Ferill 379. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1245 – 379. mál.



Nefndarálit



um till. til þál. um langtímaáætlun í vegagerð.

Frá meiri hluta samgöngunefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Helga Hallgrímsson, Hannes Má Sigurðsson, Jón Rögnvaldsson og Gunnar Gunnarsson frá Vegagerðinni.
    Umsagnir um málið bárust nefndinni frá Siglufjarðarkaupstað, Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, Akureyrarbæ, Raufarhafnarhreppi, bæjarstjóra Hornafjarðar, Vopnafjarðar hreppi, Vegagerðinni, héraðsnefnd Skagfirðinga og samgönguráðuneytinu.
    Með afgreiðslu langtímaáætlunar er náð þeim áfanga að Alþingi markar í fyrsta sinn stefnu í vegagerð til langs tíma.
    Í tillögunni er gerð grein fyrir skiptingu fjár á helstu framkvæmdaliði. Þar er mjög aukið fé til stórverkefna og jafnframt er gerð tillaga um skiptingu þess fjár milli verkefna eftir tímabilum. Þá er boðað að skipting fjár til verkefna á höfuðborgarsvæðinu verði einnig tekin fyrir við meðferð málsins á Alþingi.
    Samhliða tillögu um langtímaáætlun hefur tillaga um vegáætlun verið til afgreiðslu. Veg áætlunartillagan tekur til fyrsta tímabils langtímaáætlunar og því verður að líta á þessar til lögur báðar í heild. Jafnframt því sem þingmenn kjördæma unnu að tillögugerð vegna veg áætlana fóru þeir yfir langtímaáætlunina. Fram komu nokkrar hugmyndir um breytingar og hefur meiri hluti nefndarinnar tekið þær til skoðunar, ásamt hugmyndum sem fram hafa kom ið innan nefndarinnar.
    Hér á eftir er gerð nánari grein fyrir þeim breytingum sem breytingartillögur meiri hlutans fela í sér.
    Tölur í breytingartillögunum eru miðaðar við verðlag ársins 1999 í stað 1998 og er þetta gert til samræmis við vegáætlun. Hækkun milli áranna 1998 og 1999 er áætluð 3,2% og er það í samræmi við mat Þjóðhagsstofnunar.
    Aðrar breytingar á fjáröflun eru þær að endurgreiðslur á þungaskatti (styrkir) til sérleyfis hafa (20 m.kr. á ári) eru teknar inn bæði tekju- og gjaldamegin, en þessi liður hefur ekki áður verið í vegáætlun. Þá eru tekjur hækkaðar um 80 m.kr. á ári frá og með árinu 1999. Með hliðsjón af góðum horfum í atvinnu- og efnahagslífi landsins þykir óhætt að reikna með þess ari hækkun tekna.
    Í skiptingu útgjalda eru endurgreiðslurnar til sérleyfishafa felldar undir stjórn og undir búning. Tekjuaukningin (80 m.kr. á ári) er sett í nýjan lið 2.3.4. Ferðamannaleiðir. Þá hefur afborgunartími lána vegna Hvalfjarðartenginga verið lengdur úr fimm árum í tíu og hefur það breytingu í för með sér í liðnum Endurgreiðsla lánsfjár.
    Nokkrar breytingar verða á tillögum um skiptingu fjár til nýframkvæmda. Lögð er fram tillaga um skiptingu fjár til verkefna á höfuðborgarsvæðinu eftir tímabilum eins og boðað var.
    Lenging lána vegna Hvalfjarðartenginga hefur þau áhrif að fjárþörf þess verkefnis minnk ar á fyrsta tímabili en eykst á öðru og þriðja tímabili. Það svigrúm sem þannig skapast á fyrri hluta áætlunartímans kemur einkum Kerlingarskarðsvegi, Vatnaheiði og Vestfjarðavegi (Brattabrekka – Svínadalur) til góða, svo og Reykjanesbraut í litlum mæli.
    Í skilgreiningum verkefna í tillögunni er við það miðað að Hringvegurinn á Austurlandi liggi ekki um Skriðdal og Breiðdal eins og hann gerir í þjóðvegaskrá heldur um Suðurfjarða veg. Meiri hlutinn leggur til að þessu verði breytt þannig að Hringvegurinn sé skilgreindur í samræmi við þjóðvegaskrá. Suðurfjarðavegur verður þá skilgreindur sem nýtt verkefni, þó einungis til Stöðvarfjarðar að norðan, en niður fellur kaflinn milli Stöðvarfjarðar og Breið dalsvíkur. Er þetta í samræmi við meginregluna sem fylgt er við skilgreiningu verkefna undir a-lið í framkvæmdamarkmiðum.
    Með þessari breytingu fær Hringvegurinn sama sess og önnur verkefni innan stórverk efnaflokksins og á að ljúka á sama tíma og þau. Breytingin veldur því að heildarkostnaður við stórverkefnin eykst um 550 m.kr. Heildartölum er þó ekki breytt að sinni en meiri hlutinn lítur svo á að það verði gert við næstu endurskoðun langtímaáætlunar. Fjárveitingum til Hringvegar á Austurlandi er hins vegar skipt upp og fær Suðurfjarðavegur hluta þeirra.
    Óvissa er um val leiða og lausna á nokkrum stöðum sem fá fjárveitingar á seinni tímabil um áætlunarinnar. Á þetta meðal annars við um tengingu Siglufjarðar og Ólafsfjarðar, en þar er veitt fé til Lágheiðar á öðru og þriðja tímabili. Unnið er að skoðun allra mögulegra lausna á svæðinu, þar með talið gerð jarðganga sem stytta mundu leiðina mikið og bjóða upp á öruggara samband en vegur um Lágheiði getur gert. Miðað er við að þeirri skoðun verði lok ið það snemma að taka megi ákvörðun um val lausna við næstu endurskoðun langtímaáætlun ar.
    Svipað er ástatt um Kolgrafarfjörð á Snæfellsnesi og Gufufjörð í Barðastrandarsýslu. Í báðum tilvikum var í eldri áætlunum miðað við að þvera þessa firði, en kostnaðartölur í stór verkefnalistanum nú miðast við að farið sé fyrir botn fjarðanna eins og getið er um í athuga semdum með tillögunni. Fyrir næstu endurskoðun langtímaáætlunar þarf að liggja fyrir úttekt á þessum kostum þannig að taka megi ákvörðun um lausn til útfærslu.
    Hér eru einungis nefndir þeir staðir sem sérstaklega hafa verið til umræðu. Í raun munu þó miklu víðar koma til skoðunar aðrar útfærslur en miðað er við í kostnaðartölum stórverk efnalistans. Verður það meðal annars verkefni næstu endurskoðunar að taka ákvarðanir í slíkum tilvikum.
    Meiri hluti nefndarinnar leggur til að tillagan verði samþykkt með breytingum sem lagðar eru til í sérstöku þingskjali.

Alþingi, 22. apríl 1998.



Einar K. Guðfinnsson,


form., frsm.


Magnús Stefánsson.



Jón Kristjánsson.



Kristján Pálsson.

Guðjón Guðmundsson.