Ferill 557. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 946 – 557. mál.



Frumvarp til laga



um stofnun hlutafélags um Samábyrgð Íslands á fiskiskipum.

(Lagt fyrir Alþingi á 122. löggjafarþingi 1997–98.)



1. gr.

    Stofna skal hlutafélag um Samábyrgð Íslands á fiskiskipum. Nafn félagsins skal vera Samábyrgðin hf. Hlutverk hlutafélagsins er að hafa á hendi þá starfsemi sem vátrygginga félögum er heimil samkvæmt lögum um vátryggingastarfsemi, nr. 60/1994, með síðari breyt ingum.
    Ríkissjóður leggur allar eignir, réttindi, skuldir og skuldbindingar Samábyrgðar Íslands á fiskiskipum til hlutafélagsins. Við stofnun hlutafélagsins skal allt hlutafé vera í eigu ríkis sjóðs.

2. gr.

    Viðskiptaráðherra fer með eignarhlut ríkisins í Samábyrgðinni hf.
    Ráðherra ákveður heildarfjárhæð hlutafjár í félaginu við stofnun þess. Skal við það miðað að heildarfjárhæð hlutafjár á stofnfundi félagsins nemi eigi lægri fjárhæð en 75% af eigin fé Samábyrgðar Íslands á fiskiskipum eins og það er samkvæmt endurskoðuðum ársreikningi fyrir árið 1996. Hlutafé getur þó tekið breytingum til hækkunar.
    Ráðherra ákveður skiptingu hlutafjár í hluta.
    Ákvæði 2. mgr. 14. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995, gildir ekki um innborgun hlutafjár. Þá gilda ákvæði 2. mgr. 3. gr., 1. mgr. 20. gr. og 2. tölul. 1. mgr. 107. gr. þeirra laga ekki um fjölda stofnenda og hluthafa.

3. gr.

    Viðskiptaráðherra er heimilt að ákveða sölu á eignarhlut ríkissjóðs í félaginu að hluta til eða að öllu leyti. Ráðherra er heimilt að ákveða að andvirði seldra hlutabréfa skuli ráðstafað til öryggismála sjómanna í tengslum við byggingu nýs varðskips.

4. gr.

    Allir starfsmenn Samábyrgðar Íslands á fiskiskipum sem taka laun samkvæmt kjarasamn ingi Verslunarmannafélags Reykjavíkur og Vinnuveitendasambands Íslands eða kjarasamn ingum annarra stéttarfélaga skulu eiga kost á sambærilegu starfi hjá Samábyrgðinni hf. eftir yfirtöku hennar á Samábyrgð Íslands á fiskiskipum.
    Nú tekur maður sem gegnir starfi hjá Samábyrgð Íslands á fiskiskipum við starfi hjá Sam ábyrgðinni hf. og skal hann á því tímamarki njóta sömu réttinda og hann hafði samkvæmt kjarasamningi eða ráðningarsamningi. Réttur hans til launa hjá Samábyrgð Íslands á fiski skipum fellur niður er hann tekur við starfinu.

5. gr.

    Hinn 1. júlí 1998 tekur Samábyrgðin hf. við starfsemi Samábyrgðar Íslands á fiskiskipum. Á því tímamarki er Samábyrgð Íslands á fiskiskipum lögð niður. Starfsleyfi það er Samábyrgð Íslands á fiskiskipum hefur færist þá sjálfkrafa til hins nýja félags.
    Viðskiptaráðherra skipar þriggja manna undirbúningsnefnd til þess að annast undirbúning og nauðsynlegar aðgerðir vegna breytingarinnar. Nefndin skal hafa heimild til þess að gera hvers kyns löggerninga sem eru nauðsynlegir til undirbúnings stofnun félagsins og fyrirhug aðri starfrækslu og ekki falla undir valdsvið stjórnar Samábyrgðar Íslands á fiskiskipum. Við stofnun skal félagið bundið við umrædda löggerninga.
    Kostnaður af stofnun hlutafélags greiðist af Samábyrgðinni hf.

6. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.
    Hinn 30. júní 1998 falla úr gildi lög um Samábyrgð Íslands á fiskiskipum, nr. 37/1978, ásamt síðari breytingum, svo og lög um bátaábyrgðarfélög, nr. 18/1976, með síðari breyting um.
    Um Samábyrgðina hf. og starfandi bátaábyrgðarfélög gilda að öðru leyti en leiðir af ákvæðum laga þessara ákvæði laga um vátryggingastarfsemi, nr. 60/1994, með síðari breyt ingum. Ákvæði laga um hlutafélög, nr. 2/1995, með síðari breytingum, eiga einnig við um Samábyrgðina hf., eftir því sem við á.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


1. Inngangur.
    Frumvarp þetta er samið samkvæmt ákvörðun viðskiptaráðherra, í viðskiptaráðuneytinu. Samkvæmt frumvarpinu skal stofna hlutafélag um rekstur Samábyrgðar Íslands á fiskiskipum.
    Meginástæða þess að farið er út í stofnun hlutafélags um reksturinn er að þannig er ríkis stjórninni gert kleift að mæta tilboði sem bátaábyrgðarfélögin, viðskiptaaðilar Samábyrgðar innar og starfsmenn hafa gert í hlut ríkissjóðs í félaginu.
    Auk þess gerir frumvarp þetta ráð fyrir afnámi skyldutryggingar þilfarsbáta undir 100,49 rúmlestir brúttó með niðurfellingu laga um bátaábyrgðarfélög.
    Um allnokkurt skeið hefur skyldutrygging sú sem lögð er á herðar eigenda vélbáta með þilfari 100,49 rúmlestir brúttó að stærð eða minni verið gagnrýnd. Ýmsir hafa talið þessa skyldutryggingu tímaskekkju enda var henni komið á er bátafloti landsmanna var annar en hann er nú og aðstæður aðrar. Á síðustu árum hefur Landssamband íslenskra útvegsmanna ítrekað ályktað um það á fundum sínum að afnema bæri skyldutryggingu skipa undir 100 lestum og gera þær frjálsar. Landssamband smábátaeigenda hefur og ályktað í sömu veru. Í kjölfar samningsins um Evrópska efnahagssvæðið misstu bátaábyrgðarfélögin einkarétt sinn á því að taka umrædda báta í tryggingu og að skipta landinu upp í markaðssvæði. Starfa þau nú í samkeppni við önnur vátryggingafélög á þessum markaði og þykir því ekki tilefni til þess að hafa sérlög um þau lengur.

