Ferill 194. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 868 – 194. mál.
Frumvarp til laga
um hollustuhætti og mengunarvarnir.
(Eftir 2. umr., 3. mars.)
I. KAFLI
Markmið, skilgreiningar og framkvæmd.
1. gr.
2. gr.
3. gr.
Hollustuvernd tekur til eftirlits með matvælum, eiturefnum og hættulegum efnum þeim tengdum, húsnæði, öðrum vistarverum og umhverfi þeirra. Einnig tekur það til sóttvarna og fræðslu í þessum efnum, m.a. með tilliti til manneldismála.
Mengunarvarnaeftirlit tekur til eftirlits með þeim þáttum sem eiga að fyrirbyggja eða draga úr mengun lofts, láðs eða lagar, eftirlits með eiturefnum og hættulegum efnum og fræðslu um þessi mál. Vöktun umhverfisins telst til mengunarvarnaeftirlits.
Heilbrigðiseftirlit tekur til hollustuhátta og mengunarvarna.
Með mengun er átt við það þegar örverur, efni og efnasambönd og eðlisfræðilegir þættir valda óæskilegum og skaðlegum áhrifum á heilsufar almennings, röskun lífríkis eða óhreink
Með bestu fáanlegri tækni er átt við framleiðsluaðferð og tækjakost sem beitt er til að lágmarka mengun og myndun úrgangs. Tækni nær til framleiðsluaðferðar, tækjakosts, hönnunar mannvirkja, eftirlits og viðhalds búnaðarins, svo og starfrækslu hans. Með fáanlegri tækni er átt við aðgengilega framleiðsluaðferð og tækjakost (tækni) sem þróaður hefur verið til að beita í viðkomandi atvinnurekstri og skal tekið mið af tæknilegum og efnahagslegum aðstæðum. Með bestu er átt við virkustu aðferðina til að vernda alla þætti umhverfisins.
Eftirlit merkir athugun á vöru, þjónustu, ferli eða starfsemi til að ákvarða samræmi þeirra við tilteknar kröfur.
Faggilding merkir aðferð sem þar til bær aðili beitir til að veita formlega viðurkenningu á því að aðili sé hæfur til að vinna tiltekin verkefni. Um faggildingu fer samkvæmt lögum nr. 100/1992, um vog, mál og faggildingu.
Rannsóknir (prófanir) felast í greiningu sýna vegna eftirlits, eftirlitsverkefna, vöktunar og annarra þjónusturannsókna eða fyrirbyggjandi aðgerða á sviði hollustuhátta og mengunar
Vöktun merkir kerfisbundna og síendurtekna skráningu einstakra breytilegra þátta í umhverfinu.
4. gr.
1. starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem fellur undir þessa grein og er útgáfa þess í höndum heilbrigðisnefnda,
2. umgengni og þrifnað utan húss,
3. meindýr og eyðingu þeirra,
4. hreinsun hunda, m.a. vegna sullaveiki, katta og annarra gæludýra,
5. íbúðarhúsnæði, starfsmannabústaði og starfsmannabúðir,
6. gistihús, matsöluhús og aðra veitingastaði,
7. skóla og aðra kennslustaði,
8. rakarastofur, hárgreiðslustofur, nuddstofur og hvers konar aðrar snyrtistofur,
9. leikskóla og leikvelli,
10. heilbrigðisstofnanir, dvalarheimili og meðferðar- og vistunarstofnanir og stofnanir fyrir fatlaða,
11. íþróttastöðvar, íþróttahús, sundstaði, baðhús, gufubaðstofur, sólbaðstofur og almenna baðstaði, baðvatn og þess háttar,
12. fangelsi og aðrar vistarverur handtekinna manna,
13. samkomuhús, þar á meðal kirkjur,
14. farþegaskip, almenningsbifreiðar, farþegaflugvélar og þess háttar,
15. þátttöku heilbrigðisnefnda í sóttvörnum og framkvæmd þeirra,
16. töku sýna og úrvinnslu þeirra,
17. viðmiðanir fyrir eðlis-, efna- og örverufræðilega þætti,
18. önnur sambærileg atriði.
