Ferill 542. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1211 – 542. mál.
Breytingartillögur
við frv. til l. um breyt. á l. nr. 34 17. júní 1944, um þjóðfána Íslendinga.
Frá allsherjarnefnd.
1. Við 3. gr. Greinin orðist svo:
2. mgr. 5. gr. laganna orðast svo:
Tjúgufánann má aðeins nota á skipum sem eru í eign ríkis eða ríkisstofnana og notuð í þeirra þarfir. Ef ríkið tekur skip á leigu til embættisþarfa (strandgæslu, tollgæslu, póst
2. Við 9. gr. Við bætist nýr stafliður, a-liður, er orðist svo: 3. mgr. fellur brott.
3. Á eftir 9. gr. komi ný grein er orðist svo:
Á eftir 12. gr. laganna kemur ný grein er orðast svo:
Skjaldarmerki Íslands er auðkenni stjórnvalda ríkisins. Notkun ríkisskjaldarmerkisins er þeim einum heimil.
4. Við 10. gr. er verði 11. gr. Efnismálsgrein orðist svo:
Forsætisráðuneytið setur með reglugerð sérstök ákvæði til skýringar ákvæðum laga þessara.
5. Á eftir 10. gr., er verði 11. gr., komi tvær nýjar greinar er orðist svo:
a. (12. gr.)
Orðið „varðhaldi“ í 1. mgr. 14. gr. laganna fellur brott.
b. (13. gr.)
Heiti laganna verður: Lög um þjóðfána Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið.
6. Við 11. gr. er verði 14. gr. 2. málsl. falli brott en við bætist tvær nýjar málsgreinar er orðist svo:
Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á 29. gr. samkeppnislaga, nr. 8/1993:
a. Í stað orðanna „í heimildarleysi íslenska ríkisskjaldarmerkið“ í 2. mgr. kemur: íslenska ríkisskjaldarmerkið, þá er óheimilt að nota í heimildarleysi.
b. 3. mgr. fellur brott.
Við gildistöku laga þessara bætist nýr töluliður við 1. mgr. 32. gr. laga um vörumerki, nr. 45/1997, er orðast svo: samkvæmt kröfu forsætisráðuneytis, ef skrásett hefur verið af misgáningi vörumerki þar sem notaður er þjóðfáninn án heimildar þess.
Prentað upp.