2. Stutt samantekt á sögu Samábyrgðar Íslands á fiskiskipum og bátaábyrgðarfélaganna.
     Samábyrgð Íslands á fiskiskipum var stofnuð með lögum nr. 54/1909. Henni var þá ekki lagt til sérstakt stofnfé úr ríkissjóði né gert ráð fyrir að það kæmi frá öðrum. Henni var hins vegar tryggð ábyrgð ríkissjóðs á skuldbindingum sínum upp að 200.000 kr. Auk þess lagði ríkissjóður Samábyrgðinni til fjármuni, alls 25.000 kr., vegna kostnaðar við stofnun og stjórn hennar.
    Samkvæmt fyrstu lögunum um Samábyrgðina skyldi hún vera gagnkvæmt tryggingafélag. Með lögum nr. 23/1921 voru ákvæði laga nr. 54/1909 sem kváðu á um að Samábyrgðin væri gagnkvæmt vátryggingafélag felld brott og ábyrgð ríkissjóðs vegna skuldbindinga félagsins hækkuð úr 200.000 kr. í 800.000 kr. Bar ríkissjóður einn ábyrgð á skuldbindingum þess allt til 1967 er fyrsta verulega breytingin var gerð á lögunum.
    Árið 1941 var ríkissjóði þó gert að leggja félaginu til stofnfé, 500 þús. kr. og árið 1947 var ríkissjóði enn gert að leggja því til viðbótarstofnfé, 1,5 millj. kr. Frá upphafi og fram til 1967 voru sérstök ákvæði í lögunum um að ef félaginu yrði slitið skyldi ráðstafa eignum þess til Fiskveiðasjóðs.
    Árið 1967 voru sett ný lög um Samábyrgðina, eins og áður sagði, lög nr. 47/1967. Með þeim var ábyrgð ríkissjóðs á skuldbindingum félagsins felld brott og sömuleiðis ákvæðin um afdrif eigna félagsins við félagsslit. Árið 1976 voru enn sett ný lög um Samábyrgðina, lög nr. 19/1976. Breytingar á lögunum áttu fyrst og fremst rætur að rekja til nýrra laga um vátryggingastarfsemi, einkum ákvæða um Tryggingaeftirlitið og nýrra sérstakra laga um bátaábyrgðarfélögin sem samtímis voru samþykkt á Alþingi, lög nr. 18/1976. Þau lög gerðu ýmis ákvæði laganna um Samábyrgðina óþörf.
    Gildandi lög um Samábyrgðina voru sett árið 1978, lög nr. 37/1978. Helsta breytingin sem þá var gerð var að bráðafúatryggingin sem sett var inn í lögin árið 1967 var felld niður en í hennar stað kom sjálfstæð tryggingargrein innan Samábyrgðarinnar, Aldurslagasjóður fiskiskipa. Gildandi lögum var breytt með lögum nr. 40/1990 og var þá felldur brott sá kafli laganna sem fjallaði um Aldurslagasjóð. Þá má einnig nefna breytingar sem gerðar voru með lögum nr. 116/1993 og fjallað verður nánar um síðar.
    Lögin um bátaábyrgðarfélög eru upphaflega frá árinu 1938 en þá var skyldutrygging á fiskiskipum, 70 smálestum brúttó eða minni, lögfest, sbr. lög um vátryggingarfélög fyrir vélbáta, nr. 27/1938. Þá voru nokkur bátaábyrgðarfélög þegar starfandi en þeim fjölgaði verulega við þessa lagasetningu. Lögin hafa breyst nokkuð í tímans rás. Lögin voru endur skoðuð í byrjun fimmta áratugarins í ljósi reynslunnar af rekstri félaganna, sbr. lög nr. 32/1942. Þá var skyldutryggingin útvíkkuð og hún látin ná til vélbáta með þilfari allt að 100 smálestum að stærð. Enn voru lögin endurskoðuð með lögum nr. 61/1947 og var þá heiti laganna breytt í lög um vátryggingarfélög fyrir fiskiskip.
    Gildandi lög um bátaábyrgðarfélög eru nr. 18/1976. Er það samsett útgáfa laga nr. 41/1967 og breytinga á þeim lögum, nr. 91/1975. Með lögunum frá 1975 var stærðarmörkum breytt úr 100 rúmlestum brúttó í 100,49 rúmlestir brúttó og var það gert til að taka af öll tvímæli um stærðarmörk þeirra skipa sem féllu undir skyldutrygginguna. Ýmsar breytingar voru einnig gerðar vegna tilkomu laga um vátryggingastarfsemi og vegna starfsemi Tryggingaeftirlits. Með lögum nr. 116/1993 voru gerðar þær breytingar á lögum nr. 18/1976 sem nauðsynlegar voru vegna samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. M.a. var felldur niður einkaréttur bátaábyrgðarfélaganna til þess að vátryggja fiskiskip undir 100,49 rúmlestum, einkaréttur Samábyrgðar Íslands á fiskiskipum að endurtryggja skipin afnuminn og afnumin undanþága bátaábyrgðarfélaganna og Samábyrgðarinnar frá greiðslu tekju- og eignarskatts. Þá var bátaábyrgðarfélögunum gert að setja sér samþykktir með ákvæðum um eignarhald og félagsslit. Eru félögin nú gagnkvæm vátryggingafélög samkvæmt samþykktum sínum.
    Bátaábyrgðarfélögin eru nú fjögur talsins, Vélbátaábyrgðarfélagið Grótta, Bátatrygging Breiðafjarðar, Vélbátaábyrgðarfélag Ísfirðinga og stærsta bátaábyrgðarfélagið, Vélbáta trygging Eyjafjarðar, sem nýlega fékk starfsleyfi til alhliða vátryggingastarfsemi og skipti um nafn, heitir nú Vörður vátryggingafélag. Formlega telst það þó enn þá bátaábyrgðarfélag. Árið 1992 voru bátaábyrgðarfélögin sjö talsins.

