Ferill 632. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1368 – 632. mál.
Svar
iðnaðarráðherra við fyrirspurn Svavars Gestssonar um verðjöfnun á raforku.
1.
Hverju nemur að mati iðnaðarráðuneytisins verðjöfnun á raforku í heild, bæði bein og óbein?
Skipan raforkumála og uppbygging raforkukerfisins er þannig að erfitt eða jafnvel ógerlegt er að reikna út hve há fjárhæð fer, beint eða óbeint, til að jafna raforkuverð. Að mati orkufyrirtækjanna tæki það a.m.k. marga mánuði. Benda má á að álag á raforkukerfið, hvar orkuvinnslan fer fram og tap í flutningi og dreifingu hafa veruleg áhrif á mat á því hvað jöfnun á raforkuverði raforku fyrirtækjanna kostar. Miðað við þann stutta tíma sem gefst til að svara fyrirspurninni og það að Alþingi verður væntanlega frestað innan skamms verður því fyrst og fremst að miða við upplýsingar sem liggja fyrir og svara fyrirspurninni tiltölu
lega almennt. Þess skal jafnframt getið að við endurskoðun á skipan raforkumála, sem nú er að hefjast í samræmi við tillögu til þingsályktunar um framtíðarskipan raforkumála, verður m.a. lagt mat á áhrif breytinga á jöfnun raforkuverðs.
Margvíslegar aðgerðir á vegum ríkisins og raforkufyrirtækjanna hafa stuðlað að jöfnun raforkuverðs. Nefna má 13. gr. laga um Landsvirkjun, en hún hljóðar svo: „Sama gjaldskrá skal gilda um afhendingu rafmagns til almenningsrafveitna á afhendingarstöðum Landsvirkj
unar.“ Nánar er vikið að þessu ákvæði síðar. Sömuleiðis eru í orkulögum, nr. 58/1967, ákvæði er lúta að jafnræði notenda við veitingu einkaleyfa til að reka héraðsrafmagnsveitur.
Í kjölfar afnáms verðjöfnunargjalds á raforku aflétti ríkið skuldum samtals að fjárhæð u.þ.b. 11.700 millj. kr. á núverandi verðlagi af Rafmagnsveitum ríkisins, Orkubúi Vestfjarða og Rafveitu Siglufjarðar sem notið höfðu tekna af gjaldinu. Þessi ráðstöfun hefur að sjálf
sögðu haft í för með sér umtalsverða jöfnun á raforkuverði. Ríkið tók við hluta af skuldum vegna byggðalínu og það hafði sömuleiðis veruleg áhrif til jöfnunar raforkuverðs. Í skýrslu sem Hagfræðistofnun Háskólans vann fyrir iðnaðarráðuneytið á árunum 1989 og 1990 er talið að ef ríkið hefði ekki tekið við skuldunum hefði meðalsmásöluverð hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja þurft að vera um 2,5% hærra en það var á árinu 1989, en meðalsmásöluverð Rafmagnsveitna ríkisins um 20% hærra og Orkubús Vestfjarða 27,5% hærra. Þetta hefur þannig haft í för með sér verulega jöfnun raforkuverðs í landinu.
