Ferill 285. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1150 – 285. mál.



Breytingartillögur



við frv. til l. um starfsemi kauphalla og skipulegra tilboðsmarkaða.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



1.      Við 19. gr.
       a.      Í stað orðanna „einum eða fleiri flokkum“ í inngangsmálslið 1. mgr. komi: einn eða fleiri flokka.
       b.      Fyrri málsliður 2. mgr. orðist svo: Ákvæði 1. mgr. á ekki við um eignarhlut í félagi sem þegar hefur verið opinberlega skráð í kauphöll við gildistöku laga þessara þrátt fyrir að atvik sem nefnd eru í 1.–4. tölul. 1. mgr. eigi við um þann eignarhlut.
2.      Við 20. gr. Á eftir orðunum „öðrum verðbréfum“ í 2. málsl. 1. mgr. komi: svo og.
3.      Við 39. gr. Í stað orðsins „hennar“ í fyrri málslið komi: þeirra.