Ferill 640. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1096 – 640. mál.
Frumvarp til laga
um húsnæðissparnaðarreikninga.
Flm.: Tómas Ingi Olrich, Jón Kristjánsson.
1. gr.
Innlegg manna á húsnæðissparnaðarreikninga skapa rétt til skattafsláttar er nemur fjórð2. gr.
Húsnæðissparnaðarreikninga geta þeir menn, er um ræðir í 1. gr. og náð hafa 16 ára aldri á tekjuárinu, stofnað með samningi við innlendar innlánsstofnanir og verðbréfafyrirtæki.Í samningnum skal kveðið á um reglubundinn sparnað allan binditíma reikningsins skv. 3. gr. Á hverju heilu tekjuári skal lágmarksfjárhæð vera 48.000 kr. en hámarksfjárhæð 480.000 kr. Spariféð leggist inn á reikninginn eigi sjaldnar en á hverjum ársfjórðungi alman
Samið skal fyrir fram til a.m.k. eins árs í senn um jöfn mánaðarleg eða ársfjórðungsleg innlegg en umsaminni fjárhæð má breyta árlega miðað við upphaf almanaksárs innan þeirra marka er getur í 2. mgr. Þó er heimilt að semja fyrir fram um lækkun á umsömdum sparnaði miðað við ársfjórðunga.
Hver maður getur aðeins átt einn húsnæðissparnaðarreikning í senn.
3. gr.
Húsnæðissparnaðarreikningar skulu bundnir til tíu ára, talið frá upphafi þess mánaðar er sparnaður hófst. Að þeim tíma liðnum er innstæða til frjálsrar ráðstöfunar reikningseiganda með þeim takmörkunum sem greinir í 3. mgr. Þeir sem orðnir eru 67 ára eða eru 75% öryrkjKaupi reikningseigandi íbúðarhúsnæði til eigin nota eða hefji byggingu slíks húsnæðis skal innstæðan þó laus frá þeim tíma er hann staðfestir kaupin eða bygginguna við banka eða sparisjóð með framvísun kaupsamnings eða vottorðs byggingarfulltrúa um að bygging sé haf
Ráðstafi reikningseigandi innstæðu til annarra nota en til öflunar íbúðarhúsnæðis skal skattafslátturinn endurgreiddur framreiknaður samkvæmt ákvæðum 26. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, frá því ári sem innstæðan skapaði rétt til skattafsláttar að viðbættum vöxtum sem skulu vera jafnháir hæstu vöxtum bundinna sparireikninga á hverjum tíma til greiðsludags.
4. gr.
Húsnæðissparnaðarreikningar eru sérstakir reikningar við innlendar innlánsstofnanir og verðbréfafyrirtæki sem bera skulu nafn og kennitölu eiganda. Bankar eða sparisjóðir skulu ókeypis og ótilkvaddir afhenda skattstjóra upplýsingar í því formi sem ríkisskattstjóri ákveðHúsnæðissparnaðarreikningar skulu á hverjum tíma njóta bestu ávöxtunarkjara almennra innlánsreikninga í viðkomandi banka eða sparisjóði.
Í samningi um húsnæðissparnaðarreikning skal tekið fram hvort reikningseigandi eigi við úttekt af reikningnum rétt á láni frá viðkomandi banka eða sparisjóði, hvert hlutfall það lán sé af innstæðunni og með hvaða kjörum slík lán standi til boða.
Óski innlánsstofnun eða verðbréfafyrirtæki eftir að stofna innlánaflokk húsnæðissparnað
5. gr.
