Ferill 562. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 953 – 562. mál.



Frumvarp til laga



um vexti, dráttarvexti og verðtryggingu.

(Lagt fyrir Alþingi á 122. löggjafarþingi 1997–98.)



I. KAFLI
Gildissvið.
1. gr.

    Lög þessi gilda um vexti og dráttarvexti af peningakröfum á sviði fjármunaréttar og á öðr um sviðum réttarins, eftir því sem við getur átt, nema öðruvísi sé kveðið á í lögum. Lögin gilda einnig um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár.

2. gr.

    Auk vaxta, dráttarvaxta og verðbóta taka lög þessi til annars endurgjalds sem áskilið er eða tekið fyrir lánveitingu eða umlíðun skuldar.

3. gr.

    Ákvæði II. kafla og 11.–13. gr. laga þessara gilda því aðeins að ekki leiði annað af lögum, samningum eða venju.

II. KAFLI
Almennir vextir.
4. gr.

    Almenna vexti skal því aðeins greiða af peningakröfum fram að gjalddaga þeirra að það leiði af samningum, venju eða lagafyrirmælum.
    Þegar skylt er að greiða vexti samkvæmt þessari grein, en hundraðshluti þeirra ekki tiltek inn, skulu þeir vera jafnháir þeim vöxtum sem kveðið er á um í 5. gr.
    Almennir vextir samkvæmt lögum þessum skulu ekki lagðir við höfuðstól kröfu við útreikn ing vaxta, nema það leiði af samningum, venju eða lagafyrirmælum. Þó er heimilt að leggja almenna vexti sem fallið hafa á fram til gjalddaga einu sinni við höfuðstól þegar ákveðinn er stofn til dráttarvaxtaútreiknings.

5. gr.

    Þegar samið er um vexti af óverðtryggðri peningakröfu, en hundraðshluti þeirra ekki tiltek inn, skulu vextir frá því að til skuldar er stofnað vera á hverjum tíma jafnháir vöxtum sem Seðlabanki Íslands ákveður til opinberrar birtingar með hliðsjón af lægstu vöxtum á nýjum óverðtryggðum útlánum hjá viðskiptabönkum, sparisjóðum og öðrum lánastofnunum.
    Þegar samið er um vexti af verðtryggðri peningakröfu, en hundraðshluti þeirra ekki tiltek inn, skulu vextir frá því að til skuldar er stofnað vera á hverjum tíma jafnháir vöxtum sem Seðlabankinn ákveður til opinberrar birtingar með hliðsjón af lægstu vöxtum á nýjum verð tryggðum útlánum hjá viðskiptabönkum, sparisjóðum og öðrum lánastofnunum.

6. gr.

    Kröfur um skaðabætur skulu bera vexti frá og með þeim degi er hið bótaskylda atvik átti sér stað og vera á hverjum tíma jafnháir vöxtum skv. 1. mgr. 5. gr.
    Sé fjárhæð skaðabótakröfu miðuð við verðlag síðar en hið bótaskylda atvik varð ber krafan þó vexti skv. 1. mgr. frá þeim tíma.

7. gr.

    Viðskiptabönkum, sparisjóðum og öðrum lánastofnunum ber að tilkynna Seðlabankanum um öll vaxtakjör og breytingar á þeim í því formi og með þeim fyrirvara sem Seðlabankinn krefst.
    Seðlabankinn skal fyrir lok mánaðar birta í Lögbirtingablaði vexti á óverðtryggðum og verðtryggðum útlánum skv. 5. gr. og dráttarvexti skv. 1. mgr. 9. gr. og skal hver tilkynning lögð til grundvallar í samræmi við lög þessi næsta mánuðinn eða uns næsta tilkynning birtist. Seðlabankinn skal um hver áramót birta í B-deild Stjórnartíðinda töflu er sýnir vexti sam kvæmt þessari málsgrein á hverjum tíma á næstliðnu ári.

III. KAFLI
Dráttarvextir.
8. gr.

    Hafi gjalddagi verið fyrir fram ákveðinn skulu dráttarvextir reiknast af peningakröfu frá og með gjalddaga, ef eigi er greitt á gjalddaga, fram að greiðsludegi.
    Dráttarvextir skulu ætíð reiknast sem dagvextir nema á annan veg sé sérstaklega mælt í lög um.
    Nú er ekki samið um gjalddaga kröfu og er þá heimilt að reikna dráttarvexti þegar liðinn er mánuður frá því að kröfuhafi sannanlega krafði skuldara um greiðslu. Sé sá mánaðardagur, sem greiðslukrafan miðast við, ekki til í næsta mánuði skal skuldari greiða dráttarvexti frá og með síðasta degi þess mánaðar.
    Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. er ætíð heimilt að reikna dráttarvexti frá þeim tíma er dómsmál telst höfðað til heimtu kröfunnar, sbr. þó 13. gr. um skaðabætur.

9. gr.

    Dráttarvextir af peningakröfum skulu ákveðnir sem ársvextir með þeim hætti að leggja saman vexti skv. 1. mgr. 5. gr. og hundraðshlut ákveðinn af Seðlabanka Íslands. Hundraðs hlutinn má ekki vera hærri en 10.
     Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er heimilt í lánssamningum lögaðila að ákveða dráttarvexti sem ársvexti með því að leggja saman almenna vexti og samningsbundinn hundraðshlut. Hundraðs hlutinn má þó ekki vera hærri en 10.

10. gr.

    Áfallnir dráttarvextir skulu lagðir við höfuðstól skuldar og nýir dráttarvextir reiknaðir af samanlagðri fjárhæð ef vanskil standa lengur en 12 mánuði. Aldrei skal reikna slíka vaxta vexti oftar en á 12 mánaða fresti.

11. gr.

    Ef atvik, sem varða kröfuhafa og skuldara verður ekki um kennt, valda því að greiðsla fer ekki fram skal ekki reikna dráttarvexti þann tíma sem greiðsludráttur verður af þessum sökum. Hið sama á við ef greiðslufall skuldara verður vegna þess að hann neytir lögmætra vanefnda úrræða gagnvart kröfuhafanum í þeim mæli sem honum er heimilt.

12. gr.

    Sé mál höfðað til heimtu peningakröfu sem stofnast eftir gildistöku laga þessara og krafist almennra vaxta með tilvísun til 5. eða 6. gr. laga þessara má dæma almenna vexti, enda þótt vaxtahæð sé ekki tilgreind í stefnu.
     Sé mál höfðað til heimtu peningakröfu og dráttarvaxta krafist skv. 1. mgr. 9. gr. má dæma dráttarvexti frá gjalddaga kröfunnar skv. 8. gr. til greiðsludags, enda þótt vaxtahæð sé ekki tilgreind í stefnu.

13. gr.

    Skaðabótakröfur skulu bera dráttarvexti skv. 1. mgr. 9. gr. að liðnum mánuði frá þeim degi er kröfuhafi sannanlega lagði fram þær upplýsingar sem þörf var á til þess að meta tjónsatvik og fjárhæð bóta. Dómstólar geta þó, ef sérstaklega stendur á, ákveðið annan upphafstíma dráttarvaxta.

IV. KAFLI
Verðtrygging sparifjár og lánsfjár.
14. gr.

    Ákvæði þessa kafla gilda um skuldbindingar, sem varða sparifé og lánsfé í íslenskum krón um, þar sem skuldari lofar að greiða peninga og þar sem umsamið eða áskilið er að greiðsl urnar skuli verðtryggðar. Með verðtryggingu er í þessum kafla átt við breytingu í hlutfalli við innlenda verðvísitölu eða gengi erlends gjaldmiðils. Um heimildir til verðtryggingar fer skv. 15. gr. nema lög kveði á um annað.

15. gr.

