Ferill 164. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1152 – 164. mál.
Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á l. um bæjanöfn o.fl., nr. 35/1953, með síðari breytingum.
Frá menntamálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Árna Gunnarsson frá menntamála
Mál þetta var fyrst flutt á 121. löggjafarþingi en varð ekki útrætt. Umsagnir bárust þá frá Íslenskri málnefnd, Ingólfi Ásgeiri Jóhannessyni, lektor við Háskólann á Akureyri, Bænda
Í frumvarpinu eru lagðar til þær breytingar á lögunum að örnefnanefnd fari með ákvörð
Menntamálanefnd komst að þeirri niðurstöðu að gera þurfi ýmsar breytingar bæði á fyrir
Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins með breytingum sem lagðar eru til í sérstöku þingskjali. Helstu efnisbreytingar eru eftirfarandi:
1. Lagt er til að við 1. efnismgr. 1. gr. bætist að Íslensk málnefnd skuli hafa áheyrnarfulltrúa í örnefnanefnd með tillögurétti og málfrelsi. Skv. 1. og 2. gr. laga um Íslenska mál
2. Lögð er til mikilvæg orðalagsbreyting á upphafsmálslið 2. efnismgr. 1. gr. sem fjallar um starfssvið örnefnanefndar. Þannig á nefndin ekki að fara með ákvörðunarvald um býlanöfn í landinu heldur ber henni að fjalla um nafngiftir býla eftir nánari ákvæðum laganna og getur, ef ástæða er til, gert athugasemdir við nafn býlis. Er í tengslum við þetta atriði lögð til sú grundvallarbreyting að úrskurðum nefndarinnar verði áfram hægt að skjóta til ráðherra með stjórnsýslukæru samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga í stað þess að nefndin fari með endanlegt úrskurðarvald á þessu sviði. Örnefnanefnd hefur því ekki endanlegt ákvörðunarvald um bæjanöfn.
3. Lögð er til sú breyting á 3. gr. að tilkynna skuli örnefnanefnd um nafn á nýbýli utan kaupstaða, kauptúna og þorpa í stað þess að leyfi örnefnanefndar þurfi til að taka upp nafn á nýbýli. Það er mat nefndarinnar að varðveislusjónarmið sem uppi hafa verið, t.d. um breytingar á nafni býlis, eigi ekki við hér. Eðlilegt þykir að hver og einn geti valið nýbýli nafn að vild en að það skuli tilkynnt örnefnanefnd og að hún bregðist aðeins við ef hún telji nafnið ónothæft.
4. Lagt er til að við frumvarpið bætist grein sem umorði 5. gr. laganna í samræmi við breytingu á 4. gr. þeirra. Þannig er í 1. mgr. vikið að þeim sérreglum sem gilda vilji eig
5. Lögð er til sú breyting á 4. gr. frumvarpsins að úrskurðir skv. 6. gr. laganna verði kæranlegir. Er það í samræmi við þau viðhorf í stjórnsýslurétti að stjórnsýsluúrskurðum eigi almennt að vera unnt að skjóta til æðra stjórnvalds og til samræmis við þá breytingu sem lögð er til á 1. gr. frumvarpsins.
6. Lögð er til breyting á 5. gr. frumvarpsins í samræmi við breytingu á 4. og 5. gr. laganna. Þannig er í 1. mgr. vikið að hlutverki örnefnanefndar eftir að henni hefur borist beiðni um breytingu á nafni býlis skv. 3. gr. laganna og beiðni um nafnfesti á þorpum skv. 7. gr. laganna. Í 2. mgr. er lýst framkvæmdinni heimili örnefnanefnd breytingu á nafni býl
7. Lagt er til að við bætist ný grein sem felli brott 2. málsl. 9. gr. laganna þar sem ákvæðið á þegar að hafa þjónað tilgangi sínum.
Alþingi, 2. apríl 1998.
Sigríður A. Þórðardóttir,
form., frsm.
Hjálmar Árnason.
Svanfríður Jónasdóttir.
Tómas Ingi Olrich.
Sigríður Jóhannesdóttir.
Arnbjörg Sveinsdóttir.
Árni Johnsen.
Guðný Guðbjörnsdóttir.
Ólafur Örn Haraldsson.