Ferill 660. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1133 – 660. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 103/1994, um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara .
(Lagt fyrir Alþingi á 122. löggjafarþingi 1997–98.)
1. gr.
2. og 3. mgr. 1. gr. laganna orðast svo:
Ákveði stjórn flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara eigi annað nær jöfnun á flutningskostnaði til flutninga á bifreiðabensíni, gasolíu, milliþykkum olíum og blöndum til brennslu, svartolíu (brennsluolíu), flugvélabensíni og þotueldsneyti til innanlandsflugs, þó ekki á olíum ætluðum til útflutnings, svo sem til millilandasiglinga, millilandaflugs, erlendra skipa og erlendra flug
Jöfnun flutningskostnaðar samkvæmt lögunum nær til flutnings sjóleiðis á þeim olíutegund
2. gr.
2. mgr. 4. gr. laganna orðast svo:
Innan flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara skal mynda sérstaka reikninga fyrir eftirfarandi flokka (eða undirflokka) nema stjórn sjóðsins ákveði annað: 1) bifreiðabensín, 2) gasolíu, 3) milliþykkar olíur og blöndur til brennslu, 4) svartolíu (brennsluolíu), 5) flugvélabensín og 6) þotueldsneyti. Færa skal tekjur af flutningsjöfnunargjaldi hvers flokks á sérstakan reikning og sömuleiðis útgjöld vegna jöfnunar flutningskostnaðar. Stefnt skal að því að ná jafnvægi milli álagðra flutningsjöfnunargjalda og útgjalda vegna flutningsjöfnunar hvers flokks árlega.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Í samræmi við 19. gr. samkeppnislaga, nr. 8/1993, skal samkeppnisráð, ef það telur að ákvæði laga eða stjórnvaldsfyrirmæli stríði gegn markmiði samkeppnislaga og torveldi frjálsa samkeppni í viðskiptum, vekja athygli ráðherra á því áliti.
Með hliðsjón af áliti samkeppnisráðs nr. 11/1995 frá 22. nóvember 1995 varðandi ákvæði laga nr. 103/1994, um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara, er frumvarp þetta um breytingu á þeim lögum lagt fram. Jafnframt er gerð minni háttar breyting á upptalningu olíutegunda í landflutningum, sbr. athugasemd við síðari efnismálsgrein 1. gr.
Samkeppnisráð lítur svo á að jöfnun á flutningskostnaði olíuvara geti samrýmst meginregl
Með því sé komið í veg fyrir að kostnaður við að flytja eina tegund olíu á landi hækki flutn
Í 10. gr. laga um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara er tekið fram að verðlagning olíuvara skuli fara eftir samkeppnislögum „að undanteknum fyrirmælum um jöfnun flutningskostnaðar samkvæmt lögum þessum“. Líta verði svo á að beita beri ákvæðum laga um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara til samræmis við meginreglur samkeppnislaga eftir því sem kostur er.
Samkeppnisráð telur það orka mjög tvímælis, að óbreyttum lögum, að heimilt sé að mynda undirflokka í hverjum þeirra fjögurra flokka, sem taldir eru upp í 4. gr. laganna, í því skyni að tryggja frjálsa samkeppni. Lokaorð í áliti samkeppnisráðs eru:
„Með vísan til þess, sem að framan segir, lítur Samkeppnisráð svo á að ríkisstuðningur í formi verðjöfnunar á olíuvörum geti samrýmst meginreglum samkeppnislaga, nr. 8/1993, enda leiði hún ekki til mismununar í garð einstakra fyrirtækja eða neytendahópa. Það er álit ráðsins að sú flokkaskipting, sem ákveðin er í 4. gr. laga nr. 103/1994, um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara, geti leitt til slíkrar mismununar og þar með í vissum tilvikum torveldað frjálsa sam
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Í fyrri efnismálsgrein er orðið við ábendingu samkeppnisráðs varðandi fjölgun á þeim flokkum olíu sem flutningsjöfnun nær til og flokkaskipan færð nær raunveruleikanum. Sam
Í síðari efnismálsgrein er orðalagi breytt og það gert markvissara. Jafnframt er milliþykk
Um 2. gr.
Í þessari grein eru taldir upp þeir flokkar olíu sem eru í notkun hér á landi og jafnframt gert ráð fyrir að stjórn sjóðsins geti ákveðið nýja flokkun eða undirflokkun olíu ef þörf er á.
Um 3. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringar.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 103/1994,
um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara.
Með frumvarpi þessu er ætlunin að fara að áliti samkeppnisráðs og færa ákveðnar tegundir olíu í landflutningum undir jöfnun flutningskostnaðar, svokallaðar milliþykkar olíur og blönd
Flutningsjöfnunarsjóður olíu var fyrst tekinn inn á A-hluta fjárlaga í ár. Þar er talið að hann hafi 541 m.kr. í ríkistekjur og jafnhá útgjöld á móti. Að mati Samkeppnisstofnunar, sem sér um rekstur sjóðsins, má ætla að samþykkt frumvarpsins bæti um 20 m.kr. við ríkistekjur og útgjöld sjóðsins.