    Óheimilt er að verðtryggja sparifé og lánsfé skv. 16. gr. nema grundvöllur verðtryggingar innar sé vísitala neysluverðs, sem Hagstofa Íslands reiknar samkvæmt lögum sem um vísitöl una gilda og birtir mánaðarlega í Lögbirtingablaði. Vísitala sem reiknuð er og birt í tilteknum mánuði gildir vegna verðtryggingar sparifjár og lánsfjár næsta mánuð á eftir.
    Seðlabankinn getur að fengnu samþykki viðskiptaráðherra heimilað að fleiri opinberlega skráðar vísitölur en tilgreindar eru í 1. mgr. geti verið grundvöllur verðtryggingar sparifjár og lánsfjár skv. 14. gr.
    Seðlabankinn skal að fengnu samþykki viðskiptaráðherra ákveða lágmarkstíma verð tryggðra innstæðna og lána. Bankinn getur jafnframt að fengnu samþykki ráðherra ákveðið að vextir verðtryggðra innstæðna eða lána skuli vera óbreytanlegir á lánstímanum.
    Seðlabankanum er heimilt að fengnu samþykki ráðherra að ákveða að óheimilt sé að verð tryggja innlánsfé og hvers konar lánsfé samkvæmt samningum um lánveitingu sem stofnað er til eftir nánar tiltekinn tíma eða ef lán er afhent eftir hinn tiltekna tíma.

16. gr.

    Þegar skuldbindingum með ákvæðum um verðtryggingu er þinglýst hjá sýslumönnum skulu þeir gæta þess að ákvæðanna sé getið í þinglýsingarbókum og að þær komi fram á vottorðum þinglýsingarstjóra um efni þinglýsingarbóka.

17. gr.

    Seðlabankinn setur nánari reglur um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár. Í þeim skal meðal annars kveðið á um jöfnuð verðtryggðra eigna og skulda viðskiptabanka, sparisjóða og ann arra lánastofnana. Seðlabankinn getur beitt viðskiptabanka, sparisjóði og aðrar lánastofnanir viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga um Seðlabanka Íslands sé ákvörðunum bankans í þessum efnum ekki sinnt.

18. gr.

    Vísitala neysluverðs, sbr. 15. gr. með grunninn 100 í maí 1988, skal í hverjum mánuði margfölduð með stuðlinum 19,745. Útkoman, án aukastafa, skal gilda sem vísitala fyrir næsta mánuð á eftir í fyrsta sinn fyrir apríl 1995, gagnvart fjárskuldbindingum sem samið hefur verið um fyrir 1. apríl 1995 og eru með ákvæðum um lánskjaravísitölu þá sem Seðlabankinn reiknaði og birti mánaðarlega samkvæmt heimild í 39. gr. laga nr. 13/1979, um stjórn efna hagsmála o.fl., sbr. reglugerð nr. 18/1989. Hagstofan skal birta mánaðarlega í Lögbirtinga blaði vísitölu skv. 2. málsl. þessarar málsgreinar.
    Verði gerð breyting á grunni vísitölu neysluverðs skal Hagstofan birta í Lögbirtingablaði margfeldisstuðul fyrir þannig breytta vísitölu í stað stuðulsins sem getið er í 1. mgr.
    Ákvæði 1. og 2. mgr. gilda einnig um lánskjaravísitölu í lögum og hvers kyns stjórnvalds fyrirmælum öðrum og samningum sem í gildi eru 1. apríl 1995.

V. KAFLI
Viðurlög og málsmeðferð.
19. gr.

     Hver sem af ásetningi eða stórfelldu gáleysi áskilur sér hærri dráttarvexti en leyfilegt er samkvæmt lögum þessum skal sæta sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að einu ári. Sé brot ítrekað eða sakir miklar varðar brotið varðhaldi eða fangelsi allt að tveimur árum.
    Mál út af refsiverðum brotum gegn lögum þessum sæta meðferð opinberra mála. Endur greiðslukröfur og aðrar einkaréttarkröfur má hafa uppi og dæma í slíkum málum.

20. gr.

    Ef samningur um dráttarvexti telst ólögmætur er sá samningur ógildur og hafi endurgjald verið greitt ber kröfuhafa að endurgreiða skuldara þá fjárhæð sem hann hefur þannig ranglega af honum haft.

VI. KAFLI
Gildistaka.
21. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1999. Jafnframt falla úr gildi vaxtalög nr. 25/1987 með síð ari breytingum.

Ákvæði til bráðabirgða.
I.

    Nú segir í peningakröfu í íslenskum krónum, gerðri fyrir gildistöku laga þessara, að vextir fram að gjalddaga skuli vera breytilegir í samræmi við vegið meðaltal ársávöxtunar á nýjum almennum útlánum hjá viðskiptabönkum og sparisjóðum, meðalútlánsvexti viðskiptabanka og sparisjóða eða meðalútlánsvexti sem Seðlabanki Íslands birtir eða vísað er til með öðrum almennum hætti til vaxta á markaði og skulu þá vextir af þessum peningakröfum eftir gildis töku laganna vera jafnháir vöxtum skv. 1. mgr. 5. gr. að viðbættum 3,5% þegar um óverð tryggða peningakröfu er að ræða og jafnháir vöxtum skv. 2. mgr. 5. gr. að viðbættum 2,5% þegar um verðtryggða peningakröfu er að ræða.
    Nú segir í peningakröfu í íslenskum krónum, gerðri fyrir gildistöku laga þessara, að vextir fram að gjalddaga skuli vera breytilegir í samræmi við hæstu lögleyfðu vexti á hverjum tíma, hæstu vexti á markaðnum eða vísað er með öðrum almennum hætti til hæstu vaxta á markaði og skulu þá vextir af þessum peningakröfum eftir gildistöku laganna vera jafnháir vöxtum skv. 1. mgr. 5. gr. að viðbættum 4,5% þegar um óverðtryggða peningakröfu er að ræða og jafnháir vöxtum skv. 2. mgr. 5. gr. að viðbættum 3,5% þegar um verðtryggða peningakröfu er að ræða.

II.


    Nú segir í peningakröfu, þar með talinni skaðabótakröfu, niðurstöðu dómsmáls eða öðrum gerningi, gerðum fyrir gildistöku laga þessara, að við vanskil reiknist hæstu lögleyfðu dráttarvextir eins og þeir eru á hverjum tíma, dráttarvextir samkvæmt ákvörðun Seðlabanka Íslands eða dráttarvextir samkvæmt vaxtalögum eða vísað er með öðrum hætti til dráttarvaxta sem Seðlabankinn ákvað skv. 10. eða 11. gr. laga nr. 25/1987 og skulu þá dráttarvextir eftir gildistöku laganna reiknaðir skv. 9. gr. laga þessara.

III.

