt verði leyfi til rekstrar vínveitingahúsa og áfengisútsala háð samþykki viðkomandi sveitarstjórnar. Í þriðja lagi að áfengi verði flokkað í þrjá flokka, þ.e. öl, létt vín og annað áfengi, og að tekið verði upp mishátt áfengisgjald eftir flokkum.
II. Helstu atriði frumvarpsins.
Ekki er lögð til breyting á gjaldi af öli. Hins vegar er lagt til að áfengisgjald af víni lækki um 10% frá því sem nú er. Gera má ráð fyrir að útsöluverð á algengum tegundum af rauðvíni lækki um 5–6% við þá breytingu.
Af öðru áfengi en öli og víni lækki gjald á hvern sentilítra vínanda í hverjum lítra áfengis lítillega, en leggist á móti á allt vínandamagn. Sú breyting leiðir til nokkurrar hækkunar á áfengi. Hækkunin er mest á veiku áfengi, til að mynda áfengisblöndum og áfengum gosdrykkjum, en með auknum styrkleika áfengis dregur úr áhrifum breytingarinnar. Þessi breyting þýðir um 60–90 kr. hækkun áfengisgjalds á hverja flösku af flestum tegundum áfengis. Gera má ráð fyrir að útsöluverð á algengum tegundum af vodka hækki um 3–4%.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að 0,3% af gjaldi af áfengi sem flutt er inn til sölu eða vinnslu renni til áfengiseftirlits lögregluyfirvalda.
Í gildistökuákvæði frumvarpsins er kveðið á um að lög nr. 58/1970, um skemmtanaskatt, falli brott. Skemmtanaskattur er lagður á ýmiss konar skemmtanastarfsemi sem aðgangur er seldur að og veitinga- og samkomuhús þar sem vínveitingar eru hafðar um hönd. Lögin þykja um margt orðin úrelt sökum breytinga sem orðið hafa á skemmtanastarfsemi undanfarin ár.
III. Áhrif á tekjur ríkissjóðs.
Eins og áður segir er gert ráð fyrir að af tekjum af áfengisgjaldi renni 0,3% til áfengis- og tóbakseftirlits, en það svarar til um 15 millj. kr.
Eins og áður segir er gert ráð fyrir að lög nr. 58/1970, um skemmtanaskatt, falli brott við gildistöku frumvarpsins. Árlegar tekjur af skemmtanaskatti hafa numið um 70 millj. kr. Auknum tekjum af áfengisgjaldi er ætlað að vega að hluta til upp tekjutap ríkissjóðs við það að skemmtanaskattur leggst af.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Um 2. gr.
Öl flokkast undir vörulið 2203 í tollskrá. Þá er gert ráð fyrir að vörur sem innihalda blöndur af öli og óáfengum drykkjum flokkist með öli hvað áfengisgjald varðar. Gert er ráð fyrir að gjald af öli verði óbreytt frá því sem nú er.
Við afmörkun hugtakanna vín og aðrar gerjaðar drykkjarvörur er við það miðað í fyrsta lagi að vara flokkist undir vöruliði 2204, 2205 eða 2206 í tollskrá, í öðru lagi að áfengis
Gert er ráð fyrir að annað áfengi en öl og vín og aðrar gerjaðar drykkjarvörur flokkist sérstaklega til gjaldskyldu. Hér undir fellur því allt vín sem er sterkara en 15%. Hér undir fellur einnig allt áfengi sem inniheldur einhvern vínanda sem myndast hefur við eimingu, þar með talin styrkt vín, líkjörar og hvers kyns áfengisblöndur og áfengir gosdrykkir sem innihalda vínanda sem myndast hefur við eimingu. Lagt er til að gjaldtöku af vörum sem flokkast hér undir verði breytt nokkuð. Þannig muni gjaldið reiknast af öllum vínanda í drykknum. Gjaldið lækkar jafnframt úr 58,70 kr. í 57,50 kr. Þetta leiðir til nokkurrar hækk
Eins og fram kemur í almennum athugasemdum má gera ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs aukist í heildina um 30–50 millj. kr. við breytingar á áfengisgjaldi og er þeirri tekjuaukningu ætlað að draga að hluta til úr tekjutapi ríkissjóðs við niðurlagningu skemmtanaskatts.
