Ferill 536. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 920 – 536. mál.



Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um fangelsi og fangavist, nr. 48 19. maí 1988, með síðari breytingum.

Flm.: Gunnlaugur M. Sigmundsson.


                             

1. gr.

    Við 22. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Þó er ekki heimilt að fullnusta refsivist með samfélagsþjónustu hafi dómþoli auk refsi vistar verið dæmdur til greiðslu sektar að viðlagðri vararefsingu og samanlögð refsivist og vararefsing sektar er lengri en átta mánuðir.

2. gr.

    Á eftir 22. gr. kemur ný grein, svohljóðandi:
    Hafi maður verið dæmdur til greiðslu sektar að viðlagðri allt að sex mánaða vararefsingu er heimilt, ef almannahagsmunir mæla ekki gegn því, að fullnusta sektina með ólaunaðri samfélagsþjónustu, minnst 40 klukkustundir en mest 320 klukkustundir.
    Þó er ekki heimilt að fullnusta sektina með samfélagsþjónustu, ef dómþoli hefur auk sektar verið dæmdur til refsivistar sex mánuði eða lengur, ef samanlögð refsivist og vararefs ing sektar eru lengri en átta mánuðir eða ef sekt er hærri en 4 millj. kr.
    Ef dómþoli er dæmdur bæði til refsivistar og til greiðslu sektar er heimilt að fullnusta hvort tveggja með samfélagsþjónustu að uppfylltum öðrum skilyrðum laganna.

3. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 23. gr. laganna:
     a.      Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ef um er að ræða samfélagsþjónustu vegna fullnustu sektar er nægilegt að dómþoli óski eftir því í síðasta lagi innan hálfs mánaðar frá því að honum barst í hendur innheimtubréf lögreglustjóra.
     b.      Við greinina bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
             Þegar sekt að viðlagðri vararefsingu er fullnustuð með samfélagsþjónustu jafngildir 40 klukkustunda samfélagsþjónusta sekt að fjárhæð 500 þús. kr.

4. gr.

    Í stað orðsins „refsivistardómur“ í 1. mgr. 24. gr. laganna kemur: dómur.

5. gr.

    Í stað orðsins „refsivist“ í 3. mgr. 25. gr. laganna kemur: refsivist og/eða sekt.

6. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 26. gr. laganna:
     a.      Í stað orðanna „eða hvort refsivist skuli afplánuð“ í 1. mgr. komi: hvort refsivist skuli afplánuð eða sekt fullnustuð með innheimtu og eftir atvikum vararefsingu.
     b.      Við 2. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sama gildir um fullnustu sektar með samfélagsþjónustu.
     c.      Við 3. mgr. bætist: eða sekt fullnustuð með innheimtu og eftir atvikum vararefsingu.
     d.      Við 4. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Það sama gildir um fullnustu sektar með samfélagsþjónustu.
     e.      Við greinina bærist ný málsgrein, svohljóðandi:
             Þegar hvort tveggja refsivist og sekt eru fullnustaðar með samfélagsþjónustu skal tími í samfélagsþjónustu fyrst ganga til frádráttar sekt komi til þess að beita þurfi ákvæðum 4. mgr.

7. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Ákvæði til bráðabirgða.

    Til að heimilt verði að fullnusta sektardóm með samfélagsþjónustu þarf dómurinn að vera kveðinn upp eftir gildistöku laga þessara.

Greinargerð.