    Nú segir í lánssamningi, innlánsskilríki eða öðrum gerningi í íslenskum krónum, gerðum fyrir gildistöku laga þessara, að fjárhæðir breytist með reikningsgengi SDR eða ECU (SDR- eða ECU-gengisvísitölu) sem Seðlabankinn reiknar út og birtir og skal þá í hverjum mánuði miðað við opinbert viðmiðunargengi ECU eða SDR (kaupgengi) skv. 2. mgr. 18. gr. laga nr. 36/1986, um Seðlabanka Íslands, á 21. degi undanfarandi mánaðar. Nú er gengi ekki skráð á 21. degi mánaðar og skal þá lagt til grundvallar það kaupgengi er skráð var næst á undan þeim degi. Óheimilt er að taka við innlánum á reikninga sem stofnaðir hafa verið með fyrr greindum kjörum fyrir gildistöku laga þessara, nema heimilað verði skv. 15. gr.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Fram til ársins 1987 voru í gildi lög um bann við okri, dráttarvexti o.fl. („okurlög“, nr. 58/1960). Samkvæmt þeim og ákvæðum laga um Seðlabanka Íslands frá 1961 var bankanum heimilt að ákveða lágmarksvexti innlána og hámarksvexti útlána. Vextir í almennum viðskipt um manna á meðal máttu ekki vera hærri en almennir útlánsvextir banka og sparisjóða. Seðla bankinn nýtti fyrrgreinda lagaheimild og ákvað alla almenna vexti í landinu til febrúar 1984. Þá heimilaði Seðlabankinn bönkum og sparisjóðum að ákveða vexti á innlánum sem bundin voru til minnst sex mánaða og millibankalánum. Í ágúst sama ár veitti Seðlabankinn sömu aðilum heimild til að ákveða alla aðra vexti en af almennum sparisjóðsbókum og endur seljanlegum afurðalánum, dráttarvexti og vexti af skuldabréfum sem gefin höfðu verið út fyrir gildistöku þessarar ákvörðunar Seðlabankans. Veruleg hækkun útlánsvaxta banka og spari sjóða strax á haustmánuðum 1984 varð til þess að Seðlabankinn greip aftur í taumana í ársbyrjun 1985 og lækkaði vexti útlána. Hélst þessi skipan fram á árið 1986.
    Árið 1987 voru sett lög um vexti er komu í stað okurlaganna frá 1960. Með vaxtalögunum (nr. 25/1987) var staðfest almennt frelsi til samninga manna á milli um vexti, þó ekki um drátt arvexti sem enn eru ákveðnir af Seðlabankanum. Með vaxtalögunum var Seðlabankanum falið að birta opinberlega upplýsingar um vexti hjá bönkum og sparisjóðum, honum falið að ákveða dráttarvexti innan tiltekinna marka og að auglýsa meðalvexti á skuldabréfalánum banka og sparisjóða til almennrar notkunar í viðskiptalífinu.
    Frá því að vaxtalög gengu í gildi og almennu samningsfrelsi um aðra vexti en dráttarvexti var komið á hefur íslenskur fjármagnsmarkaður tekið margvíslegum breytingum. Hér skal ein ungis þeirra helstu getið:
     —      Bankar, sparisjóðir og aðrar helstu lánastofnanir hafa tekið upp kjörvaxtakerfi útlána. Í kjörvaxtakerfi eru lántakendur flokkaðir í nokkra kjörvaxtaflokka eftir fjárhagslegum styrkleika og tryggingum sem þeir geta sett fyrir lánum. Vextir í hverjum flokki eru ákveðnir sem álag á hlutaðeigandi kjörvexti (grunnvexti). Jafnframt hefur fjölbreytni inn lánsreikninga aukist.
     —      Afnám síðustu gjaldeyrishaftanna í árslok 1994 en þar með tengdist íslenskur fjármagnsmarkaður erlendum fjármagnsmörkuðum traustari böndum en áður.
     —      Efling hlutabréfamarkaðar.
     —      Lánsfjáröflun ríkissjóðs með markaðsútboðum og samkomulag fjármálaráðuneytis og Seðlabankans um að bankinn veiti ríkissjóði ekki fyrirgreiðslu í formi yfirdráttarlána.
     —      Aukin áhersla fyrirtækja og sveitarfélaga á að afla lánsfjár með sölu skuldabréfa á verðbréfamarkaði í stað hefðbundinna bankalána.
     —      Með aðild að Evrópska efnahagssvæðinu hafa skapast auknir möguleikar erlendra fjármálafyrirtækja til að veita þjónustu hér á landi.
    Árið 1989 var bætt við lög um Seðlabanka Íslands, nr. 36/1986, ákvæði sem heimilar bank anum að fengnu samþykki viðskiptaráðherra að hlutast til um vexti banka og sparisjóða í því skyni að tryggja að raunvextir útlána verði hóflegir og eigi hærri en þeir eru að jafnaði í helstu viðskiptalöndum Íslendinga, svo og til að draga úr óhæfilegum vaxtamun milli inn- og útlána að teknu tilliti til annarra tekna innlánsstofnana. Þrátt fyrir mikla umræðu um vaxtamál af og til á liðnum árum og fullyrðingar um að vextir hér á landi séu mun hærri en í útlöndum hefur ekki verið talin ástæða til að beita þessu lagaákvæði. Á árinu 1993 fór nefnd á vegum við skiptaráðuneytisins yfir vaxtamyndun á lánsfjármarkaði, einkum með tilliti til þess hvort upp bygging og skipulag markaðarins, t.d. víðtæk verðtrygging, hindraði eðlilega vaxtamyndun. Meginniðurstaða nefndarinnar var að svo væri ekki en jafnframt benti nefndin á ýmis atriði sem betur mættu fara. Einkum taldi hún að mikil notkun verðtryggingar í bankakerfinu og ójafnvægi óverðtryggðra og verðtryggðra eigna (útlána) og skulda (innlána) hefði óheppileg áhrif á vaxtamyndun. Einnig benti hún á mikilvægi þess fyrir vaxtamyndun í landinu að opin berir aðilar fullnægðu innlendri lánsfjárþörf sinni sem mest á markaði. Þá benti hún á ýmsar aðrar breytingar sem væru til þess fallnar að bæta vaxtamyndun á fjármagnsmarkaði.
    Nefndin taldi að samanburður á vöxtum hér á landi og erlendis sýndi að útlánsvextir hefðu frá því að vaxtafrelsi komst á verið í hærra lagi en þó ekki í ósamræmi við það sem þekkist í nágrannaríkjum, einkum annars staðar á Norðurlöndum og í smáum Evrópuríkjum. Hún benti þó á að þessi munur hefði farið vaxandi á árinu 1993. Í kjölfar nefndastarfsins gripu ríkisstjórnin og Seðlabankinn til samræmdra markaðsaðgerða í októberlok 1993 og stuðluðu þannig að um 2% lækkun raunvaxta.
    Ein af tillögum nefndarinnar var að vaxtalög yrðu endurskoðuð og í ágúst 1994 skipaði við skiptaráðherra nefnd í því skyni. Í skipunarbréfi hennar segir að við endurskoðun vaxtalaga skuli einkum tekið mið af reynslunni frá setningu þeirra, breytinga á fjármagnsmarkaði á undanförnum árum og ákvæða hliðstæðra laga erlendis. Í þessu sambandi er sérstaklega bent á fyrirkomulag á ákvörðun dráttarvaxta, hvaða vexti úr bankakerfinu Seðlabankinn birtir opinberlega og hvaða meðalvexti hann reiknar út. Nefndin lauk störfum í október 1995 og skilaði viðskiptaráðherra frumvarpi til nýrra heildarlaga um vexti og verðtryggingu. Í nefnd inni sátu: Finnur Sveinbjörnsson skrifstofustjóri, formaður, Eiríkur Guðnason seðlabanka stjóri, tilnefndur af Seðlabanka Íslands, Sveinn Jónsson aðstoðarbankastjóri, tilnefndur af Sambandi íslenskra viðskiptabanka og Sambandi íslenskra sparisjóða, og Þórhallur Arason skrifstofustjóri, tilnefndur af fjármálaráðuneyti. Með nefndinni starfaði Sveinbjörn Hafliða son lögfræðingur í Seðlabanka Íslands.
    Frá því að nefndin lauk störfum hefur frumvarpið verið til skoðunar í viðskiptaráðuneytinu. Ráðuneytið gerði allnokkrar breytingar á frumvarpi vaxtalaganefndarinnar þó svo að frum varpið sem hér birtist byggist að verulegu leyti á vinnu hennar.

