Ferill 534. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 913 – 534. mál.



Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 117/1993, með síðari breytingum.

Flm.: Ásta B. Þorsteinsdóttir, Bryndís Hlöðversdóttir, Lúðvík Bergvinsson.



1. gr.

    Við 2. mgr. 43. gr. laganna bætist nýr liður sem verður e-liður og orðast svo: Greiðslur í fæðingarorlofi og umönnunarbætur.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Með frumvarpi þessu verður kveðið skýrt á um að heimilt verði að greiða umönnunar bætur samhliða greiðslum í fæðingarorlofi.
    Nokkur munur virðist vera á því hvernig fjármálaráðuneyti og heilbrigðisráðuneyti túlka greiðslur til mæðra sem taka fæðingarorlof.
    Samkvæmt 4. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 118/1993, er Tryggingastofnun ríkisins
heimilt að inna af hendi umönnunargreiðslur til framfærenda fatlaðra og langveikra barna, sem dveljast í heimahúsi eða á sjúkrahúsi, allt að 63.537 kr. á mánuði og/eða taka aukinn þátt í greiðslu sjúkrakostnaðar ef andleg eða líkamleg hömlun barns hefur í för með sér til finnanleg útgjöld og sérstaka umönnun eða gæslu.
    Í 16. gr. laga um almannatryggingar, nr. 117/1993, segir: „Foreldrar, sem leggja niður launuð störf í fæðingarorlofi, eiga rétt á fæðingardagpeningum samkvæmt grein þessari, enda hafi þeir að jafnaði átt lögheimili hér á landi síðustu 12 mánuði fyrir fæðinguna og eigi lög heimili hér á landi við fæðingu barnsins.“ Í c-lið 6. gr. segir: „Fæðingardagpeningar skulu greiddir í sex mánuði.“ Í n-lið sömu greinar segir: „Fæðingardagpeningar greiðast úr líf eyrisdeild Tryggingastofnunar ríkisins gegn framvísun vottorðs læknis og sönnunar um launagreiðslur og atvinnuþátttöku viðkomandi samkvæmt nánari reglum sem ráðherra setur í reglugerð.“
    Í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn um réttindi og greiðslur í fæðingarorlofi á 122. löggjafarþingi 1997–98 (þskj. 311) segir m.a. um konur í þjónustu ríkisins: „Konur í þjónustu ríkisins sem áður féllu undir lög nr. 38/1954, eldri starfsmannalög, njóta launa í barnsburðarleyfi í samræmi við reglugerð nr. 410/1989, um barnsburðarleyfi starfsmanna ríkisins, sbr. ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
    Við fæðingu barns eru greidd laun í sex mánuði …
    Konan heldur þeim dagvinnulaunum sem stöðu hennar fylgja á þeim tíma sem hún fer í barnsburðarleyfi …
    Þegar kona nýtur launagreiðslna í barnsburðarleyfi á grundvelli reglugerðar nr. 410/1989 er litið svo á að hún sé áfram í starfi og ávinnur hún sér þar af leiðandi rétt til orlofs og ann arra starfsaldurstengdra réttinda á meðan barnsburðarleyfið varir, í allt að 12 mánuði. Greitt er í lífeyrissjóð af launum í barnsburðarleyfi.“
    Um konur sem eru opinberir starfsmenn sveitarfélaganna segir m.a.: „Opinberir starfs menn sveitarfélaganna njóta að öllu jöfnu réttinda í samræmi við reglugerð nr. 410/1989, um barnsburðarleyfi starfsmanna ríkisins. Byggist það á ákvæði í kjarasamningum …“
    Um aðra starfsmenn sveitarfélaganna segir: „Þó virðist það almennt vera svo að starfs menn í fæðingarorlofi ávinni sér starfsaldur í orlofinu …“
    Þá segir í svari fjármálaráðherra um starfsmenn bankanna: „Samkvæmt kjarasamningi á kona rétt á að vera fjarverandi í sex mánuði vegna barnsburðar og töku kjörbarns. Fastráðin kona nýtur fullra launa fyrstu þrjá mánuðina.“
