Ferill 288. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1388 – 288. mál.
Frumvarp til sveitarstjórnarlaga.
(Eftir 2. umr., 8. maí.)
I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Almennt.
Sveitarfélög eru lögaðilar.
Hver maður telst íbúi þess sveitarfélags þar sem hann á lögheimili.
2. gr.
Yfirstjórn sveitarstjórnarmála.
Engu málefni sem varðar sérstaklega hagsmuni sveitarfélags skal ráðið til lykta án um
3. gr.
Staðarmörk sveitarfélaga.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. getur ráðuneytið breytt mörkum sveitarfélaga í sambandi við sameiningu þeirra eða til staðfestingar á samkomulagi milli sveitarstjórna.
4. gr.
Heiti sveitarfélaga.
5. gr.
Byggðarmerki.
Byggðarmerki skulu skráð hjá Einkaleyfastofunni sem veitir umsóknum viðtöku og kannar skráningarhæfi merkjanna. Umsókn skal fylgja tilskilið gjald.
Skráning byggðarmerkis veitir sveitarfélagi einkarétt á notkun þess.
Iðnaðarráðherra setur nánari reglur um skráningu byggðarmerkja, m.a. varðandi umsóknir og meðferð þeirra, skilyrði fyrir skráningu, ógildingu, birtingu og gjöld fyrir umsóknir og vottorð úr byggðarmerkjaskrá.
6. gr.
Lágmarksíbúatala.
Nú hefur íbúafjöldi sveitarfélags verið lægri en 50 í þrjú ár samfleytt og skal ráðuneytið þá eiga frumkvæði að því að sameina það nágrannasveitarfélagi. Einnig má þá skipta hinu fámenna sveitarfélagi milli nágrannasveitarfélaga.
Undantekningu frá þessu ákvæði skal gera ef sérstakar aðstæður hindra það að mati ráðu
7. gr.
Almennar skyldur sveitarfélaga.
Sveitarfélög skulu vinna að sameiginlegum velferðarmálum íbúanna eftir því sem fært þykir á hverjum tíma.
Sveitarfélög geta tekið að sér hvert það verkefni sem varðar íbúa þeirra, enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum.
Sveitarfélög skulu hafa sjálfstæða tekjustofna og sjálfsforræði á gjaldskrá eigin fyrirtækja og stofnana til þess að mæta kostnaði við framkvæmd þeirra verkefna sem fyrirtækin og stofnanirnar annast.
Sveitarfélög skulu setja sér stefnu um arðgjafar- og arðgreiðslumarkmið í rekstri fyrir
II. KAFLI
Sveitarstjórnir og sveitarstjórnarfundir.
8. gr.
Sveitarstjórn.
9. gr.
Hlutverk og verksvið sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn hefur ákvörðunarvald um nýtingu tekjustofna sveitarfélagsins og um fram
Sveitarstjórn skal sjá um að lögbundin verkefni sveitarfélagsins séu rækt og að fylgt sé þeim reglum um meðferð sveitarstjórnarmála sem ákveðnar eru í lögum, reglugerðum og samþykktum sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn getur ályktað um hvert það málefni sem hún telur að varði sveitarfélagið.
10. gr.
Samþykkt um stjórn og stjórnsýslu.
11. gr.
Heiti sveitarstjórna o.fl.
Í Reykjavíkurborg nefnist sveitarstjórnin borgarstjórn, framkvæmdastjóri sveitarfélagsins borgarstjóri og byggðarráð sveitarfélagsins borgarráð.
Heiti sveitarstjórnar, byggðarráðs og framkvæmdastjóra er ákveðið í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.
12. gr.
Fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn.
a. þar sem íbúar eru innan við 200 3–5 aðalmenn,
b. þar sem íbúar eru 200–999 5–7 aðalmenn,
c. þar sem íbúar eru 1.000–9.999 7–11 aðalmenn,
d. þar sem íbúar eru 10.000–49.999 11–15 aðalmenn,
e. þar sem íbúar eru 50.000 eða fleiri 15–27 aðalmenn.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er ekki skylt að fækka eða fjölga aðalmönnum í sveitarstjórn fyrr en íbúatala sveitarfélags hefur verið hærri eða lægri en viðmiðunarmörkin í átta ár sam
Kveðið skal á um fjölda fulltrúa í sveitarstjórn í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.