Meginefni frumvarpsins.
    Lagt er til að ný lög um vexti, dráttarvexti og verðtryggingu komi í stað vaxtalaganna frá 1987. Vaxtalögunum hefur verið breytt sex sinnum frá því að þau voru sett. Fyrst með lögum nr. 9/1989, síðan lögum nr. 67/1989, lögum nr. 19/1991, lögum nr. 91/1991, lögum nr. 90/1992 og loks með lögum nr. 13/1995. Meðal annars hefur verið bætt við þau tveimur nýjum köflum, um vaxtakjör opinberra fjárfestingarlánasjóða (með lögum nr. 67/1989) og um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár (með lögum nr. 13/1995). Nefndin sem vann að gerð frum varpsins var sammála um að ástæða væri til að breyta fjölmörgum ákvæðum vaxtalaganna, þar á meðal að fella niður kaflann um vaxtakjör opinberra fjárfestingarlánasjóða. Til að auð velda umfjöllun um efnisatriði og tryggja innra samhengi og réttar tilvísanir innan marg breyttra laga taldi nefndin rétt að leggja til að sett yrðu ný heildarlög í stað laganna frá 1987.
    Í frumvarpinu eru lagðar til eftirfarandi meginbreytingar á sviði vaxtamála:
     —      Lagt er til að í stað þess að Seðlabankinn ákveði einhliða dráttarvexti af öllum peningakröfum verði lögaðilum heimilt í lánssamningum að semja um dráttarvexti upp að vissu marki. Lögaðilar hafa samkvæmt frumvarpinu heimild til að semja um álag ofan á al menna vexti (samningsvexti) en álagið má þó ekki vera hærra en 10 hundraðshlutar. Dráttarvextir af peningakröfum í erlendri mynt verða ákveðnir með sama hætti og dráttar vextir af kröfum í innlendri mynt skv. 1. mgr. 9. gr.
     —      Lagt er til að þegar samningsaðilum láist að tilgreina vaxtafót verði miðað við vexti sem Seðlabankinn birtir. Skulu þeir taka mið af lægstu vöxtum á nýjum útlánum hjá viðskipta bönkum, sparisjóðum og öðrum lánastofnunum en ekki veginni meðalársávöxtun af nýjum almennum útlánum hjá viðskiptabönkum og sparisjóðum. Fyrrgreindu vextirnir eru lægri en þeir síðarnefndu. Þykir óeðlilegt að löggjafinn hygli skuldareigendum fyrir ófullnægjandi frágang lánssamninga. Rétt er að benda á að einungis í undantekningartil vikum reynir á þetta ákvæði vaxtalaga. Reynslan er sú að yfirleitt er einhver vaxtafótur tilgreindur ef á annað borð er áskilið að krafa beri vexti.
     —      Aðilar eru hvattir til að semja um ákveðna vexti sín á milli en nota ekki í blindni almenna viðmiðun við vexti á markaðnum, eins og nú tíðkast, t.d. meðalársávöxtun á nýjum almennum útlánum hjá bönkum og sparisjóðum. Þessir meðalvextir eru ýmsum annmörk um háðir. Í fyrsta lagi hefur orðið æ erfiðara fyrir Seðlabankann að velja vogir til að reikna meðalvexti eftir því sem kjörvaxtakerfi banka og sparisjóða hefur orðið fjölbreyti legra. Í öðru lagi eru við útreikning á þessum meðalvöxtum notaðir allir vextir af skulda bréfalánum banka og sparisjóða, þ.e. lánum á lágum vöxtum til traustra aðila með góðar tryggingar og lánum á háum vöxtum til aðila með lakari tryggingar og allir vextir þar á milli. Þessir meðalvextir eru síðan notaðir í ríkum mæli í samningum manna á milli utan bankakerfisins án þess að tillit sé tekið til mismunandi aðstæðna lántakenda. Þetta getur þýtt að aðilar sem taka lán utan bankakerfisins með góðum tryggingum greiða í raun hærri vexti en eðlilegt getur talist. Einnig má finna dæmi um hið gagnstæða. Því er lagt til að í stað þess að reikna út og birta meðalvexti banka og sparisjóða, sem aðilar geta notað í viðskiptum sín á milli, verði Seðlabankanum falið að birta vexti sem taka mið af lægstu vöxtum nýrra útlána viðskiptabanka, sparisjóða og annarra lánastofnana. Ekkert er því til fyrirstöðu að samið sé um tiltekið frávik frá þessum vöxtum eftir aðstæðum hverju sinni.
     —      Lagt er til að vextir af skaðabótakröfum verði hækkaðir frá því sem nú gildir, þ.e. úr vegnu meðaltali vaxta af almennum óbundnum sparisjóðsreikningum hjá bönkum og sparisjóðum í vexti sem Seðlabankinn ákveður til opinberrar birtingar með hliðsjón af lægstu vöxtum af nýjum óverðtryggðum útlánum hjá viðskiptabönkum, sparisjóðum og öðrum lánastofnunum. Miðað við núverandi vaxtastig myndi þessi tillaga frumvarpsins leiða til þess að vextir af skaðabótakröfum hækkuðu úr 0,6% í 9,2%.
     —      Lagt er til að fellt verði brott ákvæði um vaxtakjör opinberra fjárfestingarlánasjóða. Með 6. gr. laga nr. 67/1989 var bætt við vaxtalög kafla um vaxtakjör opinberra fjárfestingar lánasjóða, IV. kafla (17.–19. gr.). Ákvæðum kaflans hefur aðeins einu sinni verið beitt. Í 2. mgr. 18. gr. er kveðið á um að viðskiptaráðherra láti fara fram árlega og oftar ef þurfa þykir athugun á lánskjörum fjárfestingarlánasjóða. Í desember 1993 óskaði viðskipta ráðherra eftir því við Seðlabankann að hann athugaði vaxtakjör fjárfestingarlánasjóðanna. Greinargerð bankans er frá mars 1994. Hún þótti ekki gefa tilefni til þeirra aðgerða sem heimilar eru skv. 19. gr. vaxtalaga, þ.e. að settar yrðu meginreglur um lánskjör fjárfestingarlánasjóðanna. Rétt er að benda á að skv. 7. gr. frumvarpsins ber fjárfest ingarlánasjóðum að tilkynna Seðlabankanum um öll vaxtakjör sín. Telji viðskiptaráð herra þess þörf getur hann óskað eftir því að Seðlabankinn taki saman greinargerð um þau. Auk þess skal bent á að flestir fjárfestingarlánasjóðir lúta nú sömu meginreglum og viðskiptabankar og sparisjóðir, sbr. lög nr. 123/1993, um lánastofnanir aðrar en viðskiptabanka og sparisjóði. Þeir mega þó ekki taka við innlánum. Því þykir óeðlilegt að sérákvæði gildi um vaxtakjör fjárfestingarlánasjóða. Einnig má nefna að á síðustu missirum hefur samkeppni aukist milli innlendra fjárfestingarlánasjóða og erlendra banka og fjárfestingarlánasjóða og verðbréfamarkaðarins. Hvort tveggja dregur enn úr nauðsyn þess að láta sérákvæði gilda um vaxtakjör fjárfestingarlánasjóða.
     —      Loks er lagt til að misneytingarákvæði vaxtalaga og ákvæði um endurgreiðslu á ofteknum vöxtum verði að mestu fellt brott. Ákvæði þessi eiga rætur sínar að rekja til þess tíma þegar ekki ríkti frjálsræði í samningum um vexti. Þörf fyrir ákvæðin nú, þegar frelsi í samningum um vexti hefur fest sig í sessi, er því lítil. Hafa ber í huga að hin almennu misneytingarákvæði hegningarlaga eiga við um samninga um vexti.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.

    Grein þessi, sem afmarkar gildissvið laganna, samsvarar 1. gr. vaxtalaga. Við greinina hef ur verið bætt nýjum málslið um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár, sbr. þá breytingu sem gerð var á vaxtalögum með lögum nr. 13/1995.


Um 2. gr.

    Greinin er samhljóða 2. gr. gildandi vaxtalaga.


Um 3. gr.

    Í 3. gr. gildandi vaxtalaga kemur fram að ákvæði II. kafla og 11.–13. gr. um almenna vexti og dráttarvexti gildi því aðeins að ekki leiði annað af lögum, samningum og venju. Í frum varpinu er tekinn af allur vafi um að 8.–10. gr. frumvarpsins eru ekki frávíkjanlegar.

Um 4. gr.

    1. mgr. er samhljóða 4. gr. gildandi vaxtalaga og þarfnast ekki sérstakra skýringa.
    Í 2. mgr. er nýtt ákvæði sem tekur af skarið um það hvers konar vexti á að greiða þegar ekki er samið um vexti en skyldu til að greiða þá leiðir af venju eða lagafyrirmælum. Gert er ráð fyrir að þessir vextir séu hinir sömu og í 5. gr.
    Í 3. mgr. er líka ný regla. Í gildandi lögum er hvergi tekið fram hvort almennir vextir eigi að leggjast við höfuðstól á tólf mánaða fresti eða ekki. Lagt er til að tekið verði af skarið um það í lögum að ekki verði heimilt að leggja almenna vexti við höfuðstól á tólf mánaða fresti nema um það hafi verið samið, það leiði af venju eða lagafyrirmælum. Ástæðan er sú að lengst af í réttarsögunni hefur það ekki verið heimilt um almenna vexti og það er ekki heimilt samkvæmt gildandi rétti í öðrum norrænum löndum.

Um 5. gr.