Dragist innborgun umsamins innleggs eða hluta þess fram yfir lok ársfjórðungs er það skyldi lagt inn samkvæmt samningi við banka eða sparisjóð skv. 2. gr. skapar sá hluti innHafi ekki verið gerð skil á öllu umsömdu innleggi fyrir lok almanaksárs skapar innlegg ársins engan rétt til skattafsláttar og skal skattstjóri þá gera reikningseiganda að endurgreiða þann skattafslátt sem honum hefur nýst vegna innleggs á reikninginn á næstu tveimur árum þar á undan að viðbættu 25% álagi. Sama gildir brjóti reikningseigandi að öðru leyti í veru
Hafi gjaldþol manns skerst verulega vegna þeirra atvika er greinir í 66. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum, eftir að samið var um stofnun húsnæðissparnaðarreiknings skulu ákvæði 2. mgr. þó ekki gilda ef ætla má að þessi atvik hafi gert honum ókleift að standa við samning um reglubundinn sparnað.
Brot á samningi um reglubundinn sparnað breytir engu um binditíma reiknings skv. 3. gr.
6. gr.
Reikningseigandi getur ekki framselt, veðsett né á annan hátt ráðstafað innstæðu sinni á húsnæðissparnaðarreikningi. Innstæðan er undanþegin aðför skuldheimtumanna. Verði reikningseigandi gjaldþrota fellur binding innstæðu niður. Við andlát innstæðueiganda renn7. gr.
Fjármálaráðherra setur með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara.8. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1999.Greinargerð.
Frumvarp þetta var flutt á síðasta þingi en varð ekki útrætt. Á því hafa verið gerðar minni háttar breytingar, m.a. með tilliti til atriða sem fram komu í umsögnum um frumvarpið, og er gerð grein fyrir þeim í athugasemdum með einstökum greinum. Felld er brott 7. gr. frumvarps
Með lögum nr. 49/1985 var komið á húsnæðissparnaðarreikningum í bönkum og spari
Ekki verður séð að þær breytingar hafi orðið hér á landi sem leiði til þess að rétt sé að leggja niður þessa aðferð til sparnaðar. Fremur er ástæða til þess að ýta undir sparnað í þjóðfélaginu nú þegar kaupmáttur almennings eykst og þjóðfélagið siglir upp úr öldudal síðustu átta ára. Ýmsar opinberar stofnanir hafa lýst yfir áhyggjum af vaxandi verðbólgu. Við því má m.a. sporna með auknum sparnaði.
Ljóst er að það skiptir sköpum um möguleika fólks á að eignast eigið húsnæði hve mikinn hlut kaupanna er hægt að fjármagna með eigin fé. Talið er að á almennum markaði verði fólk að eiga minnst 15% af kaupverði íbúðar skuldlaus við fyrstu kaup. Þetta er talsvert hærri eiginfjárkrafa en víða gerist. Með nokkurri einföldun má segja að erlendis dugi að eiga 10% kaupverðs og taka eitt lán fyrir 90% af íbúðarverði og er þá miðað við óverðtryggð fast
Greiðslubyrði skammtímalána ræður mjög miklu um kaupgetu ungs fólks. Sem dæmi má nefna að af greiðslubyrði fjölskyldu, sem á 15% af kaupverði íbúðar, eru a.m.k. 40% vegna skammtímalána en 60% vegna húsbréfalána. Er þá miðað við að lánstími skammtímalána sé sjö ár. Ef hann er skemmri vega skammtímalánin enn þyngra. Í töflunni hér á eftir má sjá hversu þungt skammtímalánin vega í greiðslubyrði miðað við mismunandi eign við kaup:
Skuldlaus eign sem % af kaupverði 10 15 20 25
Greiðslubyrði húsbréfaláns í % 52 60 69 81 Greiðslubyrði skammtímaláns í % 48 40 31 19
Af þessu má ráða að skammtímalánin og skuldlaus eign ráða mjög miklu um kaupgetu og á það af skiljanlegum ástæðum einkum við um ungt fólk. Eftirfarandi tafla sýnir aðra hlið á þessu máli en þar kemur fram hversu há mánaðarlaun fjölskylda þarf að hafa til að geta keypt þriggja herbergja íbúð miðað við misjafnlega mikið eigið fé. Til dæmis má sjá að fjöl
Skuldlaus eign sem % af kaupverði Mánaðarlaun (í þús. kr.)