13. gr.
Fyrsti fundur nýkjörinnar sveitarstjórnar.
Sá kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn sem á að baki lengsta setu í sveitarstjórninni kveður hana til fyrsta fundar eigi síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum eftir kosningar og stýr
14. gr.
Kjör oddvita og varaoddvita.
Kjörtímabil oddvita og varaoddvita er eitt ár. Nú nýtur oddviti ekki lengur stuðnings meiri hluta þeirra sem sæti eiga í sveitarstjórn og skal hann þá víkja sæti og oddvitakjör fara fram á ný.
Sá er rétt kjörinn oddviti eða varaoddviti sem hefur fengið atkvæði meiri hluta þeirra sem sæti eiga í sveitarstjórn. Verði þeim atkvæðafjölda eigi náð skal kjósa að nýju og skal þá kjósa um þá tvo er flest fengu atkvæðin. Ef þrír eða fleiri sem um skyldi kjósa hafa fengið jafnmörg atkvæði skal varpa hlutkesti um hverja tvo skuli kjósa. Verður þá sá rétt kjörinn sem fleiri atkvæði fær þó að hann fái ekki helming atkvæða. Verði atkvæði jöfn ræður hlut
Tilkynna skal kjör oddvita og varaoddvita til ráðuneytisins þegar að því loknu.
Ef oddviti deyr, verður varanlega forfallaður frá sveitarstjórnarstörfum eða nýtur ekki lengur trausts sveitarstjórnar sem oddviti áður en kjörtími hans er á enda skal kjósa oddvita í hans stað það sem eftir er kjörtímabilsins.
15. gr.
Sveitarstjórnarfundir.
Skylt er að kveðja sveitarstjórn saman til fundar þegar a.m.k. þriðjungur sveitarstjórnar
16. gr.
Opnir fundir.
17. gr.
Boðun sveitarstjórnarfunda.
18. gr.
Auglýsing sveitarstjórnarfunda.
Sveitarstjórn skal í upphafi kjörtímabils taka ákvörðun um hvernig fundir hennar eru aug
Miðað skal við að sem flestir íbúar sveitarfélags hafi greiðan aðgang að auglýsingu um sveitarstjórnarfundi.
Þegar dagskrá sveitarstjórnarfundar hefur verið samin og send sveitarstjórnarmönnum skal hún vera aðgengileg íbúum sveitarfélagsins, svo sem á auglýsingatöflu sveitarfélagsins, skrifstofu sveitarfélagsins á venjulegum afgreiðslutíma eða með öðrum hætti er sveitarstjórn ákveður.
19. gr.
Hæfi sveitarstjórnarmanna.
Sveitarstjórnarmenn eru ekki vanhæfir þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum sveitarstjórnar eða ákveða þóknun fyrir slík störf.
Sveitarstjórnarmenn sem jafnframt eru starfsmenn sveitarfélaga og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa tiltekið mál sem lagt er fyrir sveitarstjórn eru alltaf vanhæfir þegar sveitar
Ákvæði 3. mgr. á ekki við þegar sveitarstjórn fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélagsins.
Sveitarstjórnarmanni sem veit hæfi sitt orka tvímælis ber að vekja athygli á því. Sveitar
Sveitarstjórnarmaður sem vanhæfur er við úrlausn máls skal yfirgefa fundarsal sveitar
20. gr.
Ályktunarhæfi og atkvæðagreiðsla.
Á sveitarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í at
Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og móti því fellur það en við kosningar ræður hlut
Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa, skal kosning fara fram eins og við oddvitakjör.
21. gr.