Í 2. mgr. er kveðið á um að gjald af áfengi skuli reiknast hlutfallslega á brot af sentilítra af vínanda og brot af lítra hins áfenga drykkjar. Ekki er um að ræða neina breytingu frá núverandi framkvæmd.
Um 3. gr.
Ekki verður talið að þessi breyting leiði til nokkurs óhagræðis við innflutning þeirra sem flytja inn áfengi til eigin nota. Kemur þar bæði til að auðvelt er að reikna gjaldið út og hitt að við innflutninginn leggst virðisaukaskattur ætíð ofan á tollverð gjaldskyldrar vöru að viðbættu áfengisgjaldi, og þarf því hvort eð er að reikna þann skatt út og leggja á hverju sinni. Er breyting þessi því lögð til. Í 3. mgr. er kveðið á um að ef umbúðir vöru greini í slíkum tilvikum ekki magn eða styrkleika áfengis sé tollyfirvöldum heimilt að áætla magn eða styrkleika þess og ákvarða gjald samkvæmt því. Mat á styrkleika mundi einkum byggjast á því um hvers konar vöru er að ræða og hver sé algengur styrkleiki slíkrar vöru.
Um 4. gr.
Um 5. gr.
Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir að kveðið verðiótvírætt á um það í lögunum að gjaldið skuli lækkað eða fellt niður ef tiltekin skilyrði eða aðstæður eru fyrir hendi í stað þess að kveða á um heimild fjármálaráðherra til að lækka eða fella niður gjaldið. Hins vegar er gert ráð fyrir að fjármálaráðherra setji í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd þessarar greinar, m.a. um skilyrði niðurfellingar eða endurgreiðslu.
Í öðru lagi er lagt til að við lögin bætist ný ákvæði um niðurfellingu gjalda í tilteknum tilvikum. Þannig er lagt til að áfengisgjald skuli fellt niður af áfengi sem talið er upp í lyfjaskrá til lækna og lyfsala til sölu sem lyf. Í gildandi lögum er kveðið á um að fjármála
Um 6. gr.
Breytingar frá núverandi grein felast annars vegar í því að gert er ráð fyrir að breytt verði tilvísun í lagaákvæði, en það er gert vegna breytingar sem gert er ráð fyrir að verði á 3. gr. laganna, sbr. 2. gr. frumvarpsins. Ekki er um efnisbreytingu að ræða.Hins vegar er lagt til að í stað þriggja síðustu málsliða greinarinnar komi nýr málsliður um að Áfengis- og vímu
Þá er lagt til að við greinina bætist ný málsgrein um að 0,3% af innheimtu gjaldi af áfengi sem flutt er inn til sölu eða vinnslu, eða sem svarar um 15 millj. kr., verði ráðstafað til lög
Um 7. gr.
Innheimtur skemmtanaskattur hefur á undanförnum árum verið um 70 millj. kr. á ári. Sam
Frumvarpið gerir ráð fyrir að tekjuaukning vegna hækkunar áfengisgjalds komi að hluta til í stað þeirra tekna sem ríkissjóður hefur haft af skemmtanaskattinum. Miðað er við að þær stofnanir sem notið hafa tekna af skemmtanaskatti samkvæmt fjárlögum fái áfram framlög úr ríkissjóði.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um breyting á
lögum nr. 96/1995, um gjald af áfengi.
Ákvæði frumvarpsins beinast einkum að þáttum sem varða tekjuhlið ríkissjóðs og er ekki ástæða til að ætla að þau hafi umtalsverð útgjaldaáhrif.