Ferill 689. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1196 – 689. mál.



Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



1. gr.

    Við 2. mgr. 14. gr. laganna bætist nýr töluliður sem orðast svo: Aðgangur að vegamann virkjum.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Í frumvarpi þessu er lagt til að skatthlutfall vegna gjaldtöku fyrir aðgang að vegamann virkjum verði 14%, en samkvæmt gildandi lögum er skatthlutfallið 24,5%. Verði frumvarp þetta að lögum mun ákvæðið taka til sölu á aðgangi að vegamannvirkjum án tillits til hverrar tegundar vegamannvirkið er að því tilskildu að seldur sé aðgangur að því. Frumvarp þetta er í samræmi við þingsályktunartillögu sem samþykkt var árið 1994, á 117. löggjafarþingi, um vegtengingu um utanverðan Hvalfjörð. Með lögum nr. 45/1990, um vegtengingu um utan verðan Hvalfjörð, var kveðið á um heimild til gjaldtöku af umferð um vegamannvirki sem reist yrði í því skyni að koma á vegtengingu um utanverðan Hvalfjörð. Í áðurnefndri þings ályktunartillögu var staðfestur samningur við hlutafélagið Spöl hf. um einkarétt til að annast undirbúning, fjármögnun, framkvæmdir og rekstur vegamannvirkis á viðskiptagrundvelli með gjaldtöku af umferð í tiltekinn tíma. Í áðurnefndum samningi er gert ráð fyrir að virðisauka skattur af umferðartekjum vegna reksturs Hvalfjarðarganganna verði ekki hærri en 14%.
    Frumvarp þetta miðar að því að breyta 14. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, til samræmis við þær skyldur sem íslenska ríkið hefur tekist á hendur gagnvart Speli hf. Þar sem farið er að líða að því að lokið verði við þetta mannvirki er nauðsynlegt að Alþingi taki ákvörðun um þá breytingu á lögum um virðisaukaskatt að skatthlutfallið verði 14%.