Tvær umræður í sveitarstjórn.
a. fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja,
b. ársreikninga sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja,
c. samþykktir og reglugerðir sem samkvæmt lögum eiga að hljóta staðfestingu ráðherra,
d. áætlanir fyrir sveitarfélagið sem gilda eiga til lengri tíma, svo sem skipulags- og framkvæmdaáætlanir,
e. beiðni um aðstoð skv. 75. gr.
22. gr.
Hlutverk oddvita.
23. gr.
Fundargerðir.
Allir kjörnir sveitarstjórnarmenn sem mættir eru skulu undirrita fundargerðir sveitar
Sveitarstjórn er heimilt að ákveða að fundargerðir verði skráðar í tölvu. Sé það gert skal bóka í gerðabók sveitarstjórnar númer fundar, hvar og hvenær fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundar
Í lok fundar skal tölvuskráð fundargerð prentuð út og hún undirrituð af fundarmönnum. Einnig skal oddviti og a.m.k. einn fundarmanna setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerða sem blaðsíðusettar skulu í áframhaldandi töluröð.
Undirritaðar tölvuskráðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn í fundargerðabók sveitarstjórnar til varanlegrar varðveislu.
24. gr.
Varamenn.
Nú er framboðslisti borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum og geta þá aðalmenn listans komið sér saman um mismunandi röð varamanna eftir því hver aðalmanna hefur forfallast. Yfirlýsing um slíkt samkomulag skal lögð fram á fyrsta eða öðr
Nú næst ekki samkomulag milli stjórnmálaflokka eða samtaka, sem standa að sameigin
Þegar aðalmaður flytur úr sveitarfélaginu um stundarsakir má ákveða að hann skuli víkja úr sveitarstjórn þar til hann tekur aftur búsetu í sveitarfélaginu. Tekur þá varamaður hans sæti samkvæmt framangreindum reglum.
25. gr.
Fundarsköp sveitarstjórnar.
Ráðuneytið semur fyrirmynd að fundarsköpum fyrir sveitarstjórnir og birtir hana í Stjórn
26. gr.
Sveitarstjórn óstarfhæf vegna neyðarástands.
III. KAFLI
Réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna.
27. gr.
Mæting á fundi o.fl.
Hver sveitarstjórnarmaður er skyldur til að inna af hendi störf sem sveitarstjórn felur hon
28. gr.
Afstaða til einstakra mála o.fl.
Vilji sveitarstjórnarmaður eigi una úrskurði oddvita varðandi stjórn og fundarsköp getur hann skotið úrskurðinum til sveitarstjórnar sem sker úr án umræðna.
29. gr.
Málfrelsi, tillöguréttur, atkvæðisréttur o.fl.
30. gr.
Aðgangur að gögnum.
31. gr.
Bókanir í fundargerðir.
32. gr.
Þagnarskylda.
33. gr.
Skylda til að taka kjöri.
Sá sem verið hefur oddviti heilt kjörtímabil eða lengur eða gegnt ákveðnu starfi innan sveitarstjórnar jafnlangan tíma eða lengur getur skorast undan kosningu til þess starfs jafn
34. gr.
Lausn frá störfum.
Missi fulltrúi í sveitarstjórn kjörgengi skal hann víkja úr sveitarstjórninni, sbr. þó ákvæði 4. mgr. 24. gr.
Nú er sveitarstjórnarmaður af einhverjum ástæðum sviptur fjárforræði og skal sveitar
35. gr.
Þóknun og ferðakostnaður.
Nú tekst sveitarstjórnarmaður ferð á hendur í þágu sveitarfélagsins samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar og á hann þá rétt til greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.
36. gr.
Orlof o.fl.
Sveitarstjórn er heimilt að setja í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins ákvæði um réttindi sveitarstjórnarmanna, svo sem varðandi lífeyrissjóði, barnsburðarleyfi, biðlaun o.þ.h.
37. gr.
Réttindi og skyldur varamanna.
IV. KAFLI
Nefndir, ráð og stjórnir.
38. gr.
Kosning byggðarráðs.
Byggðarráð skal kjörið til eins árs í senn nema annað sé ákveðið í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.