Rafmagn til hitunar íbúðarhúsnæðis hefur verið greitt niður af ríkinu frá því í október 1982. Niðurgreiðsla ríkissjóðs á rafmagni hjá Rafmagnsveitum ríkisins er nú 1,47 kr. á kíló
vattstund fyrir allt að 30.000 kílóvattstundum á ári, eða allt að 44.100 kr. á ári á heimili. Samtals er gert ráð fyrir að niðurgreiðslur á raforku og heitu vatni frá rafkyntum hitaveitum til hitunar íbúðarhúsnæðis verði á þessu ári allt að 487 millj. kr. Frá 1. apríl 1988 hefur Landsvirkjun veitt þeim sem kynda íbúðarhúsnæði með rafmagni afslátt á raforkuverði. Sá afsláttur er nú 0,39 kr. á kílóvattstund fyrir allt að 30.000 kílóvattstundum á ári. Samtals gerir Landsvirkjun ráð fyrir að afslátturinn verði um 115 millj. kr. á þessu ári. Loks veita Rafmagnsveitur ríkisins og Orkubú Vestfjarða húsráðendum sem hita híbýli sín með raforku sérstakan afslátt sem nemur 0,085 kr. á kílóvattstund. Rafmagnsveitur ríkisins áætla að afslátturinn nemi rúmlega 17 millj. kr. á árinu. Kostnaður Orkubús Vestfjarða við afsláttinn nam 3,1 millj. kr. á árinu 1997. Gert er ráð fyrir að hann verði svipaður á þessu ári. Auk þessara aðgerða er hluti virðisaukaskatts af húshitun endurgreiddur þeim sem bera hlutfalls
lega háan húshitunarkostnað. Nú eru 63% af skattinum endurgreidd þeim sem nota rafmagn til húshitunar. Niðurgreiðslur, afslættir og endurgreiðslur leiða til þess að þeir sem eru í við
skiptum við Rafmagnsveitur ríkisins og nota 32.887 kílóvattstundir á ári til að hita íbúðar
húsnæði greiða 90.160 kr. á ári í stað 164.240 kr. Samtals lækkar orkukostnaður þeirra við þessar aðgerðir um 74.080 kr. á ári.
Samkvæmt lögum um Landsvirkjun er hlutverk fyrirtækisins að vinna, flytja og selja í heildsölu raforku til almenningsrafveitna, svo og til iðnfyrirtækja samkvæmt sérstökum samningum að svo miklu leyti sem almenningsrafveitur hafa ekki milligöngu um slíka raf
orkusölu. Orkuveitusvæði Landsvirkjunar er allt landið eftir því sem raforkuver og stofnlínu
kerfi hennar spanna. Landsvirkjun er enn fremur skylt, eins og áður er komið fram, að láta sömu gjaldskrá gilda um afhendingu rafmagns til almenningsveitna á afhendingarstöðum fyrirtækisins. Sú skylda hefur verið túlkuð þannig af stjórn Landsvirkjunar að verðleggja beri flutning og framleiðslu rafmagns eins á öllum afhendingarstöðum. Því hefur reiknings
hald og uppgjör ekki sérstaklega verið miðað við að gera upp rafmagnskostnað á einstökum afhendingarstöðum, þannig að finna megi hæsta og lægsta kostnaðarverð og út frá því verð
jöfnun með þessu fyrirkomulagi.
Til þess að hægt sé að meta jöfnun á raforkuverði til almenningsveitna í kerfi Landsvirkj
unar er nauðsynlegt að gefa sér ýmsar forsendur sem geta verið umdeilanlegar og hægt er að haga á ýmsa vegu. Má nefna forsendur eins og hvort landshlutar eigi að greiða fyrir raforku frá næstu virkjun eða t.d. hlutfallslega úr öllum virkjunum eftir stærð þeirra. Gera má tilraun til þess með eftirfarandi dæmi úr ársreikningi Landsvirkjunar fyrir árið 1997 og öðru dæmi um flutningskostnað eftir Vesturlínu til Vestfjarða. Úr ársreikningum má lesa að tekjur á framleidda orkueiningu rafmagns (meðalverð forgangs- og ótryggðrar orku) til almennings
veitna var 2,58 kr. á kílóvattstund. Að gefnum ýmsum forsendum um skiptingu rekstrarkostn
aðar Landsvirkjunar milli framleiðslu og flutnings má ætla að tekjur af orkuframleiðslu fyrir almenningsveitur hafi verið um 2,01 kr. á kílóvattstund og 0,57 kr. á kílóvattstund af flutn
ingi. Samkvæmt þessu greiðir meðalviðskiptavinur Landsvirkjunar 0,57 kr. á kílóvattstund fyrir flutning á raforkunni, en raunkostnaður er vitaskuld lægri eftir því sem notandinn er nær virkjun og hærri eftir því sem notandinn er lengra frá virkjun. Sem dæmi um háan flutnings
kostnað má taka orkusölu til Orkubús Vestfjarða, sem reyndar framleiðir sjálft verulegan hluta af því rafmagni sem það selur áfram, en kaupir rafmagn af Landsvirkjun í Mjólká og Geiradal. Þau flutningsmannvirki sem þarf til að flytja rafmagn á þessa staði eru dýr og áætla má árlegan flutningskostnað af þeirri orkusölu um 1,6 kr. á kílóvattstund, eða tæplega þrefalt hærri en til meðalviðskiptavinarins. Þessum kostnaði er síðan jafnað milli allra almenningsveitna gegnum gjaldskrá Landsvirkjunar.
