Ferill 584. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1103 – 584. mál.



Svar



sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Hjörleifs Guttormssonar um ár hafsins 1998.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvernig hefur af Íslands hálfu verið hagað undirbúningi að ári hafsins 1998 sem ákveðið var árið 1994 að efna til af Sameinuðu þjóðunum?
     2.      Hvaða nefndir hafa starfað að tillögugerð um undirbúning árs hafsins af Íslands hálfu, hvenær voru þær skipaðar, hverjir áttu í þeim sæti og hverjar voru tillögur þeirra?
     3.      Hverjir aðrir, stofnanir og/eða einstaklingar, hafa að tilhlutan ráðuneytisins komið að undirbúningi árs hafsins hérlendis og hvaða tillögur hafa þeir gert?
     4.      Hvaða meginmarkmið hafa verið sett af hálfu íslenskra stjórnvalda að því er varðar ár hafsins?
     5.      Hvaða atburðir eru fyrirhugaðir á árinu hérlendis undir merkjum árs hafsins 1998?
     6.      Hvaða rannsóknir og/eða átaksverkefni hafa verið undirbúin að því er varðar hafið í tilefni þessa alþjóðaárs?
     7.      Hvaða fræðsluverkefni eru ráðgerð af opinberri hálfu eða annarra í tilefni ársins hérlendis?
     8.      Hvaða fjárframlög hafa verið ákveðin eða er ráðgert að veita hérlendis af opinberri hálfu vegna árs hafsins?
     9.      Með hvaða hætti hafa einkaaðilar og/eða áhugsasamtök komið að þessu máli?
     10.      Verður Ísland þátttakandi í heimssýningunni Expo '98 í Lissabon á komandi sumri og ef svo er, hvernig verður þar staðið að málum af hálfu íslenskra aðila?

    Í lok síðasta árs skipaði sjávarútvegsráðherra starfshóp til að koma með tillögur um við burði í tilefni af ári hafsins 1998 sem ákveðið var að efna til af Sameinuðu þjóðunum. Í starfshópnum eiga sæti Kristján Skarphéðinsson, tilnefndur af sjávarútvegsráðherra, og er hann formaður, Hugi Ólafsson, tilnefndur af umhverfisráðherra, Björn Björnsson, tilnefndur af menntamálaráðherra, Kristján Þór Júlíusson, tilnefndur af samgönguráðherra, Bjarni Grímsson, tilnefndur af sjómannasamtökunum, Kristján Þórarinsson, tilnefndur af atvinnu rekendum í sjávarútvegi, og Guðrún Eyjólfsdóttir, tilnefnd af sjávarútvegsráðherra. Fyrstu tillögur starfshópsins voru samþykktar í ríkisstjórn 10. febrúar sl. og voru þær kynntar í fréttatilkynningu sem sjávarútvegsráðuneytið gaf út þann dag. Samþykkti ríkisstjórnin að verja 4,8 millj. kr. til þeirra verkefna sem starfshópurinn lagði til. Varðandi einstaka við burði vísast til umræddrar fréttatilkynningar.
    Starfshópurinn skipti verkefni sínu í þrjá meginþætti. Í fyrsta lagi að fá sem flesta Íslend inga til að huga að mikilvægi hafsins í víðum skilningi. Í öðru lagi að koma sjónarmiðum Ís lands varðandi verndun hafsins á framfæri á alþjóðavettvangi. Í þriðja lagi að huga að því hvernig Íslendingar geti haft áhrif á þá neikvæðu umræðu sem víða fer fram um málefni hafs ins. Á ríkisstjórnarfundi 24. mars sl. var samþykkt sérstök yfirlýsing í tilefni af ári hafsins sem unnin var á vegum starfshópsins. Yfirlýsingin var samin á íslensku og ensku og verður ensku útgáfunni komið á framfæri, m.a. á sérstakri heimasíðu UNESCO. Jafnframt er vonast til að yfirlýsingin verði höfð til hliðsjónar þegar fulltrúar íslenskra stjórnvalda ræða nýtingu lifandi auðlinda hafsins og umhverfismál hafsins á erlendri grundu.
    Starfshópurinn hefur haft samstarf við ýmsa aðila. Í því sambandi má nefna Sjávarútvegs stofnun Háskóla Íslands, varðandi almenningsfyrirlestra, Háskólann á Akureyri, um ráð stefnuhald, og Námsgagnastofnun, um gerð kennsluleiðbeininga fyrir grunnskóla. Þá hefur starfshópurinn haft samstarf við Félag íslenskra teiknara um samkeppni um veggspjald undir yfirskriftinni Hafið — líf á okkar ábyrgð. Úrslit samkeppninnar verða kynnt á sérstakri ráðstefnu sjávarútvegsráðherra Íslands, Grænlands og Færeyja sem haldin verður 15. apríl nk., en ráðstefnan verður haldin undir merkjum árs hafsins 1998. Ráðstefnan verður um ábyrgar fiskveiðar og er hún skipulögð í samvinnu við Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins.
    Ráðgert er að starfshópurinn starfi til ársloka. Samkvæmt tillögum hópsins hefur ríkis stjórnin ákveðið að helga 12. september nk. ári hafsins. Mun starfshópurinn beina þeim til mælum til fyrirtækja og stofnana sem tengjast hafinu að hafa opið hús þann dag til að gefa almenningi kost á að kynnast starfseminni.
    Hinn 19. mars sl. hélt sjávarútvegsráðherra ræðu á ráðstefnu sem Evrópuráðið stóð fyrir í París. Ráðstefnan var haldin í tilefni af ári hafsins. Ræðu ráðherra er að finna að heimasíðu sjávarútvegsráðuneytisins á vefnum.
    Í tilefni af ári hafsins hefur Hafrannsóknastofnunin kynnt viðamikla áætlun um rannsóknir í suðurdjúpum. Rannsóknir þessar munu beinast að því að athuga útbreiðslu vannýttra teg unda eins og laxsíldar, búra, smokkfisks og túnfisks. Þá verða gerðar ýmsar umhverfisrann sóknir til að byggja upp sérfræðiþekkingu á lífsskilyrðum á þessum hafsvæðum.
    Á síðasta ári ákvað ríkisstjórnin að taka þátt í heimssýningunni (EXPO 1998) sem haldin verður í Lissabon næsta sumar. Meginástæðan fyrir þessari ákvörðun var sú að sýningin verður að þessu sinni helguð hafinu. Með þátttöku í sýningunni gefst því gott tækifæri til að koma sjónarmiðum Íslands á framfæri varðandi verndun og skynsamlega nýtingu hafsins og lifandi auðlinda. Kostnaður við sýninguna er verulegur eða 75 millj. kr. Af þeirri fjárhæð leggur ríkissjóður fram 60 millj. kr. en einkaaðilar 15 millj. kr. Útflutningsráði var með sér stökum samningi falið að annast undirbúning og skipulag að þátttöku Íslands.
Fylgiskjal.