Í sveitarstjórnum sem skipaðar eru sjö eða níu fulltrúum skal byggðarráð skipað þremur aðalmönnum úr hópi aðalfulltrúa í sveitarstjórn, en fimm eða sjö aðalmönnum þar sem ellefu eða fleiri fulltrúar eru í sveitarstjórn. Jafnmargir varamenn skulu kosnir. Sveitarstjórn er þó heimilt að ákveða í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins að þeir aðalfulltrúar og varafull
Formaður byggðarráðs skal valinn úr hópi kjörinna byggðarráðsmanna.
Sveitarstjórn, sem kjörin er bundinni hlutfallskosningu, getur heimilað framboðsaðila sem fulltrúa á í sveitarstjórn en eigi nær kjöri í byggðarráð að tilnefna fulltrúa til að sitja fundi ráðsins með málfrelsi og tillögurétti. Skal heimila framboðsaðila sem fulltrúa á í sveitar
Framkvæmdastjóri sveitarfélags situr fundi byggðarráðs með málfrelsi og tillögurétti en atkvæðisrétt hefur hann því aðeins að hann sé kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn og kosinn í byggðarráðið.
39. gr.
Hlutverk byggðarráðs.
Heimilt er að láta byggðarráð taka að meira eða minna leyti við starfi fastra nefnda.
Byggðarráði er heimil fullnaðarákvörðun mála sem eigi varða verulega fjárhag sveitar
Um byggðarráð gilda að öðru leyti ákvæði þessa kafla.
40. gr.
Kosning í aðrar nefndir, ráð og stjórnir.
Kosningar í byggðarráð, nefndir, ráð og stjórnir skulu vera leynilegar og bundnar hlut
Þeir einir eru kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir á vegum sveitarfélags sem kosningarrétt eiga í sveitarfélaginu.
Sveitarstjórn er heimilt að skipta um fulltrúa í nefndum hvenær sem er á kjörtímabili nefndar, svo sem þegar nefndarmenn njóta ekki lengur trausts meiri hluta þeirra sem sæti eiga í sveitarstjórn. Enn fremur er fulltrúum í nefndum heimilt að segja af sér nefndarstörfum hvenær sem er á kjörtímabilinu.
Sveitarstjórn getur kosið nefndir til að fara með einstaka málaflokka á kjörtímabilinu.
Þá kýs sveitarstjórn fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélag á aðild að sam
Sveitarstjórn getur kosið nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda getur sveitarstjórn afturkallað hvenær sem er og fellur það sjálfkrafa niður við lok kjörtímabils viðkomandi sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn getur kosið nefnd til að fara með afmörkuð málefni í hluta sveitarfélags. Ákveða má í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins að slíka nefnd skuli kjósa í almennum kosningum í viðkomandi hluta sveitarfélagsins.
41. gr.
Sameining nefnda.
Í sveitarfélögum þar sem erfiðlega horfir með að manna nefndir er sveitarstjórn heimilt að fara sjálf með verkefni lögskipaðrar nefndar nema verkefni nefndarinnar sé ósamrýman
42. gr.
Kjörgengi starfsmanna.
43. gr.
Varamenn.
Ef tveir eða fleiri flokkar eða framboðsaðilar hafa haft samstarf um nefndarkosningar skal þó sá aðili, sem tilnefndi viðkomandi mann til setu í nefnd, einnig tilnefna varamann hans sé eigi öðruvísi ákveðið í yfirlýsingu, sbr. 24. gr.
44. gr.
Hlutverk og valdsvið nefnda.
Sveitarstjórn getur falið nefnd, ráði eða stjórn fullnaðarafgreiðslu mála nema lög mæli á annan veg.
Í því skyni að stuðla að hagræðingu, skilvirkni og hraðari málsmeðferð er sveitarstjórn heimilt í samþykkt sveitarfélagsins að ákveða að fela öðrum aðilum en nefndum afgreiðslu mála sem ekki varða verulega fjárhag sveitarfélagsins. Slíkri afgreiðslu má þó ætíð skjóta til viðkomandi nefndar, byggðarráðs eða sveitarstjórnar.