Innan Rafmagnsveitna ríkisins er verði jafnað milli notenda sem búa í þéttbýli og strjál
býli. Fyrir ári var unnin skýrsla um greiningu orkukostnaðar hjá fyrirtækinu. Sett var upp reiknilíkan til að meta hvernig kostnaður fyrirtækisins hríslast um kerfi þess frá innkaupum (eða framleiðslu) til endanlegs notanda. Samkvæmt líkaninu reynist um 40% dýrara að afhenda orkuna til strjálbýlisnotenda en notenda í þéttbýli. Þar sem sama gjaldskrá gildir fyrir alla viðskiptavini fyrirtækisins er ljóst að mikil verðjöfnun á sér stað innan þess.
Í ársbyrjun 1995 gerðu ríkið og Rafmagnsveitur ríkisins með sér samning sem felur m.a. í sér arðgreiðslur til ríkissjóðs. Samkvæmt samningnum voru arðgreiðslur fyrir árin 1995 og 1996 100 millj. kr. hvort ár og var arðinum ráðstafað til styrkingar og endurnýjunar á raf
dreifikerfum í sveitum. Frá og með árinu 1997 skulu arðgreiðslur nema 2% af eigin fé, en árin 1997 og 1998 skal þó lækka arðgreiðslustofn eigin fjár um sem nemur bókfærðu verð
mæti rafdreifikerfa í sveitum. Jafnframt þessu var ákveðið í kjölfar uppgjörs vegna óveðurstjóna 1995 að arðgreiðslur Rafmagnsveitnanna lækki um 20 millj. kr. á ári fram til ársins 2001. Af arðgreiðslunni renna 30% í ríkissjóð, 65% til styrkingar og endurnýjunar á raf
dreifikerfum í sveitum og 5% til rannsóknar- og þróunarverkefna á vegum fyrirtækisins. Sá hluti arðgreiðslunnar sem Rafmagnsveiturnar fá aftur og varið er til styrkingar á sveitadreifi
kerfum var því 100 millj. kr. árin 1995 og 1996 og verður 102 millj. kr. árin 1997 og 1998.
Að síðustu þykir rétt í þessu samhengi að fjalla um það sem nefnt hefur verið hinn félags
legi þáttur í starfsemi Rafmagnsveitnanna, en til hans teljast framkvæmda-, rekstrar- og þjónustuverkefni sem nauðsynlegt er að ráðast í til að fullnægja þjónustuskyldu og viðhalda afhendingaröryggi og gæðum þjónustu á strjálbýlum svæðum. Verkefnin eru þess eðlis að fyrir fram er vitað að tekjur af þeim geta ekki að fullu staðið undir útgjöldum. Félagslegur þáttur er því mismunurinn á nauðsynlegum tekjum til að standa undir verkefninu og raun
verulegum tekjum sem verkefnið skilar. Á undanförnum árum hafa nokkrar athuganir farið fram til að meta stærð þessa þáttar í starfsemi fyrirtækisins. Niðurstöður þeirra eru að árlegur kostnaður við hann sé á bilinu 300–700 millj. kr. Nú njóta Rafmagnsveiturnar ekki framlaga til félagslega þáttarins á annan hátt en þann að þær fá 65% af arðgreiðslum til ríkisins endurgreiddar til að mæta kostnaði við endurnýjun rafdreifikerfa til sveita, eins og áður var gerð grein fyrir. Ekki liggja fyrir áætlanir um félagslegan kostnað hjá Orkubúi Vestfjarða eða öðrum rafveitum.