5. gr.
1. starfsleyfi fyrir allan atvinnurekstur sem haft getur í för með sér mengun, þar á meðal ákvæði um staðsetningu, viðmiðunarmörk, mengunarvarnir í einstökum atvinnugreinum, vöktun, eftirlitsmælingar og rannsóknir, svo og rekstur og viðhald mengunarvarnabún
2. endurskoðun starfsleyfa vegna verulegra breytinga á atvinnurekstri eða vegna tækniþróunar,
3. áhættumat fyrir atvinnurekstur þar sem hætta er á stórslysum vegna aðferða og efna sem notuð eru við starfsemina og endurskoðun áhættumats, svo og upplýsingar sem ábyrgð
4. eftirlit, skráningu og tilkynningarskyldu,
5. umhverfisstjórn, vöktun og eftirlitskerfi fyrirtækja, svo og viðurkenningu, úttekt og eftirlit með slíkum kerfum,
6. umhverfismerki á vörur, m.a. um veitingu þeirra og gjaldtöku,
7. eftirlit með flutningi úrgangs milli landa og tilkynningarskyldu þeirra sem meðhöndla og flytja slíkan úrgang,
8. úttekt á hugsanlegri mengunarhættu,
9. meðferð vatns og sjávar í atvinnurekstri þar sem m.a. skulu koma fram viðmiðunarmörk vegna losunar tiltekinna efna,
10. úrgangsefni, svo sem eyðingu sorps og annars úrgangs,
11. fráveitur og skolp þar sem m.a. skulu koma fram reglur um hreinsun skolps og viðmiðunarmörk í fráveitum og viðtaka,
12. varnir gegn vatnsmengun þar sem m.a. skulu koma fram viðmiðunarmörk fyrir mengandi efni og/eða gæðamarkmið fyrir grunnvatn og yfirborðsvatn,
13. varnir gegn loftmengun þar sem m.a. skulu koma fram viðmiðunarmörk fyrir loftgæði, mengandi efni og losun þeirra út í andrúmsloftið,
14. varnir gegn jarðvegsmengun og viðmiðunarmörk fyrir jarðveg og mengandi efni,
15. hávaða og titring þar sem fram koma viðmiðunarmörk fyrir leyfilegan hávaða og titring með hliðsjón af umhverfi,
16. varmamengun þar sem fram skulu koma reglur um takmörkun hennar,
17. önnur sambærileg atriði.
6. gr.
Heilbrigðisnefndir gefa út starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem haft getur í för með sér mengun og ekki er talinn upp í fylgiskjali, sbr. 1. mgr., eftir því sem mælt er fyrir um í reglu
Hollustuvernd ríkisins skal vinna tillögur að starfsleyfi skv. 1. mgr. og auglýsa opin
Hollustuvernd ríkisins skal innan fjögurra vikna frá því að frestur til að gera athugasemdir við tillögur að starfsleyfi rann út taka ákvörðun um útgáfu starfsleyfis. Skal umsækjanda um starfsleyfi og þeim sem athugasemdir hafa gert tilkynnt um afgreiðsluna.
Auglýsa skal í B-deild Stjórnartíðinda útgáfu og gildistöku starfsleyfa sem Hollustuvernd ríkisins gefur út.
7. gr.
Ráðherra setur almenn ákvæði í reglugerð um valdsvið, skyldur og starfstilhögun heil
8. gr.
II. KAFLI
Stjórn, skipan og starfsmenn.
9. gr.
Landlæknir er ráðgjafi ráðherra um það er að lögum þessum lýtur og undir embætti hans fellur.
Við setningu reglugerða samkvæmt lögum þessum skal haft samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga um atriði er varða skyldur sveitarfélaga.
10. gr.
11. gr.
Eftirlitssvæði skv. 1. mgr. eru:
1. Reykjavíkursvæði.
Starfssvæði: Reykjavíkurborg.