45. gr.
Boðun fyrsta fundar.
Framkvæmdastjóri getur kallað saman tvær eða fleiri nefndir til að ræða mál er varða starfssvið fleiri nefnda en einnar.
46. gr.
Kjör formanns, varaformanns og ritara og hlutverk þeirra.
Formaður nefndar boðar nefndarfundi eða lætur boða með hæfilegum fyrirvara.
Nefndarformaður stjórnar fundi. Fundir skulu að jafnaði haldnir fyrir luktum dyrum. Nefnd getur kvatt á sinn fund starfsmenn sveitarfélags ef hún telur þess þörf. Hún getur einnig boðið öðrum aðilum að koma á fund nefndarinnar til viðræðna um tiltekin mál.
47. gr.
Réttindi og skyldur fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum.
Ákvæði II. og III. kafla laga þessara gilda að öðru leyti um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélags eftir því sem við á.
48. gr.
Fundargerðir.
Sé um ráðgefandi nefnd að ræða, sem ekki hefur verið falin fullnaðarafgreiðsla máls sam
49. gr.
Afgreiðsla fundargerða.
Fundargerðir skulu fylgja dagskrá reglulegra sveitarstjórnarfunda.
50. gr.
Þóknun.
Sveitarstjórn er heimilt að ákveða að greiða áheyrnarfulltrúum þóknun fyrir störf þeirra í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélags.
V. KAFLI
Framkvæmdastjórn og starfslið sveitarfélaga.
51. gr.
Almennt.
52. gr.
Ekki ráðinn framkvæmdastjóri.
53. gr.
Laun oddvita þar sem eigi er starfandi framkvæmdastjóri.
Ef um er að ræða sérstakar, umfangsmiklar og tímabundnar framkvæmdir á vegum sveit
Láti oddviti í té húsnæði og aðra aðstöðu vegna skrifstofuhalds og fundahalda í þágu sveitarfélags á hann rétt á sérstakri greiðslu fyrir þá þjónustu.
54. gr.
Ráðning framkvæmdastjóra.
Sveitarstjórn skal gera skriflegan ráðningarsamning við framkvæmdastjóra þar sem starfskjör hans eru ákveðin.
Ráðningartími framkvæmdastjóra sveitarfélags skal að jafnaði vera sami og kjörtími sveitarstjórnar. Heimilt er að ráða framkvæmdastjóra sveitarfélags til óákveðins tíma en uppsagnarfrestur skal þá vera þrír mánuðir af beggja hálfu miðað við mánaðamót.
Taka skal sérstaklega fram í ráðningarsamningi við framkvæmdastjóra hvort ráðningin miðist við kjörtíma sveitarstjórnar eða gildi um óákveðinn tíma.
55. gr.
Verksvið framkvæmdastjóra.
Framkvæmdastjóri undirbýr fundi sveitarstjórnar og byggðarráðs og hefur á hendi fram
Framkvæmdastjóri er prókúruhafi sveitarsjóðs. Framkvæmdastjóra er heimilt að veita öðrum starfsmanni sveitarfélagsins prókúru að fengnu samþykki sveitarstjórnar. Prókúru
Framkvæmdastjóri undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lán
Framkvæmdastjóri er æðsti yfirmaður annars starfsliðs sveitarfélagsins.
Í samþykkt um stjórn sveitarfélags skal setja nánari ákvæði um verksvið framkvæmda
56. gr.
Ráðning annarra starfsmanna.
Um ráðningu annarra starfsmanna fer eftir ákvæðum í samþykkt um stjórn sveitarfélags. Séu þar eigi sérstök ákvæði þessa efnis gefur sveitarstjórn almenn fyrirmæli um hvernig staðið skuli að ráðningu starfsmanna.
57. gr.
Starfskjör, réttindi og skyldur.
VI. KAFLI
Fjármál sveitarfélaga.
58. gr.
Almennt um bókhald og reikningsskil sveitarfélaga.