10 285
15 250
20 218
Málinu má einnig stilla upp á þann hátt að sýna hversu dýra íbúð fjölskylda með 250 þús. kr. mánaðarlaun gæti keypt miðað við misjafnlega hátt hlutfall skuldlausrar eignar.
Skuldlaus eign, % af kaupverði Kaupgeta (millj. kr.) Samanburður í %
10 5,8 89
15 6,5 100
20 7,5 115
25 8,9 137
Þessi dæmi sýna að húsbréfakerfið er afar viðkvæmt fyrir eignastöðu kaupenda. Áhrif sparnaðar á kaupgetuna eru því afgerandi. Miðað við að flestir eigi milli 15–20% af kaup
Ef jafnhliða húsnæðissparnaði kæmi hagstæð lánafyrirgreiðsla þeirrar stofnunar sem sparnaðinn ávaxtar má enn auka áhrifin.
Miðað við núverandi kerfi þarf fjölskylda að hafa 175 þús. kr. í mánaðartekjur til að geta keypt allra ódýrasta húsnæði á höfuðborgarsvæðinu svo að dæmi sé tekið (4,5 millj. kr.). Þá er miðað við að skuldlaus eign sé 15% af kaupverði. Með sparnaði má færa þessi mörk neðar sem nemur 5 þús. kr. mánaðarlaunum fyrir hver 45 þús. kr. sem lögð eru í sparnað.
Fjölmargar fjölskyldur hafa nægilega háar tekjur til að ráða við húsnæðiskaup ef miðað er við það sem tíðkast í húsnæðislánakerfum annarra þjóða. Hér er þó kaupgeta þeirra metin mjög til lækkunar í húsbréfakerfinu, m.a. vegna áhrifa skammtímalána og takmarkaðrar eig
Fólki með tekjur á bilinu 175–300 þús. kr. á mánuði og mikla rýmisþörf er gert mjög erfitt fyrir að kaupa nægilega stórt húsnæði í húsbréfakerfinu. Það verður því oft að kaupa of litlar íbúðir. Afleiðingin er mikil eftirspurn eftir smáum íbúðum en offramboð á stórum, burtséð frá raunverulegri húsnæðisþörf. Af þessum sökum hefur ekki verið innbyrðis sam
Þegar á heildina er litið má því fullyrða að með markvissum, samningsbundnum sparnaði sé hægt að draga úr ýmsum neikvæðum áhrifum húsnæðiskerfisins sem hér hefur verið komið upp.
Sérstök ástæða er til þess að heimila að húsnæðissparnaðarreikningar verði nýttir til að fjármagna viðhald íbúðarhúsnæðis. Mikil áhersla hefur verið lögð á að nýbyggingar. Er það skiljanlegt þegar tekið er tillit til þess hve húsakostur var lélegur og Íslendingar langt á eftir nágrannaþjóðum í þeim efnum. Nú er hins vegar svo komið að á tiltölulega skömmum tíma hefur mikið verið byggt. Kallar það á breyttar áherslur í húsnæðismálum. Nauðsynlegt er að mæta húsnæðisþörf með viðhaldi og endurnýjun eldra húsnæðis ekki síður en með nýbygg
Á Íslandi eru nú tæplega 63 milljónir m 3 af íbúðar- og atvinnuhúsnæði að núvirði um 1.200 milljarðar kr. en til viðbótar eru um 13 milljónir m 3 í ýmiss konar útihúsum. Þjóðarauður okkar er að mestu bundinn í þessum eignum.