    Með lögum nr. 123 22. desember 1997, um breytingu á lögum um fangelsi og fangavist, voru rýmkaðar verulega heimildir dómþola sem dæmdur hefur verið til refsivistar til að sinna samfélagsþjónustu í stað þess að afplána refsingu í fangelsi. Undanfarin ár hefur verið í lögum þröng heimild fyrir dómþola til að óska eftir samfélagsþjónustu í stað afplánunar refsidóma en víða erlendis hafa slíkar heimildir verið lengi í lögum og gefist mjög vel. Heim ild laga nr. 123/1997 nær hins vegar ekki til refsivistar þeirra sem dæmdir hafa verið til greiðslu sekta að viðlagðri vararefsingu í formi refsivistar geti dómþoli ekki innt sektar greiðslu af hendi. Þau tilvik hafa komið upp að dómþoli hafi ekki efni á að greiða sekt, t.d. vegna gjaldþrots eða verulega skerts gjaldþols í framhaldi af þeim atburðum er leiddu til sektardóms. Vandséð er að það hafi verið ætlan Alþingis að veita rýmri heimildir til sam félagsþjónustu í stað refsivistar þegar brot er þess eðlis að dómþoli er dæmdur í óskilorðs bundna refsivist en þegar refsivistin er vararefsing. Fjölmörg tilvik geta orðið þess valdandi að dómþoli geti ekki staðið í skilum með greiðslu sektar og vandséð að slíkt réttlæti að viðkomandi sé skilyrðislaust gert að sitja af sér vararefsingu í fangelsi meðan þeir sem dæmdir hafa verið til refsivistar eiga þess kost að sinna samfélagsþjónustu í stað hennar.
    Með frumvarpi þessu er lagt til að hægt verði að fullnusta sektardóma með samfélags þjónustu eins og dóma þar sem dæmd hefur verið refsivist. Er þetta gert í þeim tilgangi að jafna þann mun sem nú er á fullnustu þessara tveggja tegunda refsinga.
    Í íslenskri refsilöggjöf eru höfuðgreinar refsinga aðeins tvær, refsivist og fésektir. Fé sektum er ætlað að bitna á fjármunum eða fjárráðum hins brotlega en refsivist á persónufrelsi hans. Einkenni fésekta eru um margt önnur en einkenni refsivistar. Fésekt taka menn út frjálsir ferða sinna og er hún því sjaldnast eins mannorðsskemmandi og refsivist eins og Jónatan Þórmundsson bendir á í riti sínu Viðurlög við afbrotum, bls. 217. Það er almennt viðurkennt að fésektir séu vægari refsitegund en refsivist og að hæsta sektarrefsing sam kvæmt lögum sé vægari refsing en skemmsta refsivist. Á hinn bóginn er oft erfiðleikum bundið að innheimta fésektir og tryggja að þær bitni á sökunautum persónulega eins og til gangurinn hlýtur að vera. Þess vegna er gert ráð fyrir refsivist sem vararefsingu ef sektar greiðsla bregst.
    Það skýtur nokkuð skökku við að hér á landi sé heimilt að fullnusta refsivist með sam félagsþjónustu en ekki fésektir, sérstaklega þegar haft er í huga að fésekt getur orðið jafn þungbær og refsivist ef dómþoli á ekki kost á að inna sektargreiðslu af hendi. Auk þess koma fésektir mjög misjafnlega við dómþola, efnalitlir sökunautar þurfa frekar að afplána vara refsingu en hinir sem betur mega sín. Afpláni dómþoli vararefsingu er hann í sömu stöðu og sá sem dæmdur er til refsivistar. Enginn munur er þar á, vararefsing fésektar er fullnustuð með sama hætti og óskilorðsbundin refsivist. Jónatan Þórmundsson prófessor bendir á það í Viðurlögum við afbrotum, á bls. 40, að í raun sé óviðunandi að það geti farið eftir efnahag og afkomu hvort dómþoli þarf að taka út vararefsingu fésektar í varðhaldi eða fangelsi ef sektin fæst ekki greidd. Bendir hann á að komið hafi til tals að afnema vararefsingu með öllu en bendir jafnframt á að eitthvað verði að koma í staðinn. Nefnir hann samfélagsþjónustu sem úrræði.
    Það sjónarmið hefur komið fram að fésektir hafi þann kost fyrir samfélagið að þær færi því fé í stað þess að baka því kostnað eins og refsivist. Þessi munur hverfur þegar sökunautur hefur ekki efni á að inna sektargreiðslu af hendi og þarf að afplána vararefsingu. Þá er fé sektarúrræði jafndýrt fyrir þjóðfélagið og refsivist. Fyrrnefnt sjónarmið, að samfélagsþjón usta spari þjóðfélaginu fjármuni, á orðið jafnt við um refsivist og fésektir í slíku tilviki.
    Gera verður ráð fyrir að þeir sem hafa efni á að greiða fésektir sínar muni eftir sem áður gera það því að samfélagsþjónusta er í flestum tilfellum þungbærari en greiðsla sektar fyrir dómþola. Telja verður hverfandi líkur á að ríkið verði af miklum sektargreiðslum við að lög festa það úrræði sem frumvarpið felur í sér. Refsingar eru ekki hugsaðar sem tekjuöflun fyrir ríkissjóð þótt réttlætanlegt sé að horfa til þess við setningu laga og reglna sem gilda eiga um refsingar hvaða úrræði hafi í för með sér minnstan kostnað fyrir ríkissjóð. Þá er umhugs unarvert hvort það samrýmist 65. gr. stjórnarskrárinnar að láta efnalausa eða efnalitla söku nauta sæta annarri og þyngri refsingu en þá sem betur mega sín. Skv. 65. gr. skulu allir vera jafnir fyrir lögunum, m.a. óháð efnahag þeirra. Það er grundvallaratriði og réttlætismál að leiðrétta slíkan mismun á milli dómþola.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.

