Ferill 674. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1165 – 674. mál.
Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um aukna skuldbindingu B-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga vegna aukins hluts dagvinnulauna í heildarlaunum opin
Frá Pétri H. Blöndal.
1. Hvað er gert ráð fyrir að ákvæði kjarasamninga opinberra starfsmanna um aukinn hlut dagvinnulauna í heildarlaunum opinberra starfsmanna muni auka skuldbindingu B-deild
2. Er gætt jafnræðis á milli starfsmanna ríkisins sem greiða í A- og B-deild við framkvæmd þessa ákvæðis þannig að laun starfsmanna í B-deild lækki miðað við laun starfsmanna í A-deild þar sem lífeyriseign þeirra fyrrnefndu vex við breytinguna en þeirra síðar
3. Verður gætt jafnræðis við ákvörðun viðbótarlauna skv. 2. mgr. 9. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, þannig að þeir starfsmenn sem greiða til B-deildar fái lægri viðbótarlaun en þeir sem greiða til A-deildar vegna aukinnar lífeyris
Skriflegt svar óskast.