Bókhaldi skal hagað á skýran og aðgengilegan hátt og skulu reikningsskil gefa glögga mynd af rekstri og efnahag sveitarfélagsins í heild. Að svo miklu leyti sem við á gilda ákvæði laga um bókhald og laga um ársreikninga, svo og aðrar góðar bókhalds- og reikningsskila
59. gr.
Reikningsárið.
60. gr.
Flokkun í reikningsskilum sveitarfélaga.
a. sveitarsjóður, sem í lögum þessum merkir aðalsjóð sveitarfélags auk annarra sjóða og stofnana er sinna starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð af skatttekjum,
b. stofnanir sveitarfélaga, fyrirtæki og aðrar rekstrareiningar sem að hálfu eða meiri hluta eru í eigu sveitarfélaga og eru reknar sem fjárhagslega sjálfstæðar einingar.
61. gr.
Fjárhagsáætlun.
Fjárhagsáætlun samkvæmt þessari grein skal vera meginregla um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjármálastjórn sveitarsjóðs og stofnana sveitarfélagsins á viðkomandi reiknings
Sveitarstjórn skal árlega gæta þess svo sem kostur er að heildarútgjöld sveitarfélags, þar með talin rekstrarútgjöld, fari ekki fram úr heildartekjum þess.
Fjárhagsáætlun skal rædd á tveimur fundum í sveitarstjórn með a.m.k. einnar viku millibili.
Í fjárhagsáætlun skal koma fram rekstrar- og framkvæmdaáætlun, áætlun um efnahag í upphafi og lok árs, auk áætlaðra fjármagnshreyfinga. Form fjárhagsáætlunar skal vera í sam
62. gr.
Breytingar á fjárhagsáætlun.
Samþykki sveitarstjórn fjárveitingu sem ekki er gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun skal hún jafnframt kveða á um hvernig útgjöldum skuli mætt. Samþykki slíkrar fjárveitingar telst breyting á fjárhagsáætlun.
63. gr.
Þriggja ára áætlun.
64. gr.
Útgjöld úr sveitarsjóði.
65. gr.
Miklar fjárfestingar.
66. gr.
Skil á fjárhagsáætlun o.fl. til ráðuneytisins.
67. gr.
Ársreikningur.
Ársreikningurinn skal gerður samkvæmt lögum, reglum og góðri reikningsskilavenju.
Ársreikningur skal sýna yfirlit um rekstur og framkvæmdir á reikningsárinu og efnahags
Ráðherra setur með reglugerð nánari ákvæði um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga að höfðu samráði við Hagstofu Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga.
68. gr.
Endurskoðun ársreiknings.
Heimilt er þó sveitarstjórn að ákveða að endurskoðun sveitarsjóðs, stofnana og fyrirtækja sveitarfélagsins verði falin sérstakri endurskoðunarstofnun á vegum sveitarfélagsins. Skal slík endurskoðunarstofnun vera undir stjórn forstöðumanns sem skal hafa löggildingu sem endurskoðandi. Stofnunin skal heyra beint undir sveitarstjórn og vera óháð öllum nefndum, ráðum, stjórnum, fyrirtækjum og stofnunum sveitarfélagsins við framkvæmd endurskoðunar
Endurskoðandi sveitarfélags skal haga endurskoðun í samræmi við lög og reglur og góðar endurskoðunarvenjur eins og þær eru á hverjum tíma hjá opinberum aðilum. Með endurskoð
Endurskoðandi sveitarfélags skal kynna skoðunarmönnum skv. 69. gr. athugun sína og endurskoðun tímanlega fyrir áritun ársreiknings.
69. gr.
Skoðunarmenn.
Skoðunarmenn skulu yfirfara ársreikning sveitarfélagsins. Einnig skulu þeir athuga ein
Skoðunarmenn skulu koma tímanlega á framfæri við endurskoðanda sveitarfélags þeim ábendingum og upplýsingum sem þeir telja að við eigi og geti orðið innlegg í endurskoðunar
70. gr.
Aðgangur að upplýsingum.
71. gr.
Áritun ársreiknings.
