Ferill 522. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1254 – 522. mál.
Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á almennum hegningarlögum, nr. 19 12. febrúar 1940, með síðari breytingum, og um breytingar á öðrum lögum (afnám varðhaldsrefsingar).
Frá allsherjarnefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Benedikt Bogason frá dómsmála
Í frumvarpinu er lagt til að varðhald verði fellt niður sem refsing fyrir afbrot, en einnig eru lagðar til ýmsar minni háttar lagfæringar á lagaákvæðum um refsingar. Samkvæmt nú
Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins með nokkrum breytingum sem gerð er grein fyrir í sérstöku þingskjali, en breytingarnar eru nauðsynlegar vegna lagabreytinga sem gerð
1. Lagt er til að 151. gr. frumvarpsins falli brott. Um er að ræða ákvæði í lögum um þjóðfána Íslendinga, sem allsherjarnefnd hefur haft til umfjöllunar og hefur nefndin lagt til að umrædd breyting verði gerð á lögunum í tengslum við aðrar breytingar sem lagðar eru til á þeim lögum.
2. Í öðru lagi er lagt til að 152. gr. frumvarpsins falli brott þar sem til stendur að umrædd lög, lög um stjórn flugmála, nr. 119/1950, verði felld brott með nýjum loftferðalögum, sem nú eru til lokaafgreiðslu á Alþingi.
3. Þá er lagt til að 162. gr. frumvarpsins verði felld brott. Í ákvæðinu eru lagðar til breytingar á lögum um loftferðir, nr. 34/1964, en í frumvarpi til nýrra loftferðalaga sem nú er til lokaafgreiðslu á Alþingi er lagt til að eldri lög verði felld úr gildi.
4. Lagt er til að 169. gr. frumvarpsins falli brott, en þar er kveðið á um breytingu á lögum um Hæstarétt Íslands, nr. 75/1973, sem Alþingi hefur samþykkt að verði felld úr gildi við gildistöku dómstólalaga.
5. Lagt er til að 174. gr. frumvarpsins falli brott þar sem samþykkt hefur verið að fella lög um skotvopn, sprengiefni og skotelda, nr. 46/1977, úr gildi við gildistöku vopnalaga. Því er lagt til að gerðar verði nauðsynlegar breytingar á vopnalögum og ákvæði um varðhald felld þar út.
6. Þá er lagt til að 200. gr. falli brott, en lög um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, nr. 81/1988, voru felld úr gildi við gildistöku laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
7. Einnig er lögð til breyting á lögum um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998, þannig að ákvæði um varðhald verði felld brott og aðeins kveðið á um fangelsisrefsingu í lög
8. Þá er lögð til breyting á 1. málsl. 2. mgr. 24. gr. laga um verslunaratvinnu, nr. 28/1998, þannig að í stað þess að kveðið verði á um varðhaldi sem viðurlög verði kveðið á um fangelsi allt að tveimur árum.
Hjálmar Jónsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 21. apríl 1998.
Sólveig Pétursdóttir,
form., frsm.
Valgerður Sverrisdóttir.
Jóhanna Sigurðardóttir.
Árni R. Árnason.
Jón Kristjánsson.
Bryndís Hlöðversdóttir.
Guðný Guðbjörnsdóttir.
Kristján Pálsson.