Ferill 553. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1309 – 553. mál.



Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.

  Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar (VE, SP, VS, EOK, GMS, ÁE, SighB, SJS).  

     1.      Við 3. gr. Greinin orðist svo:
              Eftirfarandi breytingar verða á 17. gr. laganna:
       a.      Á eftir 1. málsl. 2. mgr. kemur nýr málsliður er orðast svo: Þó skal kaupverð hlutabréfa í eigu rekstraraðila, þar með talið einstaklinga, ákvarðast sem upphaflegt kaup verð þeirra þegar það hefur verið hækkað eða lækkað samkvæmt verðbreytingarstuðli eftir ákvæðum 26. gr. til söluárs, enda séu hlutabréfin eignfærð í atvinnurekstrinum.
       b.      Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein er orðast svo:
                  Lögaðilar, sbr. 1. mgr. 2. gr., geta farið fram á að fresta tekjufærslu söluhagnaðar af sölu hlutabréfa, þar á meðal skiptum á hlutabréfum, annarra en eigin bréfa, um tvenn áramót frá söludegi. Sama gildir um einstaklinga í atvinnurekstri enda séu hluta bréfin eignfærð í atvinnurekstrinum. Kaupi slíkur aðili önnur hlutabréf í stað hinna seldu innan þess tíma færist söluhagnaðurinn til lækkunar kaupverði þeirra bréfa. Nemi kaupverð hinna keyptu hlutabréfa lægri fjárhæð en söluhagnaðurinn telst mis mun urinn til skattskyldra tekna. Ef hlutabréf eru ekki keypt innan tilskilins tíma telst söluhagnaðurinn til skattskyldra tekna á öðru ári frá því að hann myndaðist. Þegar skattskyldur söluhagnaður er ekki tekjufærður á söluári samkvæmt heimild í þessari málsgrein skal hann hækkaður eða lækkaður samkvæmt verðbreytingarstuðli eftir ákvæðum 26. gr. fram til þess árs þegar hann er tekjufærður.
     2.      Á eftir 4. gr. komi tvær nýjar greinar er orðist svo:
    a.    (5. gr.)
                 Við 32. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Keypt viðskiptavild. Kaup á ófyrnanlegum réttindum skv. 50. gr. A teljast ekki til keyptrar viðskiptavildar.
    b.    (6. gr.)
                 Við 1. mgr. 38. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Keypt viðskiptavild að lágmarki 10% en að hámarki 20%.