2. Vesturlandssvæði.
Starfssvæði: Vesturlandskjördæmi.
3. Vestfjarðasvæði.
Starfssvæði: Vestfjarðakjördæmi.
4. Norðurlandssvæði vestra.
Starfssvæði: Norðurlandskjördæmi vestra.
5. Norðurlandssvæði eystra.
Starfssvæði: Norðurlandskjördæmi eystra.
6. Austurlandssvæði.
Starfssvæði: Austurlandskjördæmi.
7. Suðurlandssvæði.
Starfssvæði: Suðurlandskjördæmi.
8. Suðurnesjasvæði.
Starfssvæði: Reykjanesbær, Grindavíkurkaupstaður, Sandgerðisbær, Gerðahreppur og Vatnsleysustrandarhreppur.
9. Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæði.
Starfssvæði: Hafnarfjarðarkaupstaður, Bessastaðahreppur, Garðabær og Kópavogsbær.
10. Kjósarsvæði.
Starfssvæði: Seltjarnarneskaupstaður, Mosfellsbær og Kjósarhreppur.
Umhverfisráðherra getur í reglugerð, að höfðu samráði við hlutaðeigandi sveitarfélög og að fenginni umsögn Hollustuverndar ríkisins, kveðið á um sameiningu eftirlitssvæða.
Heimilt er heilbrigðisnefndum að gera samkomulag um annað fyrirkomulag heilbrigðis
12. gr.
Náist ekki samkomulag milli sveitarfélaga innan eftirlitssvæðis um hvaða sveitarfélag annist fjárreiður fyrir heilbrigðiseftirlitið skal umhverfisráðherra úrskurða hvert þeirra skuli annast fjárreiðurnar að fenginni umsögn hlutaðeigandi sveitarfélaga.
Heimilt er sveitarfélögum, að fenginni umsögn hlutaðeigandi heilbrigðisnefnda, að inn
13. gr.
14. gr.
Framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits eða heilbrigðisfulltrúi í umboði hans skal sitja fundi nefndarinnar með málfrelsi og tillögurétti. Hann getur krafist þess að fundir verði haldnir og að tekin verði þar fyrir tiltekin mál.
Fulltrúar Hollustuverndar ríkisins eiga rétt til setu á fundum heilbrigðisnefnda með til
Héraðslæknir eða sá heilsugæslulæknir sem hann tilnefnir skal vera ráðgjafi og heil
15. gr.
Umhverfisráðherra setur reglugerð um menntun, réttindi og skyldur heilbrigðisfulltrúa.
16. gr.
Upplýsingar og tilkynningar heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga til fjölmiðla skulu vera efnis
17. gr.
Í ráðinu eiga sæti níu menn. Umhverfisráðherra tilnefnir einn og er hann formaður, for
Ráðherra setur ráðinu starfsreglur að fengnum tillögum þess.
III. KAFLI
Hollustuvernd ríkisins.
18. gr.
Stofnunin hefur yfirumsjón með heilbrigðiseftirliti og skal sjá um vöktun og að rannsóknir þessu tengdar séu framkvæmdar. Í yfirumsjón felst samræming heilbrigðiseftirlits þannig að framkvæmdin sé með sama hætti á landinu öllu.
Stofnunin fer því aðeins með beint eftirlit að lög mæli svo fyrir eða ráðherra ákveði það með reglugerð að höfðu samráði við stofnunina þegar um landið allt er að ræða og við heil
Stofnunin skal sjá um gerð fræðsluefnis og upplýsa og fræða þá er starfa að heilbrigðis
19. gr.
20. gr.
Stofnuninni skal skipt í svið og skal forstöðumaður starfa yfir hverju þeirra. Forstöðu
Forstjóri ræður annað starfsfólk stofnunarinnar.
Ráðherra setur í reglugerð, að fengnum tillögum forstjóra, nánari ákvæði um skipulag stofnunarinnar.
21. gr.
IV. KAFLI
Faggilding og innra eftirlit.
22. gr.
23. gr.
24. gr.