    Í athugasemdum við lagafrumvarpið hefur verið rakið að meðalávöxtun af nýjum útlánum viðskiptabanka og sparisjóða sé að ýmsu leyti óheppileg viðmiðun fyrir vexti af peningakröfu þegar enginn sérstakur hundraðshluti er tiltekinn. Í raun er það trassaskapur lánveitanda að semja um vexti en tiltaka ekki vaxtafótinn. Því er óeðlilegt að löggjafinn tryggi tiltölulega háa vexti af slíkum peningakröfum. Af þessum sökum er lagt til að ný viðmiðun verði valin. Þessi nýja viðmiðun eru vextir sem Seðlabankinn birtir á grundvelli 7. gr. frumvarpsins og skulu þeir ákveðnir með hliðsjón af lægstu vöxtum á útlánum hjá viðskiptabönkum, sparisjóðum og öðrum lánastofnunum.
    Eftir að viðskiptabankar og sparisjóðir tóku upp kjörvaxtakerfi hefur fjölbreytileiki vaxta aukist verulega. Við útreikning á meðalvöxtum banka og sparisjóða eru notaðir vextir af út lánum sem veitt eru gegn góðum tryggingum og vextir af útlánum sem veitt eru gegn lakari tryggingum og eru nokkru hærri en hinir fyrrnefndu og vextir þar á milli. Eftir því sem fjöl breytileiki vaxta hefur aukist hefur Seðlabankanum reynst æ erfiðara að útbúa nauðsynlegar vogir. Lægstu vextir samkvæmt þessari grein munu að öllum líkindum verða svipaðir kjör vöxtum viðskiptabanka, sparisjóða og annarra lánastofnana (einkum fjárfestingarlánasjóða), en það eru vextir til traustustu viðskiptavina. Vegið meðaltal af kjörvöxtum óverðtryggðra skuldabréfalána viðskiptabanka og sparisjóða er 9,2% á ári um þessar mundir og 6,2% af verðtryggðum skuldabréfalánum. Þess er að vænta aðilar muni almennt semja um tiltekið álag á þessa vexti, meðal annars eftir því hvaða tryggingar lántakandi setur fyrir greiðslu skuld arinnar. Meðalvextir af nýjum, almennum, óverðtryggðum skuldabréfalánum viðskiptabanka og sparisjóða, sem eru núgildandi viðmiðunarvextir vaxtalaga fyrir óverðtryggðar peninga kröfur og mikið notaðir í viðskiptum utan bankakerfisins, voru 3,7% hærri en kjörvextir viðskiptabanka og sparisjóða á árinu 1997. Hvað verðtryggð skuldabréfalán varðar var þessi vaxtamunur 2,8%.

Um 6. gr.

    Í 7. gr. vaxtalaga, sbr. 2. gr. laga nr. 67/1989, segir að vextir af kröfum um skaðabætur skuli á hverjum tíma vera jafnháir vegnu meðaltali vaxta af almennum óbundnum sparisjóðs reikningum hjá viðskiptabönkum og sparisjóðum. Í athugasemdum við greinina í frumvarpinu sem varð að vaxtalögum segir að þessi viðmiðun sé valin í trausti þess að vextirnir fylgi nokk urn veginn verðbólgu. Hræringar í vaxtamálum á undanförnum missirum hafa leitt til þess að viðskiptabankar og sparisjóðir leggja sívaxandi áherslu á sérkjarareikninga, ýmist óbundna eða bundna. Eru óbundnir sparisjóðsreikningar mjög á undanhaldi. Vegið meðaltal vaxta af óbundnum sparisjóðsreikningum er um þessar mundir 0,6% sem er nokkru lægra en verðbólga. Reynslan sýnir að þessir vextir eru yfirleitt lægri en verðbólga og næstlægstu vextir í bankakerfinu. Aðeins vextir af tékkareikningum eru lægri.
    Lagt er til að almennir vextir á skaðabótakröfur sem falla undir lögin verði jafnir vöxtum skv. 1. mgr. 5. gr. Undir lögin falla skaðabætur innan samninga og þær skaðabætur utan samn inga sem ekki falla undir skaðabótalög (líkamstjón, miski, þjáningar og bætur fyrir missi framfæranda). Fyrir gildistöku laga nr. 67/1989 voru vextir af þessum skaðabótakröfum hinir sömu og vegið meðaltal af almennum útlánum. Telja verður að ranglæti sé í því fólgið að sá sem á skaðabótakröfu en getur af einhverjum ástæðum ekki fylgt henni fram, þ.e. gjalddagi hennar í skilningi laganna er ekki kominn, þurfi að sæta því að fá ekki nema sparisjóðsvexti á kröfu sína. Eðlilegt er að tjónvaldur greiði hærri vexti. Lagt er til að miðað verði að lægstu vexti almennra útlána skv. 1. mgr. 5. gr., sem t.d. eru 9,2% nú.

Um 7. gr.

    Samkvæmt 8. gr. gildandi vaxtalaga, sbr. 3. gr. laga nr. 67/1989, ber viðskiptabönkum og sparisjóðum að tilkynna Seðlabankanum án tafar um öll vaxtakjör og breytingar á þeim í því formi sem bankinn krefst. Jafnframt ber verðbréfafyrirtækjum að tilkynna bankanum um breytingar á ávöxtunarkröfu verðbréfasjóða og eignarleigufyrirtækjum um breytingar á eign arleigukjörum. Í greininni er ekki tekið fram að slíkum upplýsingum þurfi að skila til Seðla bankans með ákveðnum fyrirvara. Sú venja hefur skapast að viðskiptabankar og sparisjóðir breyta vöxtum einungis 1., 11. og 21. dag mánaðar og áformaðar breytingar eru tilkynntar Seðlabankanum daginn áður en þær taka gildi.
    Í 24. gr. laga nr. 36/1986, um Seðlabanka Íslands, eru afdráttarlaus ákvæði um skyldu aðila til að veita bankanum upplýsingar um atriði er varða hlutverk hans. Þrátt fyrir þetta almenna ákvæði þykir eðlilegt að í vaxtalögum séu ákvæði um skyldu aðila til að upplýsa Seðla bankann um vaxtakjör sín, enda skipta slíkar upplýsingar sköpum fyrir framkvæmd annarra ákvæða vaxtalaga.
    Í þessari grein frumvarpsins eru lagðar til nokkrar breytingar frá ákvæðum 8. gr. vaxtalaga. Í fyrsta lagi er lagt til að upplýsingaskylda um vexti nái til annarra lánastofnana auk viðskipta banka og sparisjóða. Hingað til hafa þær almennt ekki þurft að veita Seðlabankanum upplýsingar um vaxtakjör sín með sama hætti og viðskiptabankar og sparisjóðir. Eignarleigu fyrirtæki falla einnig undir hugtakið lánastofnun þannig að þeim ber áfram skylda til að upplýsa Seðlabankann um vaxtakjör sín. Hins vegar er lagt til að skylda til að upplýsa um ávöxtunarkröfu verðbréfasjóða falli brott, enda hafa þær upplýsingar ekkert gildi fyrir fram kvæmd vaxtalaga. Þó skal tekið fram að telji Seðlabankinn nauðsynlegt að afla slíkra upplýs inga getur hann að sjálfsögðu gert það á grundvelli 24. gr. seðlabankalaga.
    Í öðru lagi er skýrt tekið fram að upplýsingar um vexti verði að liggja fyrir með þeim fyrir vara sem Seðlabankinn krefst. Eðli máls samkvæmt eru ákvarðanir um vaxtabreytingar yfir leitt ekki teknar með löngum fyrirvara og því eðlilegt að Seðlabankinn gæti hófs í kröfum sín um um fyrirvara tilkynninganna.
    Í þriðja lagi eru lagðar til grundvallarbreytingar á því ákvæði 8. gr. vaxtalaga er fjallar um birtingu Seðlabankans á vöxtum viðskiptabanka og sparisjóða. Samkvæmt gildandi ákvæði skal bankinn fyrir lok mánaðar birta í Lögbirtingablaði öll almenn vaxtakjör þessara aðila. Eftir því sem kjörvaxtakerfi viðskiptabanka og sparisjóða hefur þróast á undanförnum árum og fjölbreytileiki vaxta aukist hafa þessar auglýsingar aukist. Jafnframt hefur orðið æ erfiðara að bera vexti einstakra viðskiptabanka og sparisjóða saman, svo sem vegna ólíkra skilmála innlánsreikninga og ólíkrar uppbyggingar kjörvaxtakerfa útlána. Leiða má að því líkur að auglýsingar sem þessar hafi verið gagnlegar fyrstu árin eftir að vextir voru gefnir frjálsir en að heldur hafi dregið úr gagnsemi þeirra á síðustu árum og missirum. Við framkvæmd núgildandi vaxtalaga hefur einungis birting meðalvaxta af óbundnum sparisjóðsreikningum (7. gr.), meðalvaxta af nýjum almennum skuldabréfalánum (5. gr.) og hæstu vaxta af almennum skuldabréfalánum (6. gr.) gildi. Þessir vextir gilda samkvæmt ákvæðum laganna næsta mánuðinn eftir að þeir birtast eða uns þeir eru næst birtir. Aðrir vextir eru eingöngu birtir til upplýsingar.
    Í stað þess að Seðlabankinn birti öll almenn vaxtakjör viðskiptabanka og sparisjóða er lagt til að lögfest verði að bankinn birti þá vexti sem gildi hafa við framkvæmd laganna. Auk þess getur bankinn að sjálfsögðu birt aðra vexti viðskiptabanka, sparisjóða og annarra lána stofnana sem hann telur heppilegt að birtir séu opinberlega. Þá er einkum haft í huga að birting tiltekinna vaxta verði til að stuðla að betri vaxtamyndun á lánsfjármarkaði. Rétt er að vekja athygli á því að í 2. mgr. 8. gr. vaxtalaga er kveðið á um að birta skuli vaxtakjör sparisjóðanna sameiginlega. Skv. 52. gr. laga nr. 113/1996, um viðskiptabanka og sparisjóði, er Spari sjóðabanka Íslands hf. heimilt að leggja fyrir sparisjóðina leiðbeinandi tillögur um vexti og þjónustugjöld, enda brjóti slíkt ekki í bága við ákvæði samkeppnislaga. Hver einstakur sparisjóður ákveður síðan sjálfur vexti og þjónustugjöld sín. Með hliðsjón af þessu er lagt til að fellt verði niður núgildandi ákvæði um sameiginlega birtingu á vaxtakjörum sparisjóðanna.
    Lokamálsliður 2. mgr. þessarar greinar frumvarpsins er nýjung. Nauðsynlegt þykir að fyrir liggi með aðgengilegum hætti upplýsingar um þá vexti sem Seðlabankanum ber að birta sam kvæmt vaxtalögum. Því er lagt til að í upphafi hvers árs birti Seðlabankinn í Stjórnartíðindum töflu er sýni þessa vexti eins og þeir voru á hverjum tíma á næstliðnu ári. Hér er um að ræða fjórar talnaraðir með tólf gildum hver hið mesta:
     1.      Lægstu vextir af óverðtryggðum peningakröfum, skv. 1. mgr. 5. gr.
     2.      Lægstu vextir af verðtryggðum peningakröfum, skv. 2. mgr. 5. gr.
     3.      Hundraðshluti sem bætist við vexti skv. 1. tölul. af peningakröfum þegar taka dráttarvaxta hefst.
     4.      Samtala af hundraðshluta skv. 3. tölul. og vöxtum skv. 1. tölul., þ.e. dráttarvextir skv. 1. mgr. 9. gr.
    Auk þessara vaxta kann að þykja heppilegt að Seðlabankinn birti einnig talnaröð er sýni vexti af skaðabótakröfum á hverjum tíma.


