Ferill 680. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1173 – 680. mál.



Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um rekstrarkostnað Landsvirkjunar.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



     1.      Hver eru laun, lífeyrisréttindi og önnur starfskjör stjórnenda Landsvirkjunar, sundurliðað eftir stöðuheitum, fjölda stjórnenda og milli kynja, föstum launum, öðrum greiðslum eins og stjórnargreiðslum og hvers konar þóknunum og hlunnindum, þar með töldum bif reiðahlunnindum og risnu?
     2.      Hver hefur verið ferðakostnaður erlendis árlega sl. fimm ár, hve margar ferðir voru farnar hvert árið um sig, hvernig sundurliðast kostnaðurinn milli flugfargjalda, gisti kostnaðar og dagpeningagreiðslna? Sérstaklega er óskað sundurliðunar á fjölda ferða stjórnenda og árlegum kostnaði við þær og maka þeirra sé um það að ræða.
     3.      Hvaða reglur gilda um bifreiðahlunnindi, risnu- og ferðakostnað stjórnenda?
     4.      Hver var árlegur risnukostnaður sl. fimm ár sundurliðað eftir
       a.      fastri risnu greiddri einstökum stjórnendum,
       b.      risnu greiddri samkvæmt reikningi?
        Óskað er sundurliðunar á helstu þáttum risnunnar og kostnaði við hvern þeirra, auk helstu tilefna risnunnar.
     5.      Hefur verið farið í laxveiðiferðir á vegum Landsvirkjunar? Ef svo er, hvernig skiptist árlegur kostnaður vegna þeirra sl. átta ár milli laxveiðileyfa og annarra útgjalda vegna ferðanna? Hve margar ferðir voru farnar á ári hverju, hvert var farið, hverjir voru þátt takendur í slíkum ferðum og hver voru tilefni þeirra?
     6.      Hverjir taka ákvarðanir um ferðir stjórnenda til útlanda og laxveiðar sé um þær að ræða?


Skriflegt svar óskast.