3. Tilboð í hlut ríkissjóð í Samábyrgð Íslands á fiskiskipum.
    Fulltrúar frá bátaábyrgðarfélögunum, viðskiptaaðilar Samábyrgðarinnar og starfsmenn hafa gert iðnaðar- og viðskiptaráðherra tilboð í eignarhluta ríkissjóðs í félaginu (sjá fylgiskjal I). Hljóðar tilboðið upp á 190 millj. kr. Með því er áratugaágreiningur um eignarhald á Samábyrgðinni leystur. Með tilboðinu viðurkenna fulltrúar sjávarútvegsins eignarrétt ríkis sjóðs og ríkissjóður viðurkennir að ekki sé óeðlilegt að tekið sé tillit til að hluti viðskipta vildar fyrirtækisins sé viðurkenndur sem eign viðskiptaaðilanna. Hafa enda bátaábyrgðar félögin í hendi sér hvort þau halda áfram viðskiptum við Samábyrgðina sem endurtryggjanda.
    Viðskiptaráðherra hefur samþykkt kauptilboðið með fyrirvara um samþykki Alþingis. Hefur ríkisstjórnin einnig samþykkt tilboðið fyrir sitt leyti. Með samþykki sínu hefur ríkis stjórnin jafnframt ákveðið að um sölu á Samábyrgðinni muni ekki fara samkvæmt verklags reglum um útboð og sölu ríkisfyrirtækja.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.

    Ekki er lengur gert ráð fyrir sérlögum um Samábyrgð Íslands á fiskiskipum. Reiknað er með að almenn lög um vátryggingastarfsemi, nr. 60/1994, með síðari breytingum, gildi um starfsemi hlutafélagsins sem tekur yfir rekstur Samábyrgðarinnar.

Um 2. og 3. gr.

    Greinarnar gera ráð fyrir að viðskiptaráðherra fari með eignarhlut ríkisins í Samábyrgð inni. Greinin gerir ráð fyrir að andvirðinu, komi til sölu, verði varið til kaupa á öryggisbúnaði sem staðsettur verði um borð í nýju varðskipi, eða tengdur því á annan hátt.

Um 4. gr.

    Lagt er til að núverandi starfsmönnum Samábyrgðar Íslands á fiskiskipum verði boðið sam bærilegt starf hjá Samábyrgðinni hf. eftir stofnun þess.

Um 5. gr.

    Ekki er gert ráð fyrir að Samábyrgðin hf. þurfi að sækja um starfsleyfi til þess að mega stunda þá vátryggingastarfsemi sem Samábyrgð Íslands á fiskiskipum stundar nú. Komi til þess að Samábyrgðin hf. vilji útvíkka starfssvið sitt fer um slíkt samkvæmt ákvæðum laga um vátryggingastarfsemi.
    Hlutverk undirbúningsnefndar sem viðskiptaráðherra kemur til með að skipa, verði frum varpið að lögum, verður m.a. að tryggja að yfirfærsla starfsmanna verði með þeim hætti er segir í 4. gr. og að ganga frá nauðsynlegum formsatriðum vegna stofnunar hlutafélagsins. Nefndin gangi einnig frá formlegum samningum við tilboðsgjafa.

Um 6. gr.