Um 8. gr.

    Greinin er samhljóða 9. gr. vaxtalaga, sbr. 4. gr. laga nr. 67/1989.


Um 9. gr.

     Í þessari grein eru þrjár meginbreytingar frá dráttarvaxtaákvæðum 10. og 11. gr. vaxta laga. Í fyrsta lagi er lagt til að lögaðilar fái heimild til að semja um álag ofan á almenna vexti (samningsvexti) í lánssamningum í stað þess að dráttarvextir séu ákveðnir einhliða af Seðla banka. Í öðru lagi er lagt til að dráttarvextir sem Seðlabankinn ákveður verði hinir sömu hvort heldur peningakrafan er í innlendri eða erlendri mynt. Í þriðja lagi er lögð til breyting á ákvörðun dráttarvaxta þannig að Seðlabankinn geti ákveðið dráttarvexti án þess að taka mið af vegnu meðaltali ársávöxtunar á nýjum almennum útlánum hjá viðskiptabönkum og spari sjóðum.
    Skv. 1. mgr. skulu dráttarvextir ákveðnir af Seðlabanka með því að leggja saman lægstu vexti á nýjum óverðtryggðum útlánum hjá viðskiptabönkum, sparisjóðum og öðrum lánastofnunum skv. 1. mgr. 5. gr. og hæfilegt álag að mati Seðlabankans. Lagt er til að hámarksálag verði 10%. Sú tala er valin með hliðsjón af afstöðunni sem ætla má að sé um þessar mundir milli dráttarvaxta og vaxta skv. 5. gr. frumvarpsins. Dráttarvextir eru um þessar mundir 16,5% á ári en síðarnefndu vextirnir að líkindum um 9% ef tekið er mið af núgildandi kjörvöxtum. Núverandi aðstæður fela því í sér að umrætt álag sé um 7,5%. Hámarksálagið í greininni, 10%, veitir því nokkurt svigrúm til að hækka dráttarvexti frá því sem nú er, ef þörf krefur. Ekki þykir eðlilegt að leggja til að lögfest verði ákveðið lágmarksálag.
    Núgildandi regla um ákvörðun dráttarvaxta kveður á um að hlutfallið milli dráttarvaxta, að viðbættri tölunni 100, og ávöxtunar nýrra almennra útlána skv. 2. mgr. 10. gr. vaxtalaga, að viðbættri tölunni 100, sé á bilinu 1,02 til 1,06. Meðalávöxtun ársávöxtunar á nýjum almennum útlánum hjá viðskiptabönkum og sparisjóðum er nú 13,6%. Það þýðir að svigrúm Seðlabankans til að ákveða dráttarvexti liggur á bilinu 15,2% til 20,4%. Eins og fyrr segir eru dráttarvextir nú 16,5%.
    Skv. 2. mgr. er heimilt í lánssamningum lögaðila að semja um dráttarvexti sem álag ofan á almenna vexti (samningsvexti). Álagið má þó ekki vera hærra en 10 hundraðshlutar ofan á almenna vexti. Talið er nauðsynlegt að auka svigrúm lögaðila til að semja um dráttarvexti, m.a. vegna aukinnar alþjóðavæðingar á fjármagnsmarkaði. Fyrirtæki eiga nú greiðari aðgang en áður að alþjóðlegum lánsfjármarkaði.

Um 10. gr.

    Greinin er samhljóða 12. gr. vaxtalaga og þarfnast ekki sérstakra skýringa.

Um 11. gr.

    Greinin er í samræmi við 13. gr. vaxtalaga. Rétt þykir að taka af allan vafa um að ekki skuli reikna dráttarvexti á meðan skuldari neytir lögmætra vanefndaúrræða gagnvart kröfuhafanum, en túlkun núgildandi ákvæðis með tilliti til þessa hefur verið nokkuð á reiki. Greinin þarfnast ekki sérstakra skýringa.

Um 12. gr.

    Greinin á sér fyrirmynd í 14. gr. vaxtalaga, sbr. 5. gr. laga nr. 67/1989 og 160. gr. laga nr. 91/1991. Eðlilegt þykir að kveða á um sambærilega reglu vegna almennra vaxta og nú gildir um dráttarvexti, sbr 1. mgr.

Um 13. gr.

    Greinin byggist á 15. gr. vaxtalaga. Í tilvísun til 1. mgr. 9. gr. felst að dráttarvextir skuli vera samtala vaxta skv. 6. gr. laganna og ákveðins hundraðshluta samkvæmt ákvörðun Seðla banka Íslands. Vert er að vekja athygli á því að bætt hefur verið inn í niðurlag greinarinnar orðunum „ef sérstaklega stendur á“. Talið er nauðsynlegt til að koma í veg fyrir frjálslega túlkun á þessu ákvæði að hnykkja á því að aðeins þegar sérstaklega stendur á sé heimilt að hreyfa við upphafstíma dráttarvaxta á skaðabótakröfur.

Um 14.–18. gr.

