Ferill 482. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 818 – 482. mál.
Fyrirspurn
til félagsmálaráðherra um sjúkrasjóði verkalýðsfélaga.
Frá Arnbjörgu Sveinsdóttur.
1. Hvaða stéttarfélög hafa samið um sjúkrasjóði fyrir félagsmenn sína:
a. stéttarfélög á almennum vinnumarkaði,
b. félög opinberra starfsmanna?
2. Hvað verja stéttarfélög stórum hluta sjúkrasjóða sinna til að greiða niður ferðakostnað sjúklinga innan lands, skipt eftir kjördæmum?
3. Eru réttindi launþega í sjúkrasjóðum stéttarfélaga mismunandi eftir kjördæmum?