    „Meðan á fæðingarorlofi stendur, hvort heldur fyrstu þrjá mánuðina meðan kona er á launum í bankanum eða síðari þrjá mánuðina þegar hún fær greiðslu frá Tryggingastofnun ríkisins í stað launa frá bankanum, nýtur konan fullrar réttindaávinnslu til starfsaldurs sam kvæmt bókuninni í kjarasamningnum.“
    Af þessu má sjá að fjármálaráðuneyti túlkar greiðslur í fæðingarorlofi á mjög eindreginn hátt sem launagreiðslur og er litið svo á að konan sé áfram í starfi meðan á töku barnsburðar leyfis stendur. Greitt er í lífeyrissjóð af launum og konan ávinnur sér rétt til orlofs og annarra starfsaldurstengdra réttinda enda hafi konan farið úr launaðu starfi meðan á fæðingarorlofi stendur.
    Í niðurstöðum kærunefndar jafnréttismála hefur verið byggt á því að laun í fæðingarorlofi falli undir hugtakið „kjör“ í skilningi jafnréttislaganna.
    Í úrskurðum sínum hefur tryggingaráð hins vegar túlkað greiðslur til mæðra sem bætur og að samkvæmt 43. gr. almannatryggingalaga sé ekki heimilt að greiða samtímis tvenns konar bætur. Þannig hefur framkvæmd Tryggingastofnunar ríkisins verið á þann veg að mæð ur sem eignast alvarlega sjúk eða fötluð börn verði að velja um að taka annaðhvort fæðingar orlofsgreiðslur eða umönnunarbætur þó svo að umönnunarbætur séu auljóslega grundvallað ar á allt öðrum forsendum en greiðslur í fæðingarorlofi.
    Í reglugerð með heimild í lögum um almannatryggingar er gert ráð fyrir að umönnunar bætur taki við af fæðingarorlofsgreiðslum þótt heimilt sé að greiða bæturnar á fæðingar orlofstímabilinu. Þetta hefur ráðuneytið túlkað á þann veg að ef barn fæðist alvarlega fatlað eða er með lífshættulegan sjúkdóm getur móðir fengið greiddar umönnunarbætur frá þriggja mánaða aldri barns gegn því að hún afsali sér fæðingarorlofsgreiðslum. Með þessu er móður gert að afsala sér þriggja mánaða launum. Hafa ber í huga að launuð vinna móður á öðrum tíma skerðir ekki réttinn til umönnarbóta enda er verið að standa undir tilfinnanlegum út gjöldum og sérstakri gæslu eða umönnun með þessum greiðslum. Greiðslur í fæðingarorlofi eru skattskyldar en ekki umönnunarbætur.
    Með úrskurði tryggingaráðs er verið að leggja að jöfnu greiðslur sem eru af jafn ólíkum toga og grundvallaðar á gjörólíkum forsendum eins og greiðslur í fæðingarorlofi og umönn unarbætur. Verið er að skerða tekjur foreldra langveikra og fatlaðra barna með því að gera þeim að afsala sér launatekjum í fæðingarorlofi gegn greiðslum á umönnunarbótum sem eiga að standa undir umtalsverðum kostnaði sem ekki fæst bættur með öðrum hætti. Þess eru mörg dæmi að annað foreldri þessara barna þurfi að dvelja langdvölum fjarri heimili og margar fjölskyldur halda tvö heimili á meðan á meðferð barns stendur. Það er því augljóslega mikið réttlætismál að létta undir með foreldrum sjúkra og fatlaðra barna vegna tilfinnanlegra út gjalda. Þau útgjöld fást ekki bætt nema með greiðslum á umönnunarbótum.
    Frumvarp þetta er flutt til þess að taka af öll tvímæli um túlkun á lögum um almannatrygg ingar um að greiðslur á dagpeningum til mæðra beri að túlka sem laun eða launaígildi, enda hafi móðir lagt niður launað starf vegna fæðingar barns og að greiðslur í fæðingarorlofi upp hefji ekki rétt foreldra til greiðslna á umönnunarbótum vegna alvarlega sjúkra eða fatlaðra barna.