    Með lögum nr. 13/1995 var felldur brott VII. kafli laga nr. 13/1979, um stjórn efnahags mála o.fl. („Ólafslaga“). Í honum voru ákvæði um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár. Þess í stað var bætt við vaxtalög nýjum kafla um það efni (20.–24. gr.). Þessar greinar frumvarps ins eru samhljóða tilsvarandi greinum vaxtalaga með þeim undantekningum að heimildir til að binda skuldbindingar í íslenskum krónum við gengi erlendra gjaldmiðla eru þrengdar og tekinn af allur vafi um að Seðlabankanum sé heimilt að fengnu samþykki viðskiptaráðherra að leggja bann við verðtryggingu á tilteknu tímamarki.
    Frá 1960 var almennt óheimilt að binda skuldbindingar í íslenskum krónum við gengi er lendra gjaldmiðla. Þessi almenna regla var tekin upp í Ólafslög við setningu þeirra 1979. Með breytingum á þeim árið 1989 var þó heimilað að gengisbinda skuldbindingar í íslenskum krónum með sérstökum gengisvísitölum, ECU og SDR, sem Seðlabankinn birti. Þessi breyting var liður í auknu frelsi í gjaldeyrismálum á sínum tíma. Gengisbinding á grundvelli þessara vísitalna hefur notið takmarkaðrar hylli.
    Samkvæmt Ólafslögum (og eldri lögum) giltu sérstakar reglur um svokölluð erlend endur lán, þ.e. lán innlends aðila til annars innlends aðila á lánsfé sem hann aflaði erlendis. Höfuð stóll slíkra lána var ýmist tilgreindur í erlendum gjaldmiðli eða íslenskum krónum. Mun fyrr greinda fyrirkomulagið vera mun algengara. Um slík lán gilti að heimilt var að áskilja að innlenda lánið ásamt vöxtum væri endurgreitt á sama gengi og erlenda lánið. Þá var áskilið að væri erlenda lánið endurgreitt fyrr eða á styttri tíma en innlenda lánið væri óheimilt að beita hærra gengi við innheimtu innlenda lánsins. Þetta fyrirkomulag getur gengið þegar sérhvert erlent lán er endurlánað til tiltekinna innlendra aðila, þ.e. lán stendur á móti láni. Eftir því sem frelsi í gjaldeyrismálum hefur aukist og starfsemi innlendra lánastofnana þróast hefur þetta hins vegar riðlast. Lán sem þær veita og bundin eru gengi erlendra gjaldmiðla eru veitt „úr einum lánapotti“ sem sífellt er verið að endurfjármagna. Þá hefur orðið æ algengara að höfuðstóll erlendra endurlána sé ekki tilgreindur í íslenskum krónum heldur erlendum gjaldmiðli. Þótti því rétt að fella niður ákvæði Ólafslaga um erlend endurlán með lögum nr. 13/1995.
    Eftir að verðtryggingakafli Ólafslaga var felldur brott með lögum nr. 13/1995 og verð tryggingarákvæðum þess í stað bætt við vaxtalög hafa komið fram mismunandi skoðanir á því hvaða reglur gildi um gengisbindingu skuldbindinga í íslenskum krónum. Þetta stafar af því að orðalag þess ákvæðis vaxtalaga (20. gr.) sem fjallar um gengisbindingu er annað en orðalag tilsvarandi ákvæðis Ólafslaga. Í þeim fyrrnefndu segir „… þar sem áskilið er að greiðslurnar skuli breytast í hlutfalli við verðvísitölu eða vísitölu gengis á erlendum gjaldmiðli, sbr. 21. gr.“ Í Ólafslögum segir aftur á móti „… með ákvæðum þess efnis, að greiðslur, þar með taldir vextir, skuli breytast í hlutfalli við verðvísitölu eða gengi erlends gjaldmiðils, sbr. 39. gr.“ Annars vegar er því nú haldið fram að almennt sé heimilt að binda skuldbindingar í íslenskum krónum við gengi erlendra gjaldmiðla eins og það er á hverjum tíma (dagsgengi). Samkvæmt þessari túlkun taka ákvæði laganna einungis til gengisbindingar sem felst í því að nota gengisvísitölu en ekki til gengisbindingar á grundvelli dagsgengis. Hins vegar er því haldið fram að þrátt fyrir breytingu á orðalagi þá gildi enn sama almenna regla og í Ólafslögum og að óheimilt sé að gengisbinda skuldbindingar í íslenskum krónum nema með gengisvísitölum. Nefndin sem vann að gerð frumvarpsins fór ítarlega yfir þetta atriði og aflaði álitsgerðar frá Jóni Sveinssyni hdl. Niðurstaða Jóns og nefndarinnar var sú að síðari túlkunin væri rétt.
    Rétt er að vekja athygli á því að ákvæði um almennt bann við gengisbindingu skuldbindinga í íslenskum krónum nema með sérstökum gengisvísitölum (ef erlend endurlán eru undanskilin) ná ekki til allra innlendra aðila. Þannig hefur ríkissjóður búið við rýmri heimildir. Í lögum nr. 79/1983, um innlenda lánsfjáröflun ríkissjóðs, er kveðið á um að ríkissjóður geti gefið út ríkisskuldabréf og spariskírteini með verðtryggingu miðað við gengi erlendra gjaldmiðla eða SDR. Þetta hefur ríkissjóður nýtt sér og gefið út skuldabréf í íslenskum krónum sem eru bundin gengi ECU og SDR.
    Nefnd sú sem vann að gerð frumvarps þessa fjallaði um hvort leyfa ætti að skuldbindingar í íslenskum krónum væru bundnar gengi erlends gjaldmiðils og þá með hvaða hætti. Sam kvæmt upplýsingum sem nefndin aflaði erlendis tíðkast almennt ekki að gefin séu út skulda bréf í innlendum gjaldmiðli sem bundin eru gengi erlends gjaldmiðils. Helst má finna dæmi um þetta í ríkjum Suður-Evrópu og Mið- og Suður-Ameríku þar sem innlendir aðilar bera fremur lítið traust til innlenda gjaldmiðilsins. Algengast er að gengisbinding sé með þeim hætti að skuldabréfin eru gefin út í erlendum gjaldmiðli. Þannig eru ECU-bréf sem ríkissjóðir Englands og Frakklands gefa út og selja innanlands í ECU en ekki í breskum pundum eða frönskum frönkum sem bundin eru gengi ECU. Þegar slík bréf eru keypt eiga sér því stað gjaldeyrisviðskipti eða ígildi þeirra. Hið sama gildir þegar bréfin eru endurgreidd eða vextir greiddir.
    Eftir að gjaldeyrisviðskipti voru að fullu gefin frjáls í árslok 1994 hafa aðstæður gerbreyst hér á landi. Minni þörf er en áður fyrir ákvæði um gengisbindingu skuldbindinga í íslenskum krónum. Vilji einstaklingur eða fyrirtæki gengisbindingu er ekkert því til fyrirstöðu að viðkomandi geri samning í erlendum gjaldmiðli, kaupi verðbréf í erlendum gjaldmiðli eða leggi sparifé sitt inn á gjaldeyrisreikning. Við þessar aðstæður er því orðið tímabært að þrengja heimildir til gengisbindingar og koma á þeirri almennu reglu að skuldbindingar í ís lenskum krónum verði ekki bundnar við gengi erlendra gjaldmiðla.
    Samkvæmt 14. gr. og 1. mgr. 15. gr. frumvarpsins verður ekki heimilt að binda skuldbind ingar í íslenskum krónum við dagsgengi erlendra gjaldmiðla. Er talið rétt að taka af allan vafa þar að lútandi. Hins vegar gæti Seðlabankinn á grundvelli 2. mgr. 15. gr. gefið út sérstakar gengisvísitölur eins og nú tíðkast og heimilað gengisbindingu á grundvelli þeirra að fengnu samþykki viðskiptaráðherra. Þótt nefndin hafi gengið frá ákvæðinu með þessum hætti mælti hún engu síður með því að heimildin yrði ekki notuð. Því er í bráðabirgðaákvæði III kveðið á um hvernig fara skuli með skuldbindingar í íslenskum krónum sem þegar hefur verið stofnað til og eru bundnar gengisvísitölum.
    Talið er að samningar með viðmiðun við gengisvístölu á grundvelli ákvæðisins í vaxtalög um séu mjög fáir. Í árslok 1997 voru t.d. aðeins um 46 millj. kr. á gengisbundnum krónu reikningum í viðskiptabönkum og sparisjóðum en svo eru nefndir þeir innlánsreikningar sem viðmiðun hafa við framangreindar gengisvísitölur. Í bráðabirgðaákvæði III er kveðið á um hvernig farið skuli með innstæður og samninga af þessu tagi sem þegar eru í gildi.
    Frá því að verðtrygging var almennt heimiluð með setningu „Ólafslaga“ 1979 hafa orðið miklar breytingar á íslenskum fjármagnsmarkaði og í gjaldeyrismálum. Ný sparnaðar- og lánsform hafa komið til sögunnar og gjaldeyrisviðskipti hafa verið gefin frjáls. Þá hefur litið dagsins ljós ný tegund fjármálasamninga, afleiður (e. derivatives) sem notaðar eru til að draga úr þeirri áhættu sem felst t.d. í tiltekinni verðbréfaeign, kröfueign eða útistandandi skuldum eða keyptar í þeirri von að hagnast á markaðssveiflum. Hér má nefna samninga um vaxtaskipti, gjaldmiðlaskipti og valrétt og ýmiss konar framvirka samninga, svo sem um gjald miðla. Allar þessar breytingar vekja upp spurningar um gildissvið og gagnsemi opinberra reglna um verðtryggingu fjárskuldbindinga.
    Nefndin sem samdi frumvarpið var þeirrar skoðunar að opinberar reglur um verðtryggingu fjárskuldbindinga þjóni fyrst og fremst þeim tilgangi að verja almennt sparifé og lánsfé lands manna fyrir rýrnum af völdum innlendrar verðbólgu eins og hún er venjulega mæld, þ.e. sem meðaltalsbreyting á verði í stóru úrtaki vöru og þjónustu. Þeim hafi hins vegar ekki verið ætlað að hindra eðlilega þróun á fjármagnsmarkaði. Vegna eðlis afleiðusamninga og annarra fjármálasamninga af því tagi má ljóst vera að þeir falla ekki undir ákvæði laganna. Hið sama gildir um viðmiðun skuldaskjala við hlutabréfavísitölu eða aðra slíka vísitölu sem ekki verður talin verðvísitala í sama skilningi og vísitala neysluverðs.
    Rétt er að vekja athygli á því að með breytingunni á vaxtalögum með lögum nr. 13/1995 leysti vísitala neysluverðs lánskjaravísitölu af hólmi frá og með 1. apríl 1995. Þetta endur speglast í ákvæðum 18. gr. frumvarpsins sem samsvara 24. gr. gildandi vaxtalaga, sbr. e-lið 1. gr. laga nr. 13/1995. Í þessu ákvæði frumvarpsins felst því ekki afturvirkni þótt svo mætti ætla þegar litið er til dagsetningarinnar í ákvæðinu.
    Þá er í 4. mgr. 15. gr. tekinn af allur vafi um að Seðlabankanum sé heimilt að fengnu sam þykki viðskiptaráðherra að leggja bann við verðtryggingu á tilteknu tímamarki.