Endurskoðandi skal gefa yfirlýsingu um að ársreikningurinn hafi verið endurskoðaður og að hann hafi verið saminn í samræmi við ákvæði laga, reglna og samþykkta. Endurskoðandi skal enn fremur láta í ljós skriflegt álit sitt á ársreikningnum og greina frá niðurstöðu endur
Skoðunarmenn skulu í áritun sinni staðfesta að þeir hafi yfirfarið ársreikninginn og jafn
Telji endurskoðandi og skoðunarmenn að í ársreikningi séu ekki þær upplýsingar sem þar eiga að koma fram skulu þeir geta þess í áritun sinni, gera grein fyrir því í greinargerð og veita viðbótarupplýsingar ef þess er kostur. Að öðru leyti geta þeir greint frá þeim atriðum sem þeir telja eðlilegt að fram komi í ársreikningi.
Ábendingar og athugasemdir, sem endurskoðandi og skoðunarmenn vilja koma á framfæri við sveitarstjórn eða framkvæmdastjóra sveitarfélags, skal bera fram skriflega og skal að
Ef endurskoðanda eða skoðunarmönnum þykir ástæða til skulu þeir gera tillögur til sveit
Sveitarstjórn skal varðveita á öruggan hátt öll gögn um endurskoðunina og samskiptin við endurskoðanda og skoðunarmenn.
Endurskoðanda eða skoðunarmönnum er hvorki heimilt að gefa óviðkomandi upplýsingar um hag sveitarfélags, stofnana þess eða fyrirtækja né annað það er þeir komast að í starfi sínu.
Ráðherra getur í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga sett með reglugerð nánari ákvæði um endurskoðun hjá sveitarfélögum, svo sem um verkaskiptingu endurskoðanda og skoðunarmanna.
72. gr.
Afgreiðsla sveitarstjórnar á ársreikningi.
Sveitarstjórn skal taka til umfjöllunar og afgreiðslu álit, greinargerðir og tillögur endur
Sveitarstjórnir skulu hafa lokið fullnaðarafgreiðslu ársreiknings sveitarsjóðs, stofnana sveitarfélags og fyrirtækja þess eigi síðar en 1. júní. Sveitarstjórn og framkvæmdastjóri sveitarfélagsins skulu árita ársreikninginn og senda ráðuneytinu og Hagstofu Íslands fyrir 15. júní ár hvert ásamt greinargerð endurskoðanda og skoðunarmanna.
Vanræki sveitarstjórn að afgreiða eða skila ársreikningum sínum innan tilskilins frests getur ráðuneytið stöðvað greiðslur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til viðkomandi sveitar
73. gr.
Tryggingar og ábyrgðir.
Eigi má sveitarfélag veðsetja öðrum tekjur sínar né heldur fasteignir sem nauðsynlegar eru til þess að sveitarfélagið geti rækt lögskyld verkefni sín. Aðrar eignir getur sveitarfélag veðsett í þágu sveitarsjóðs, stofnana sveitarfélagsins og fyrirtækja þess.
Sveitarfélag getur veitt Lánasjóði sveitarfélaga tryggingar í tekjum sínum vegna lána sem það tekur hjá sjóðnum. Félagsmálaráðherra getur sett í reglugerð nánari ákvæði um trygging
Eigi má framkvæma aðför í þeim eignum sveitarfélaga sem nauðsynlegar eru til fram
Kröfur á hendur sveitarsjóði má eigi nota til skuldajafnaðar við kröfu sveitarfélags um lögboðin gjöld til sveitarsjóðs eða stofnana sveitarfélagsins.
Eigi má binda sveitarsjóð í ábyrgðir vegna skuldbindinga annarra aðila en stofnana sveitarfélagsins. Prókúruhafa sveitarsjóðs er þó heimilt fyrir hönd sveitarfélags að ábyrgjast með framsalsáritun greiðslu viðskiptaskjala sem sveitarfélagið hefur eignast á eðlilegan hátt í tengslum við daglegan rekstur þess.
74. gr.
