Ferill 360. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1378 – 360. mál.
Svar
umhverfisráðherra við fyrirspurn Sigríðar Jóhannesdóttur um orkugjafa fiskimjölsverk
1. Hvað er olía stór hluti orkugjafa í íslenskum fiskimjölsverksmiðjum?
Samkvæmt upplýsingum frá Hollustuvernd ríkisins er svartolía 9/ 10 hlutar orkugjafa í fiskimjölsverksmiðjum hér á landi.
2. Hver yrði minnkun koltvísýringsmyndunar Íslendinga ef allar fiskimjölsverksmiðjur væru reknar með vistvænum orkugjöfum?
Olíunotkun á hvert tonn hefur farið minnkandi á undanförnum árum. Miðað er við að notkun svartolíu sé 45 kg fyrir hvert tonn af mótteknu (bræddu) hráefni. Losun á koltvíoxíði er mismunandi frá ári til árs eftir því hversu mikið af bræðslufiski verksmiðjurnar taka á móti. Taki verksmiðjurnar í heild á móti 1 milljón tonna á ári verður losun koltvíoxíðs af völdum olíubrunans um 140 þúsund tonn. Sé tekið á móti 1,3 milljónum tonna af hráefni verður losun koltvíoxíðs 180 þúsund tonn.
3. Hver yrði kostnaðurinn við að skipta yfir í rafmagn eða gufuafl við fiskimjölsframleiðslu?
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur ráðuneytinu ekki tekist að afla upplýsinga um þetta, þannig að þær virðast ekki liggja fyrir. Þessi þáttur heyrir reyndar ekki undir verksvið ráðu
4. Fengju fiskimjölsverksmiðjur rafmagn til vinnslunnar á svipuðu verði og önnur stóriðja?
Samkvæmt upplýsingum frá iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti samþykkti stjórn Landsvirkj
Síldarvinnslunnar hf., Neskaupstað,
Krossaness hf., Akureyri,
Lýsis og Mjöls hf., Grindavík,
SR-Mjöls hf., Helguvík.
Verð það sem þessar fiskimjölsverksmiðjur greiða fram til 1. apríl 2000 samkvæmt nú
5. Ef svo væri, hver væri þá verðmunur á vinnslu með olíu og vinnslu með endurnýjanlegum orkugjöfum?
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur ráðuneytinu ekki tekist að afla upplýsinga um þetta, þannig að þær virðast ekki liggja fyrir. Þessi þáttur heyrir reyndar ekki undir verksvið ráðu
Eins og fram kemur hér að framan hefur ráðuneytinu ekki tekist að afla upplýsinga vegna svara við 3. og 5. lið. Ráðuneytið telur eigi að síður rétt að benda á skýrslu starfshóps iðnað