Ráðuneytið treystir sér ekki til að leggja mat á heildaráhrif framangreindra aðgerða, beinna og óbeinna, til jöfnunar orkuverðs, en ljóst er að ef þeirra nyti ekki við væri munur á því verði sem notendur greiða fyrir rafmagn miklu meiri en hann er nú.
2.
Hvernig hyggst ráðherra tryggja verðjöfnun í breyttu skipulagi raforkumála?
Meðal verkefna við undirbúning breytinga á skipulagi raforkumála er könnun á því hvern
ig jöfnun á raforkuverði verði best háttað. Ljóst er að í samkeppnisumhverfi mun mismun
andi orkuverð að verulegu leyti ráðast af breytilegum kostnaði við flutning og dreifingu ork
unnar frá orkuverum til notenda. Við jöfnunina koma í aðalatriðum tvær meginleiðir til álita. Annars vegar að jafna verðið innan raforkukerfisins og hins vegar beinir styrkir, niður
greiðslur eða endurgreiðslur á hluta af virðisaukaskatti til þeirra sem búa á svæðunum sem dýrast er að flytja orkuna til. Ætla má að yrði síðari kosturinn fyrir valinu ætti sér eigi að síður stað veruleg jöfnun innan flutnings- og dreifikerfisins þar sem útilokað er að reikna raunkostnað við flutning raforkunnar til einstakra notenda.
Ef ákveðið yrði að jafna orkuverðið innan raforkukerfisins hefur einkum verið litið til að jafna orkuverð í flutningskerfinu, svipað og nú er gert. Þannig mætti t.d. hugsa sér að greitt yrði fyrir flutninginn óháð fjarlægð, svipað og í póstflutningum og símkerfinu. Ókosturinn við þá leið er að notendur fá ekki merki um raunverulegan kostnað sem notkun þeirra hefur í för með sér. Víða erlendis er raforkukerfinu skipt niður í svæði og gjaldtakan breytileg milli svæða. Með þeirri aðferð er tekið tillit til vegalengdar sem flytja þarf orkuna en orkuverðið jafnað innan svæðisins. Enn fremur má hugsa sér að lagt verði á gjald fyrir að setja raforku inn á netið og við að taka rafmagn út af því. Þessi gjöld geta verið breytileg eftir álagi á við
komandi svæðum og fleiri þáttum. Það verður eitt meginverkefnið við væntanlegan undirbún
ing fyrir breytingar á skipulagi raforkumála að móta gjaldskrá fyrir notkun flutningskerfisins og að hve miklu leyti jöfnun á raforkuverði á sér stað innan þess.
Ef ákveðið yrði að jöfnun orkuverðs yrði að verulegu leyti utan raforkukerfisins koma helst til greina svipaðar aðferðir og nú er beitt til að jafna orkuverð til hitunar íbúðarhús
næðis, þ.e. niðurgreiðslur og endurgreiðsla á virðisaukaskatti. Auk þess geta að sjálfsögðu komið til styrkir til raforkufyrirtækja vegna þess sem að framan hefur verið nefnt félagslegur þáttur í starfsemi orkufyrirtækjanna. Sá styrkur gæti annaðhvort verið í formi árlegs framlags eða til þess að greiða hluta af kostnaði við fjárfestingu í flutningskerfinu sem nauðsynleg er til að halda uppi lágmarksþjónustu á svæðum þar sem tekjur geta ekki staðið undir fjárfest
ingunni.
Á þessu stigi er ekki tímabært að segja fyrir um hvaða aðferðum verður beitt til að jafna orkuverð í breyttu skipulagi raforkumála. Markmiðið verður að tryggja ekki lakari jöfnun á raforkuverði, en að hún verði ljósari en nú. Það er verkefni næstu ára að vinna að því að breyta skipulaginu. Þörf fyrir orkuverðsjöfnun og umfang hennar mun að sjálfsögðu ráðast af því hve miklar breytingar verða gerðar á skipulaginu og því starfsumhverfi sem raforku
fyrirtækjunum verður búið. Slíkrar breytingar þurfa að tryggja orkufyrirtækjunum þær rekstrarforsendur að samkeppni milli þeirra verði á jafnréttisgrundvelli.