    Greinin gerir ráð fyrir að þau bátaábyrgðarfélög sem nú eru starfandi komi til með að starfa eftir lögum um vátryggingastarfsemi. Af sjálfu leiðir að afnám sérlaga um bátaábyrgðarfélög afnemur skyldu til þess að hafa þilfarsbáta að 100,49 brúttórúmlestum tryggða. Er það í samræmi við það sem gildir um önnur skip og báta, stærri og minni. Um leið er einnig afnumin skylda bátaábyrgðarfélags til þess að taka í tryggingu hvern þann er óskar eftir tryggingu á félagssvæði viðkomandi bátaábyrgðarfélags.


Fylgiskjal I.


Kauptilboð eignarhlut ríkissjóðs í Samábyrgð Íslands á fiskiskipum.

    Við undirritaðir, Sveinn Hjörtur Hjartarsson og Hjálmar Styrkársson, f.h. bátaábyrgðar félaganna og viðskiptaaðila við Samábyrgð Íslands á fiskiskipum, svo og starfsmenn sem standa að tilboði þessu, kallaðir tilboðsgjafar í tilboði þessu, gera iðnaðar- og viðskipta ráðherra eftirfarandi

kauptilboð:


    Tilboðsgjafar kaupa allan eignarhlut ríkissjóðs í Samábyrgð Íslands á fiskiskipum.
    Kaupverð eignarhlutans er 190.000.000 kr. (krónur eitthundrað og níutíu milljónir), sem greiðast þannig að 45.000.000 kr. verða greiddar við afhendingu hlutabréfa ríkissjóðs í Sam ábyrgðinni, þó ekki síðar en 30. júní 1998, 45.000.000 kr. verða greiddar 30. júní 1999 og afgangurinn, 100.000.000 kr., með átta jöfnum afborgunum 30. júní ár hvert, í fyrsta sinn 30. júní árið 2001.
    Gefið skal út verðtryggt skuldabréf, tryggt með bankatryggingu eða sambærilegri trygg ingu sem aðilar kunna að koma sér saman um. Skal bréfið bera meðaltal kjörvaxta (Lands banka Íslands hf., Búnaðarbanka Íslands hf. og Íslandsbanka hf.). Verðtrygging skal miðast við vísitölu neysluverðs.
    Tilboðsgjafar eru samþykkir því að ráðherra leggi fram á Alþingi lagafrumvarp um stofnun hlutafélags um Samábyrgð Íslands á fiskiskipum þar sem fram kemur að ráðherra fyrir hönd ríkissjóðs sé heimilt að selja eignarhlut ríkissjóðs í Samábyrgð Íslands á fiskiskipum til ofannefndra aðila samkvæmt þeim ákvæðum sem tilgreind eru í þessu tilboði.
    Aðilar eru sammála um að stefnt sé að því að ljúka samningsgerð innan fjögurra vikna frá dagsetningu tilboðsins.

Reykjavík, 5. febrúar 1998.
f.h. tilboðsgjafa:
Sveinn Hjörtur Hjartarson.
Hjálmar Styrkársson.


    Með fyrirvara um samþykki ríkisstjórnar og Alþingis lýsi ég því yfir að ég er samþykkur framanrituðu tilboði:
5. mars 1998.
Finnur Ingólfsson.


Fylgiskjal II.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstof a:


Umsögn um frumvarp til laga um stofnun hlutafélags


um Samábyrgð Íslands á fiskiskipum.


    Í frumvarpi þessu er lagt til að Samábyrgð Íslands á fiskiskipum verði breytt í hlutafélag í eigu ríkissjóðs. Skv. 3. gr. er viðskiptaráðherra heimilt að ákveða sölu á eignarhlut ríkissjóðs í félaginu og í greinargerð kemur fram að viðskiptaaðilar félagsins hafi gert 190 m.kr. tilboð í félagið sem talið er ásættanlegt. Samkvæmt ársreikningum félagsins fyrir 1996 nam eigið fé þess 253 m.kr. í lok þess árs og vátryggingaskuld (fjármunir settir til hliðar upp í væntanlegar tjónagreiðslur) 264 m.kr.