Ferill 604. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1058 – 604. mál.



Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 38 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

Frá meiri hluta sjávarútvegsnefndar (ÁRÁ, EOK, HjÁ, VS, VE, GHall).



1.      Við 1. gr.
       a.      5. efnismgr. orðist svo:
                 Veiði fiskiskip minna en 50% af samanlögðu aflamarki sínu í þorskígildum talið tvö fiskveiðiár í röð fellur veiðileyfi þess og aflahlutdeild niður og skal aflahlutdeild annarra skipa í viðkomandi tegundum hækka sem því nemur. Skal við mat á þessu hlut falli miðað við verðmæti einstakra tegunda í aflamarki skips samkvæmt ákvörðun ráðu neytis í upphafi fiskveiðiárs. Viðmiðunarhlutfall, sem ákveðið er í þessari málsgrein, lækkar þó um 5% fyrir hverja fulla 30 daga sem skipi er haldið til veiða utan fiskveiði landhelgi Íslands á fiskveiðiárinu á þeim tegundum sem ekki hefur verið samið um veiðistjórn á.
       b.      Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                 Á hverju fiskveiðiári er einungis heimilt að flytja af fiskiskipi aflamark, umfram afla mark sem flutt er til skips, sem nemur 50% af samanlögðu aflamarki sem fiskiskipi er úthlutað í upphafi fiskveiðiárs á grundvelli aflahlutdeildar þess. Í þessu sambandi skal aflamark metið í þorskígildum á grundvelli verðmætastuðla sem ráðherra ákveður í upphafi fiskveiðiárs.
2.      Við bætist tvö ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
       a.      (I.)
                 Sjávarútvegsráðherra skal fyrir lok fiskveiðiársins 1998/1999 láta kanna hvaða áhrif lögin hafi haft á íslenskan sjávarútveg, sérstaklega stöðu og möguleika einstaklingsút gerðarinnar. Skal ráðherra fyrir árslok 1999 leggja fyrir Alþingi skýrslu þar sem niður stöður könnunarinnar verði birtar.
       b.      (II.)
                 Ákvæði 1. tölul. 2. efnismgr. 1. gr. laga þessara gilda einnig um flutning aflamarks skipa innan sömu útgerðar ef skip hafa verið tekin á kaupleigu eða leigu og þeir samningar verið gerðir fyrir gildistöku laga þessara.