Ferill 683. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1183 – 683. mál.



Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um meðlagsgreiðslur.

Frá Lúðvík Bergvinssyni.



     1.      Í hversu mörgum tilvikum hefur Innheimtustofnun sveitarfélaga krafist gjaldþrotaúrskurðar út af vangoldnum meðlagsgreiðslum á tímabilinu 1. janúar 1990 – 31. desem ber 1997?
     2.      Hversu margir einstaklingar greiða meðlag hér á landi? Hvernig er kynjaskiptingin meðal greiðenda?
     3.      Hjá hverjum innheimtir Innheimtustofnun sveitarfélaga meðlagsgreiðslur í tilvikum þar sem einstaklingur hefur undirritað faðernisyfirlýsingu vegna barns sem getið var meðan móðir þess var enn gift öðrum manni og mál til vefengingar á faðerni skv. 52. gr. barna laga hefur ekki verið höfðað? Breytir það hvort sá sem var giftur móðurinni er útlend ingur eða fluttur af landi brott einhverju um það að hverjum innheimtuaðgerðum stofn unarinnar er beint? Er hugsanlegt að þau tilvik geti komið upp að einstaklingur sé skyldur til að greiða meðlag en eigi ekki rétt til umgengni við barn sökum þess að hann er ekki faðir þess samkvæmt lögum?


Skriflegt svar óskast.