Um 1. gr.

    Í greininni er lagt til að dómur um sekt að viðlagðri vararefsingu auk refsivistar hafi áhrif á það hvort heimilt sé að fullnusta refsivist með samfélagsþjónustu. Þar sem frumvarpið gerir ráð fyrir að hægt verði að fullnusta sektardóma með samfélagsþjónustu og einnig blandaða dóma þar sem bæði er dæmd sekt og refsivist er eðlilegt að samanlögð lengd þessara tveggja refsiúrræða hafi áhrif á hvort heimilt sé að fullnusta refsinguna með samfélagsþjónustu. Þar sem fésektir eru vægara refsiúrræði en refsivist þykir ástæða til að setja markið við átta mán aða samanlagða vararefsingu og refsivist.

Um 2. gr.

    Í greininni er lagt til að heimilt verði að fullnusta sektir með samfélagsþjónustu. Sömu meginreglur eiga að gilda og um fullnustu refsivistar eins og frumvarpið ber með sér. Í ljósi meginmarkmiðs frumvarpsins, að jafna mun milli refsivistar og fésektar, þykir ekki ástæða til að heimila þannig fullnustu sekta sem vararefsing fylgir ekki.
    Í 2. mgr. eru sett inn skilyrði fyrir því að sekt verði fullnustuð með samfélagsþjónustu og eru þau skilyrði sambærileg við skilyrði sem sett eru fyrir því að refsivist sé fullnustuð á þann hátt.
    Í 3. mgr. er lagt til að heimilt verði að fullnusta bæði sektir og refsivist ef um blandaðan dóm eða dóma er að ræða að fullnægðum öðrum skilyrðum laganna. Í því felst m.a. að refs ing, refsivist og vararefsing sektar, má ekki vera lengri en átta mánuðir samanlagt og þar af má refsivistin ekki vera lengri en sex mánuðir.

Um 3. gr.

    Í greininni eru annars vegar sett tímamörk þess hvenær dómþoli þarf að sækja um sam félagsþjónustu og hins vegar hvernig reikna skuli út lengd samfélagsþjónustu frá fjárhæð sektar.
    Í a-lið er lagt til að dómþoli hafi frest til að sækja um samfélagsþjónustu vegna fullnustu sektar þar til hún er komin til innheimtu hjá lögreglustjóra. Dómþoli hefur tíma til að sækja um samfélagsþjónustu þar til liðinn er hálfur mánuður frá því að honum barst í hendur inn heimtubréf lögreglustjóra.
    Í b-lið er lagt til að hverjar 40 klukkustundir í samfélagsþjónustu jafngildi 500 þús. kr. sekt. Þetta þýðir í raun að sektir, sem eru lægri en 500 þús. kr., verður að fullnusta með að lágmarki 40 klukkustundum í samfélagsþjónustu. Þetta mun draga úr því að fólk nýti sér þennan kost þegar um er að ræða lægri sektir.

Um 4. og 5. gr.

    Lagðar eru til orðalagsbreytingar þannig að viðkomandi greinar laganna taki til allra dóma en ekki bara refsivistardóma.

Um 6. gr.

    Hér eru lagðar til breytingar á 26. gr. laganna til að laga hana að breytingum sem frum varpið felur í sér. Auk þess er lagt til í e-lið að ef til þess kemur að svipta þarf dómþola heimild til samfélagsþjónustu og fullnusta þarf dóminn með afplánun eða greiðslu sektar verði sá tími sem dómþoli hefur innt af hendi í samfélagsþjónustu fyrst látinn ganga til frá dráttar sektinni og síðan refsivistinni. Er þetta í samræmi við markmið frumvarpsins um að jafna mun milli refsitegunda.

Um 7. gr.

    Greinin þarfnast ekki skýringar.

Um ákvæði til bráðabirgða.

    Ákvæðið er í samræmi við bráðabirgðaákvæði laga nr. 123 22. desember 1997, um breyt ingu á lögum um fangelsi og fangavist, með síðari breytingum.