Ferill 611. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1038 – 611. mál.



Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um sendiráð Íslands í Brussel.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.



     1.      Hvernig er háttað skipulagi sendiráðs Íslands í Brussel?
     2.      Hvaða starfsmenn vinna í sendiráðinu á vegum utanríkisráðuneytisins og/eða annarra ráðuneyta og opinberra stofnana? — Óskað er eftir að tilgreint verði á hvers vegum við komandi starfsmaður starfar og hvaða ráðuneyti eða stofnun greiðir laun hans og annan kostnað.
     3.      Hver var heildarstarfsmannafjöldi sendiráðsins og heildarkostnaður við rekstur þess árið 1997?
     4.      Hver er stefna utanríkisráðuneytis/ríkisstjórnar um frekari þróun sendiráðsins í Brussel?


Skriflegt svar óskast.