Um 19. gr.

     Í 1. mgr. er mælt fyrir um það að hver sem af ásetningi eða stórfelldu gáleysi áskilur sér hærri dráttarvexti en leyfilegt er samkvæmt lögunum skuli sæta sektum eða fangelsi allt að einu ári.
    Eins og fram kemur í almennum athugasemdum við lagafrumvarpið er lagt til að misneyt ingarákvæði VI. kafla núgildandi laga verði felld brott. Ákvæði þessi eiga rætur sínar að rekja til þess tíma þegar ekki ríkti frjálsræði í samningum um vexti. Hagnýt þýðing ákvæðanna nú, þegar frelsi í samningum um vexti hefur fest sig í sessi, er því lítil.
    Í 25. gr. gildandi vaxtalaga er regla sem mælir fyrir um sektir, varðhald eða fangelsi allt að einu ári fyrir þann sem af ásetningi eða stórfelldu gáleysi hagnýtir sér á óréttmætan hátt fjárþröng viðsemjanda síns eða aðstöðumun þeirra til þess að áskilja sér vexti eða annað endurgjald umfram gildandi vaxtamörk sambærilegra útlánsvaxta hjá viðskiptabönkum og sparisjóðum á þeim tíma sem til skuldar er stofnað. Reglan samkvæmt vaxtalögunum er því sú að heimilt er að semja um hærri vexti en hin svonefndu gildandi vaxtamörk eru, en ef það er gert á þeim huglægu forsendum sem mælt er fyrir um í ákvæðinu er það refsivert. Í raun eru engin skýr vaxtamörk samkvæmt lögunum, a.m.k. er mjög hæpið að þau mörk séu svo áþreifanleg að þau séu heppileg viðmiðun um það hvenær háttsemi er refsiverð eða ekki.
    Tilvist þessa ákvæðis í vaxtalögunum verður að skoða í ljósi þess að verið var í fyrsta sinn í lögum í langan tíma að veita frelsi til að semja um almenna vexti. Það var því ekki óeðlilegt að í lögunum væri sérstakt refsiákvæði sem ætti við þegar menn misnotuðu það frelsi sem veitt var með lögunum. Í skýringum í greinargerð með þessu ákvæði í frumvarpi því sem síðar varð að vaxtalögum segir m.a. að markmiðið með ákvæðinu hafi verið það að veita bæði lánastofnunum og almenna lánamarkaðnum hæfilegt svigrúm til athafna og þróunar en veita lántakendum jafnframt viðunandi vernd. Hagnýt not þessa ákvæðis hafa hins vegar verið óveruleg. Hafa ber í huga að misneytingarákvæði almennra hegningarlaga veita refsivernd á þessu sviði sem öðrum. Raunar taldi nefndin sem vann að gerð frumvarpsins heppilegra að kanna breytingar á almennum hegningarlögum væri til þess ástæða.

Um 20. gr.

    Með tilliti til þess að meginákvæði III. kafla frumvarpsins um ákvörðun dráttarvaxta eru ekki frávíkjanleg þykir rétt að kveða á um að samningar sem fela í sér óheimila dráttarvaxta töku séu ógildir. Ákvæðið á sér fyrirmynd í 27. gr. núgildandi laga.

Um 21. gr.

    Greinin þarfnast ekki sérstakra skýringa. Rétt er þó að undirstrika að frumvarpið felur ekki í sér afturvirkt frelsi til að ákveða dráttarvexti.

Um ákvæði til bráðabirgða I og II.

    Ákvæðin þarfnast ekki sérstakra skýringa. Í þeim er leitast við að taka á öllum þeim til vikum sem upp geta komið þegar skipt er úr einni viðmiðun vaxtalaga yfir í aðra.

Um ákvæði til bráðabirgða III.

    Ákvæðið tekur fyrst og fremst til innstæðna á krónureikningum í viðskiptabönkum og sparisjóðum sem verðtryggðir eru með þessum hætti (um 46 millj. kr. í árslok 1997). Sam kvæmt meginreglu frumvarpsins verður óheimilt að stofna nýja slíka reikninga, nema til komi birting gengisvísitölu á grundvelli 2. mgr. 15. gr. Þess er að vænta að viðskiptabankar og sparisjóðir bjóði eigendum þessara innstæðna að breyta þeim, t.d. í innstæður á gjaldeyris reikningi. Til áréttingar er tekið fram í 3. málsl. að óheimilt sé að taka við nýjum innlánum á þá reikninga sem um ræðir, þ.e. reikninga sem stofnaðir hafa verið fyrir gildistöku laganna.



Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:

Umsögn um frumvarp til laga um vexti,
dráttarvexti og verðtryggingu.

    Með frumvarpi þessu eru lagðar til nokkrar breytingar á núverandi vaxtalögum. Mikilvægasta breytingin er sú að lagt er til að svigrúm verði skapað fyrir lögaðila að semja um dráttarvexti. Álag ofan á samningsvexti má þó í öllum tilfellum ekki verða hærra en 10 af hundraði. Þá eru önnur ákvæði lögð til sem flest miða að því að afnema síðustu leifar af inngripum stjórnvalda í ákvörðun vaxta. Í 7. gr. er lagt til að Seðlabanki Íslands skuli birta upplýsingar um lægstu vexti útlána og dráttarvexti og skulu upplýsingarnar byggðar á vaxtakjörum banka, sparisjóða og annarra lánastofnana. Þessi upplýsingasöfnun er mjög lík því sem Seðlabankinn hefur annast til þessa þannig að kostnaðarauki bankans af þessum sökum verður óverulegur.
    Ekki verður séð að samþykkt frumvarpsins hafi kostnað í för með sér fyrir ríkissjóð.