Ferill 347. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1033 – 347. mál.
Frumvarp til laga
um breyting á lögum nr. 97/1987, um vörugjald, með síðari breytingum.
(Eftir 2. umr., 25. mars.)
1. gr.
a. Við greinina bætast tveir nýir málsliðir sem orðast svo: Skattstjórar annast álagningu vörugjalds vegna innlendrar framleiðslu og innflutnings aðila sem skráðir eru skv. 5. gr. Fjármálaráðherra getur ákveðið að fela einstökum skattstjórum að annast eftirlit, fram
b. Við bætist ný málsgrein sem orðast svo:
Skattstjóri og framleiðendur vöru geta óskað eftir ákvörðun tollstjóra um tollflokkun vöru samkvæmt ákvæðum 142. gr. tollalaga. Skattstjóri og framleiðandi geta skotið ákvörðun tollstjóra um tollflokkun vöru til ríkistollanefndar, sbr. 101. gr. tollalaga. Ákvörðun tollyfirvalda um tollflokkun vöru er bindandi fyrir framleiðanda og skattyfir
2. gr.
a. 1. mgr. orðast svo:
Hvert uppgjörstímabil aðila sem skráðir eru skv. 2. mgr. 4. gr. er tveir mánuðir, janúar og febrúar, mars og apríl, maí og júní, júlí og ágúst, september og október, nóvember og desember. Gjalddagi hvers uppgjörstímabils er 28. dagur annars mánaðar eftir lok þess.
b. Á eftir orðunum „skv. 5. gr.“ í 2. málsl. 3. mgr., 2. málsl. 4. mgr. og 2. málsl. 5. mgr. kemur: eða til framleiðenda samkvæmt heimild í 10. gr.
c. Við 5. mgr. bætist nýr málsliður sem orðast svo: Um málsmeðferð fer eftir ákvæðum laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum.
3. gr.
Skattstjóri skal veita framleiðendum vöru, sem nota í framleiðslu sína hráefni eða efnivöru sem ber vörugjald, heimild til að kaupa af innflytjendum, innlendum framleiðendum og aðilum sem skráðir eru skv. 5. gr. hráefni eða efnivöru án vörugjalds. Slík heimild veitir framleiðanda jafnframt heimild til endurgreiðslu á vörugjaldi af hráefni og efnivöru sem hann hefur sjálfur flutt til landsins í samræmi við ákvæði 2. mgr. Í umsókn til skattstjóra skal m.a. tilgreina um hvers kyns framleiðslu er að ræða og til hvaða hráefna eða efnivöru óskað er að heimildin nái.
Innflytjandi getur á gjalddaga hvers uppgjörstímabils fengið endurgreitt vörugjald af vörum sem hann hefur flutt til landsins en hafa á uppgjörstímabili annaðhvort verið seldar án vöru
Heimild samkvæmt þessari grein nær einungis til hráefnis eða efnivöru sem verður hluti af hinni endanlegu framleiðsluvöru. Heimildin nær hvorki til kaupa eða innflutnings á efnivörum til byggingar eða viðhalds á fasteignum né til nýsmíði eða viðgerða á ökutækjum.
4. gr.
a. Á eftir orðinu „tollalaga“ kemur: um innfluttar vörur.
b. Á eftir orðinu „virðisaukaskatt“ kemur: um innlendar framleiðsluvörur.
5. gr.
a. Eftirfarandi tollskrárnúmer fellur brott úr A-lið viðaukans: 2106.9024.
b. Eftirfarandi tollskrárnúmer falla brott úr B-lið viðaukans: 2202.1002 og 2202.9002.
c. Eftirfarandi tollskrárnúmer fellur brott úr E-lið viðaukans: 8517.1901.
6. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
Þrátt fyrir ákvæði a-liðar 2. gr. laga þessara skal fyrsta uppgjörstímabil vörugjalds sam