Meðalaldur þessa húsnæðis er um 25 ár og það því að mestu byggt á eftirstríðsárunum. Á síðasta áratug hefur viðhaldsþörf fasteigna landsmanna farið hraðvaxandi og ekki er óvar
Annars staðar á Norðurlöndum er almennt miðað við að árlegur viðhaldskostnaður sé um 1–5% af nýbyggingarkostnaði en fari hækkandi með aldri húsnæðisins. Lægri mörkin eru fyrir íbúðarhúsnæði í einkaeign en hærri mörkin fyrir sumar opinberar byggingar. Þessi hlut
Í könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, sem gerð var árið 1992, um viðhorf húseigenda til viðhalds fasteigna kemur fram að 77% húseigenda segjast sjálfir meta við
Ef áætlaður viðhaldskostnaður er um 2% af stofnverði að jafnaði ætti árlegur kostnaður af viðhaldi húsnæðis landsmanna að vera a.m.k. 24 milljarðar kr. Hlutfall vinnuliðar er áætl
Ef gert er við húseign fyrir um 1 millj. kr. fyrir utan virðisaukaskatt nemur vinnuliður um 750 þús. kr. með launakostnaði. Launakostnaður er um 300 þús. kr. af þeirri upphæð og hlut
Samkvæmt skýrslu fjármálaráðuneytisins um umfang skattsvika frá september 1993 kem
Mikilvægt er að grípa til aðgerða sem hvetja húseigendur til að eiga aðeins lögleg við
Ávinningurinn er ekki síst fólginn í eftirfarandi:
— Úttektarheimild hvetur til að viðhaldsverkefnum verði skilað með fullgildum reikningum.
— Tekjur ríkissjóðs aukast vegna minni svartar vinnu.
— Úttektarheimild hvetur húseigendur til að auka viðhald húsnæðis og er þannig atvinnuskapandi aðgerð sem þýðir minni greiðslur í atvinnuleysisbætur.
— Þjóðarauður landsmanna, sem bundinn er í fasteignum, verður betur varðveittur.
Í viðhorfskönnun Félagsvísindastofnunar kemur fram að iðnaðarmenn eru helst fengnir í stærri utanhússviðgerðir, svo sem steypuviðgerðir og viðgerðir á gluggum og þaki. Við
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Varðandi einstakar greinar frumvarpsins vísast til athugasemda í frumvarpi er varð að lögum nr. 49/1985, um húsnæðissparnaðarreikninga, og þykir óþarfi að endurtaka þær. Hér á eftir er eingöngu gerð grein fyrir þeim breytingum á gildandi lögum sem frumvarp þetta gerir ráð fyrir.
Um 1. gr.
Greinin er óbreytt frá lögum nr. 49/1985 og er á ný horfið til þess að skattafsláttur nemi fjórðungi árlegs innleggs.
Um 2. gr.
Greinin er eins og í lögum nr. 49/1985 með þeim breytingum að fjárhæðir hafa verið upp
Þá er heimilt er að stofna húsnæðissparnaðarreikninga við innlendar innlánsstofnanir og verðbréfafyrirtæki, í stað þess að einskorða slíka heimild við viðskiptabanka og sparisjóði. Sams konar breyting kemur fram í 1. og 4. mgr. 4. gr. frumvarpsins.
Um 3. gr.
Nokkrar breytingar eru gerðar á 3. gr. frumvarpsins. Þar er kveðið svo á að taki reikn
Þá er bætt inn ákvæði um lágmark heildarkostnaðar af endurbótum eða viðhaldi á eigin húsnæði, sem reikningseiganda er heimilt að greiða með úttekt af húsnæðissparnaðarreikn
Þá er fellt inn í 3. gr. ákvæði um hvernig með skuli fara verði ekki af fyrirhuguðum kaup
Um 4.–6. gr.
Gr. 4.–6. eru óbreyttar frá lögum nr. 49/1985 nema að því leyti að nú skal miða við að einstakir reikningar beri nafn og kennitölu eigenda í stað nafnnúmers.
Orðalagi 4. gr. er breytt til samræmis við breytingu á 2. gr. þar sem heimild til að stofna húsnæðissparnaðarreikninga er víkkuð út og látin ná til innlendra innlánsstofnana og verð
Ákvæði úr 5. gr. um hvernig skuli með fara ef ekki verður af fyrirhuguðum kaupum hafa verið felld inn í 3. gr., sbr. athugasemd um 3. gr. 3. mgr.
Um 7. gr.
Greinin er óbreytt frá lögum nr. 49/1985.
Um 8. gr.
Greinin þarfnast ekki nánari skýringar.