Ferill 555. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 944 – 555. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 22/1968, um gjaldmiðil Íslands, með síðari breytingum .
(Lagt fyrir Alþingi á 122. löggjafarþingi 1997–98.)
1. gr.
Að tillögu Seðlabanka Íslands er ráðherra heimilt að ákveða að fjárhæð sérhverrar kröfu eða reiknings skuli greind og greidd með heilli krónu. Skal fimmtíu aurum eða lægri fjárhæð sleppt, en fimmtíu og einn eyrir eða hærri fjárhæð hækkuð í eina krónu. Seðlabankinn ákveður alla nánari framkvæmd þessa ákvæðis.
2. gr.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Frumvarp þetta er flutt að tillögu Seðlabanka Íslands, sem telur tímabært að fá heimild til að hætta notkun 5, 10 og 50 aura myntar, þannig að krónan verði lægsta mynteining í umferð.
Frá því að gjaldmiðli Íslands var breytt 1. janúar 1981 og verðmæti krónunnar hundrað
Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á lögum um gjaldmiðil Íslands sem eru hlið
Verði frumvarp þetta að lögum verður enginn skyldugur að greiða fjárhæð er reiknast fimmtíu aurar eða lægri fjárhæð. Hins vegar verða allir skyldugir til að hlíta því að greiða fjár
Þessi ákvæði girða þó ekki fyrir það að einstakar einingar séu verðlagðar með því að til
Er því eðlilegt að gera ráð fyrir því að aurar séu eftir sem áður til sem eining í gjald
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstof a:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 22/1968,
um gjaldmiðil Íslands, með síðari breytingum.
Ekki mun koma til kostnaðar ríkissjóðs af samþykkt frumvarps þessa.