Fréttatilkynning frá
sjávarútvegsráðuneytinu:

Ár hafsins.


(10. febrúar 1998.)



    Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögur starfshóps sjávarútvegsráðherra um hvað skuli gert hér á landi í tilefni af ákvörðun Sameinuðu þjóðanna um að árið 1998 verði ár hafsins. Til lögurnar miða að því að fá sem flesta til að horfa til hafs og velta fyrir sér mikilvægi hafsins í umhverfi okkar og sem forðabúrs. Mikilvægt þykir að vekja áhuga barna og ungmenna, en einnig er reynt að draga athygli almennings að hafinu.
     *      Lagt er til að 12. september verði sérstaklega helgaður hafinu og er þeim tilmælum beint til fyrirtækja, stofnana og safna sem tengjast hafinu að hafa opið hús fyrir almenning í tilefni dagsins.
     *      Námsgagnastofnun var fyrir áramót veittur styrkur til að vinna að gerð kennsluleiðbeininga fyrir grunnskóla um námsefni sem tengist hafinu og lífríki þess. Kennarar ættu að fá þær í hendur í apríl og er hvatt til að skólar skipuleggi þemavikur eða þemadaga um hafið í vor eða haust.
     *      Sjávarútvegsstofnun Háskólans hefur verið falið að skipuleggja röð almenningsfyrirlestra um málefni hafsins. Sá fyrsti verður laugardaginn 21. febrúar nk. þar sem Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, flytur erindið Skyggnst í djúpin. Fimm fyrirlestrar verða í vor og ef vel tekst til verður þráðurinn tekinn upp aftur í haust.
     *      Efnt verður til samkeppni um veggspjald í samvinnu við Félag íslenskra teiknara. Verðlaunaspjaldið verður jafnframt gefið út sem póstkort og því dreift endurgjaldslaust. Veggspjaldið verður notað við kynningu viðburða á ári hafsins og dreift í alla skóla.
     *      Sjávarútvegsráðuneyti og umhverfisráðuneyti ætla að láta útbúa kynningarefni fyrir almenning um nýtingu lifandi auðlinda hafsins og aðgerðir til að draga úr mengun þess.
     *      Sjávarútvegsráðuneytið og sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri efna til ráðstefnu síðari hluta vetrar eða í vor um virkjun mannauðs. Þar verður reynt að varpa ljósi á það hvaða menntunar verði krafist í sjávarútveginum á nýrri öld.
     *      Sjávarútvegsráðherrar Íslands, Grænlands og Færeyja halda um miðjan apríl ráðstefnu á Íslandi um ábyrga fiskveiðistjórnun. Ráðstefnan er haldin að frumkvæði Íslandsdeildar Vestnorrænu þingmannanefndarinnar. Stefnt er að því að í tengslum við ráðstefnuna verði haldin sýning á hugmyndum sem bárust í samkeppni um veggspjald og verðlaun fyrir besta veggspjaldið veitt þar.
     Starfshópurinn vinnur að frekari tillögum. Er þar einkum hugað að tveimur þáttum, með hvaða hætti Íslendingar geta haft áhrif á þá neikvæðu umræðu sem víða fer fram um málefni hafsins og sjávarútveginn sem atvinnugrein. Hópurinn telur í því sambandi mikilvægt að til lögu sjávarútvegsráðherra um upplýsingaveitu sjávarútvegsins verði sem fyrst komið í fram kvæmd. Þá verður hugað að öðrum verkefnum sem kæmu til framkvæmda síðari hluta ársins og verður þess gætt að viðburðir verði ekki bundnir við Reykjavíkursvæðið.