Ferill 628. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1084 – 628. mál.



Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

Flm.: Gísli S. Einarsson.



1. gr.

    Við 1. mgr. 7. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Í þeim reglum skal kveðið skýrt á um að þeim sem ekki hafa leyfi til grásleppuveiða sé óheimilt að koma með grásleppu veidda í net eða önnur veiðarfæri að landi sem meðafla.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Á liðnum árum hefur því ekki verið gefinn gaumur að grásleppu hefur verið landað sem meðafla án afskipta. Magnið sem boðið hefur verið á fiskmörkuðum skiptir tonnum á hverj um degi. Mikil breyting hefur orðið á stærð möskva þorskaneta, riðill hefur stækkað úr 7 1/ 2 tommu í 9–10 tommur sem hefur þær afleiðingar að mun meira af grásleppu veiðist í þessi net en áður. Grásleppa er sennilega eini fiskurinn sem þolir að vera dreginn af miklu dýpi og unnt er að sleppa ósködduðum, jafnvel eftir að hafa legið á dekki í allt að hálfa klukkustund. Hrognkelsi úr netum eru oftast ósködduð eftir allt að fjórar nætur hvort sem um er að ræða grunnsævi eða dýpi þannig að unnt er að sleppa þessum fiskum lifandi í sjó aftur við ólíkleg ustu aðstæður. Í mörgum tilvikum er grásleppan einnig vel lifandi og unnt að sleppa henni í sjó aftur úr trolli og dragnót. Miðað við ástandið í markaðsmálum grásleppuhrogna er ástæða til að herða eftirlit og setja ótvíræðar reglur um grásleppu sem meðafla án veiðiheim ildar. Sérstakt veiðileyfi þarf að kaupa til grásleppuveiða.