Ferill 514. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 885 – 514. mál.



Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um ábyrgð byggingameistara.

Frá Guðmundi Hallvarðssyni.



     1.      Hver er ábyrgð byggingameistara íbúðarhúsnæðis gagnvart kaupendum á hvers konar smíða- eða steypugöllum sem fram koma í nýbyggingum?
     2.      Ef um ábyrgð er að ræða, hversu lengi varir hún?