Ferill 164. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1231 – 164. mál.
Frumvarp til laga
um breyting á lögum um bæjanöfn o.fl., nr. 35/1953, með síðari breytingum.
(Eftir 2. umr., 22. apríl.)
1. gr.
Menntamálaráðherra skipar þriggja manna nefnd er nefnist örnefnanefnd. Skipunartími nefndarinnar er fjögur ár í senn. Skal einn nefndarmanna tilnefndur af Örnefnastofnun Íslands, annar af umhverfisráðuneyti en hinn þriðja, sem jafnframt er formaður nefndarinnar, skipar ráðherra án tilnefningar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Allir skulu nefndarmenn vera kunnáttumenn á sviði örnefna- og staðfræði. Íslensk málnefnd skal hafa áheyrnarfulltrúa í nefndinni með tillögurétti og málfrelsi.
Örnefnanefnd skal fjalla um nafngiftir býla skv. 5., 7. og 8. gr. laganna. Jafnframt úr
Í reglugerð, sem menntamálaráðherra setur, skal kveðið nánar á um starfsemi örnefna
2. gr.
Nöfnum á býlum utan kaupstaða og kauptúna eða þorpa, sem skráð hafa verið hjá Fast
3. gr.
Tilkynna skal örnefnanefnd um nafn á nýbýli utan kaupstaða, kauptúna og þorpa.
4. gr.
5. gr. laganna orðast svo:Vilji eigandi breyta nafni býlis síns skv. 3. gr. skal hann senda örnefnanefnd beiðni um það. Í beiðninni skal hann skýra frá ástæðum þess að farið er fram á að eldra nafn býlisins verði lagt niður og þeim ástæðum er ráðið hafa vali umsækjanda á nýju nafni. Breytingar á nafni býlis skal ekki leyfa, nema alveg sérstaklega standi á, svo sem að býlið eigi samnefnt við annað lögbýli í sama héraði eða því um líkt.
Í tilkynningu eiganda til örnefnanefndar um nafn á nýbýli skv. 4. gr. skal hann skýra frá þeim ástæðum er ráðið hafa vali á hinu nýja nafni.
Sé hið nýja nafn býlis dregið af staðháttum skal þeim lýst í umsókn, sbr. 3. gr., eða tilkynn
5. gr.
Ágreiningi um nafngift skv. 1. mgr. verður skotið til úrskurðar örnefnanefndar.
6. gr.
Örnefnanefnd skal svo fljótt sem henni er mögulegt eftir að henni hefur borist beiðni um breytingu á nafni býlis skv. 3. gr., beiðni um nafnfesti á þorpum skv. 7. gr. eða önnur erindi til ákvörðunar leggja rökstuddan úrskurð á málið.
Heimili örnefnanefnd breytingu á nafni býlis skv. 3. gr., sbr. 1. mgr. 5. gr., eða nafnfesti á þorpi skv. 7. gr. skal hún senda nafnið hlutaðeigandi þinglýsingarstjóra til þinglýsingar. Ella sendir hún málsaðila tilkynningu um að beiðni hans sé hafnað.
Telji örnefnanefnd ekkert athugavert við nafn sem tilkynnt hefur verið til hennar skv. 4. gr., sbr. 2. mgr. 5. gr., skal hún senda það hlutaðeigandi þinglýsingarstjóra til þinglýsingar. Telji hún nafnið ónothæft skal hún tilkynna það málsaðila svo fljótt sem mögulegt er og óska eftir nýrri tillögu um nafn á býli. Hafi málsaðili ekki innan sex mánaða valið nýtt nafn sem nefndin fellst á og tilkynnt það örnefnanefnd úrskurðar nefndin um það hvert nafn býlið skuli fá. Úr
Þinglýsingarstjórar skulu ætíð skýra þinglýstum veðhöfum frá nafnbreytingum ef þeir eru kunnir. Eigi má taka við skjölum til þinglestrar viðvíkjandi fasteign sem hefur ekki fengið viðurkennt nafn samkvæmt lögum þessum. Sýslumaður innheimtir lögboðið þinglestrargjald hjá eiganda býlisins. Birta skal árlega í B-deild Stjórnartíðinda skrá um nöfn þau sem tekin hafa verið upp á árinu. Svo skal og birta skrá yfir nöfn á eldri býlum sem ekki eru talin í fasteignabók 1942 og ekki hafa þegar verið birt.
7. gr.
2. málsl. 9. gr. laganna fellur brott.8. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.