Ferill 645. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1118 – 645. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um ráðstafanir til jöfnunar á námskostnaði, nr. 23/1989.
Flm.: Svanfríður Jónasdóttir.
1. gr.
Síðari málsliður 2. gr. laganna orðast svo: Réttur til styrks fellur niður ef nemandi nýtir rétt sinn til töku námsláns.
2.
gr.
Greinargerð.
Lög um framhaldsskóla taka til alls skólastarfs á því skólastigi sem tekur við af skyldu
Réttur nemenda til námsstuðnings í formi styrkja eða námslána er hins vegar mjög misjafn á þessu skólastigi. Þannig eiga nemendur sem stunda svokallað sérnám rétt á námsláni en geta ekki fengið svokallaðan dreifbýlisstyrk. Þeir nemendur sem stunda bóknám á framhalds
Vegna eðlis sérnámsins, m.a. þess að fólk er gjarna eldra þegar það hefur slíkt nám, er eðlilegt að nemendur í slíku námi eigi rétt á námsláni. Það er jafnframt ljóst að hluti nemenda vildi gjarnan eiga kost á dreifbýlisstyrk á framhaldsskólaárunum og geta þannig átt óskertan rétt til námsláns síðar. Því þykir fara betur á því að snúa þessum réttindum við, þ.e. að allir sérnámsnemar sem að öðru leyti uppfylla skilyrði eigi rétt til dreifbýlisstyrk, nema þeir sem kjósa að taka námslán.
Í 1. gr. frumvarpsins er lagt til að það ákvæði falli brott sem kveður á um að framhalds
Lagt er til að lögin taki gildi með nýju skólaári, 1998–99.