V. KAFLI
Samþykktir sveitarfélaganna.
25. gr.
1. bann eða takmörkun gæludýrahalds og húsdýrahalds,
2. meðferð úrgangs og skolps,
3. gjaldtöku vegna leyfa, leigu eða veittrar þjónustu,
4. ábyrgðartryggingar.
Upphæð gjalda skal ákveðin í sérstakri gjaldskrá sem ráðherra staðfestir. Ráðherra getur, að fengnum tillögum Sambands íslenskra sveitarfélaga og umsögn Hollustuverndar ríkisins, sett hámarksgjaldskrá fyrir eftirlit og þjónustu sveitarfélaga sem sveitarfélög geta nýtt sér kjósi þau það fremur en að setja sér sérstaka gjaldskrá. Gjöld mega aldrei vera hærri en sem nemur rökstuddum kostnaði við veitta þjónustu eða framkvæmd eftirlits með einstökum þátt
Heilbrigðisnefnd semur drög að samþykktum og breytingum á þeim og leggur fyrir við
Synji ráðherra staðfestingar endursendir hann samþykktina til sveitarstjórnar með leið
VI. KAFLI
Valdsvið og þvingunarúrræði.
26. gr.
1. veitt áminningu,
2. veitt áminningu og tilhlýðilegan frest til úrbóta,
3. stöðvað eða takmarkað viðkomandi starfsemi eða notkun, þar með lagt hald á vörur og fyrirskipað förgun þeirra.
Stöðvun starfsemi og förgun á vörum skal því aðeins beitt að um alvarlegri tilvik eða ítrekað brot sé að ræða eða ef aðilar sinna ekki úrbótum innan tiltekins frests og er heimilt að leita aðstoðar lögreglu ef með þarf. Sé um slík brot að ræða getur heilbrigðisnefnd aftur
Þar sem innsiglun er beitt við stöðvun skal nota sérstök innsigli er auðkenni viðkomandi eftirlitssvæði heilbrigðisfulltrúa.
27. gr.
Þegar verk það sem heilbrigðisnefnd lætur vinna er komið til vegna vanhirðu og óþrifa eða heilsuspillandi aðstæðna í húsi, á lóð eða í farartæki er kostnaður tryggður með lögveðs
28. gr.
Fulltrúum Hollustuverndar ríkisins er heimilt í samráði við heilbrigðisnefndir að taka sýni þar sem starfsemi fer fram og lög þessi, reglugerðir settar samkvæmt þeim og samþykktir sveitarfélaga ná til. Í þeim tilvikum þar sem Hollustuvernd ríkisins fer með eftirlit fer um valdsvið og þvingunarúrræði í samræmi við þennan kafla laganna.
Eftirlitsskyldum aðilum er skylt að veita allar upplýsingar sem nauðsynlegar eru vegna eftirlits með framkvæmd laganna og ber þeim endurgjaldslaust að afhenda sýni sem talin eru nauðsynleg vegna eftirlits.
29. gr.
Hollustuvernd ríkisins skal sjá um samhæfingu aðgerða þegar upp koma bráð eða alvarleg mengunarslys, matarsýkingar eða önnur vá svipaðs eðlis. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga skal þegar í stað tilkynna Hollustuvernd ríkisins um slík mál og skal stofnunin að höfðu sam
30. gr.
VII. KAFLI
Málsmeðferð og úrskurðir.
31. gr.
Í úrskurðarnefnd skv. 1. mgr. eiga sæti þrír lögfræðingar sem uppfylla skulu starfsgengis
Nefndin skal kveða upp úrskurð svo fljótt sem auðið er og eigi síðar en fjórum vikum eftir að henni berst mál í hendur. Sé mál viðamikið og fyrirsjáanlegt að afgreiðsla taki lengri tíma skal nefndin tilkynna hlutaðeigandi það og tiltaka afgreiðslufrest sem aldrei skal þó vera lengri en átta vikur.
Úrskurðir nefndarinnar eru fullnaðarúrskurðir innan stjórnsýslunnar.
32. gr.
Ákvarðanir Hollustuverndar ríkisins og heilbrigðisnefnda um útgáfu starfsleyfa skv. 6. gr. má kæra til fullnaðarúrskurðar ráðherra innan tveggja vikna frá ákvörðun Hollustuvernd
Ráðherra skal kveða upp úrskurð svo fljótt sem auðið er og eigi síðar en fjórum vikum eftir að honum berst mál í hendur. Sé mál viðamikið og fyrirsjáanlegt að afgreiðsla taki lengri tíma skal tilkynna hlutaðeigandi það og tiltaka afgreiðslufrest sem aldrei skal þó vera lengri en átta vikur.
VIII. KAFLI
Viðurlög.
33. gr.
34. gr.
Sektir má ákvarða lögaðila þó að sök verði ekki sönnuð á fyrirsvarsmenn eða starfsmenn hans eða aðra þá einstaklinga sem í þágu hans starfa, enda hafi brotið orðið eða getað orðið til hagsbóta fyrir lögaðilann. Þó skal lögaðili ekki sæta refsingu ef um óhapp er að ræða. Einnig má, með sama skilorði, gera lögaðila sekt ef fyrirsvarsmenn eða starfsmenn hans eða aðrir einstaklingar sem í þágu hans starfa gerast sekir um brot.Mál út af brotum gegn lögum þessum, reglugerðum eða samþykktum sveitarfélaga skulu sæta meðferð opinberra mála.
IX. KAFLI
Gildistaka.
35. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
Þrátt fyrir ákvæði 35. gr. skal sú skipan sem kveðið er á um í 11. gr. ekki taka gildi fyrr en 1. ágúst 1998. Þar til skulu núverandi heilbrigðisnefndir starfa og fer um störf þeirra sam
II.
Þær reglugerðir, sem í gildi eru samkvæmt lögum nr. 81/1988, með áorðnum breytingum, skulu halda gildi sínu þar til þeim hefur verið breytt, að svo miklu leyti sem þær fara ekki í bága við ákvæði þessara laga.
III.
Þrátt fyrir breytingar á eftirlitsstarfsemi Hollustuverndar ríkisins varðandi innflutnings
IV.
Þrátt fyrir ákvæði laganna, sbr. m.a. 31. gr., skulu stjórn Hollustuverndar ríkisins og úr
Fylgiskjal.
Atvinnurekstur sem Hollustuvernd ríkisins veitir starfsleyfi fyrir.
1. Fiskimjölsverksmiðjur.
2. Álframleiðsla.
3. Áburðarframleiðsla.
4. Sements- og kalkframleiðsla.
5. Kísiljárnsframleiðsla.
6. Kísilmálmsframleiðsla.
7. Kísil- og kísilgúrframleiðsla.
8. Járn- og stálframleiðsla.
9. Glerullar- og steinullarframleiðsla.
10. Sútunarverksmiðjur.
11. Eldi sjávar- og ferskvatnslífvera þar sem ársframleiðsla er meiri en 200 tonn og fráveita er til sjávar eða þar sem ársframleiðsla er meiri en 20 tonn og fráveita í ferskvatn.
12. Meðferð úrgangs – móttökustöðvar sveitarfélaga: Flokkunarmiðstöðvar, urðunarstaðir og sorpbrennslustöðvar.
13. Meðhöndlun og förgun spilliefna.
14. Lím- og málningarvöruframleiðsla.
15. Olíumalar- og malbikunarstöðvar með fasta staðsetningu.
16. Kítín- og kítosanframleiðsla.
17. Framleiðsla á magnesíum og efnasamböndum sem innihalda magnesíum.
18. Framleiðsla á peroxíðum.
19. Sinkframleiðsla.
20. Olíuhreinsistöðvar.
21. Pappírs- og trjákvoðuframleiðsla.
22. Framleiðsla á slípiefnum, t.d. kísilkarbíði.
23. Vinnsla alifatískra alkóhóla til iðnaðarnota.
24. Annar sambærilegur rekstur.