Eftirlitsnefnd.
Nefndin skal árlega athuga reikningsskil sveitarfélaga og bera þau saman við viðmiðanir skv. 4. mgr. þessarar greinar og ákvæði 3. mgr. 61. gr. Leiði athugun í ljós að fjármál sveitarfélags stefni í óefni skal nefndin aðvara viðkomandi sveitarfélag og samhliða upplýsa ráðuneytið um álit sitt. Sveitarstjórn er skylt í slíkum tilvikum að gera eftirlitsnefndinni innan tveggja mánaða grein fyrir hvernig sveitarstjórnin hyggst bregðast við aðvörun nefnd
Þóknun til eftirlitsnefndarmanna skal ákveðin af ráðherra. Þóknunin og annar kostnaður af starfi nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði.
Ráðherra setur í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga reglugerð um störf og máls
75. gr.
Fjárþröng.
Eftirlitsnefnd skal þá tafarlaust láta fara fram rannsókn á fjárreiðum og rekstri sveitar
Eftirlitsnefnd er heimilt að grípa til aðgerða skv. 2. mgr. hafi sveitarstjórn ekki sinnt að
Komi í ljós við rannsókn að fjárhagur sveitarfélags sé slíkur að það geti ekki með eðli
76. gr.
Svipting fjárforráða.
Áður en sveitarstjórn verður svipt fjárforráðum sveitarfélags samkvæmt þessari grein skal ráðuneytið þó skora á sveitarstjórn að koma fjármálum sveitarfélagsins á réttan kjöl og er ráðuneytinu heimilt að veita sveitarstjórn allt að sex mánaða frest í því skyni. Ráðuneytið getur þá jafnframt óskað eftir að sveitarfélaginu verði veitt heimild til greiðslustöðvunar eða til að leita nauðasamnings eftir almennum reglum.
Heimilt er sveitarstjórn að höfða mál fyrir dómi til ógildingar ákvörðun ráðherra um sviptingu fjárforræðis.
77. gr.
Fjárhaldsstjórn.
Fjárhaldsstjórn skal skipuð til tiltekins tíma og eigi lengur en til eins árs í senn.
Þóknun til fjárhaldsmanna skal ákveðin af ráðherra og greiðist úr ríkissjóði.
Birta skal ákvörðun um sviptingu fjárforræðis og skipun fjárhaldsstjórnar í Lögbirtinga
78. gr.
Hlutverk fjárhaldsstjórnar.
Fjárhaldsstjórn skal rannsaka fjárreiður sveitarfélagsins og allan rekstur þess og gera nýja áætlun um tekjur og gjöld sveitarfélagsins fyrir næstu tvö fjárhagsár.
Áætlun þessa skal senda ráðuneytinu til staðfestingar ásamt umsögn sveitarstjórnar. Að lokinni staðfestingu ráðuneytis gildir áætlunin sem fjárhagsáætlun sveitarfélagsins, a.m.k. meðan sveitarfélagið er undir fjárhaldsstjórn.
Fjárhaldsstjórn getur með samþykki ráðuneytisins selt eigur sveitarfélagsins til lúkningar skuldum, þó eigi þær eigur sem nauðsynlegar eru til framkvæmda á lögskyldum verkefnum, sbr. 73. gr. Með sama móti getur fjárhaldsstjórn ákveðið að færa tiltekna starfsemi sem rekin hefur verið á vegum sveitarfélagsins í hendur einkaaðila.
79. gr.
Sameining við annað sveitarfélag.
80. gr.
Brottfall sviptingar fjárforráða.
VII. KAFLI
Samvinna sveitarfélaga.
81. gr.
Almennt.
82. gr.
Stofnun byggðasamlags.
Í samningi sem gera skal um byggðasamlag skulu vera ákvæði meðal annars um stjórn samlagsins og kjör fulltrúa til hennar, fjölda þeirra, kjörtímabil, um varafulltrúa og annað sem máli skiptir í því sambandi.
Í samningnum skulu vera ákvæði um hvenær stjórnarfundur er ályktunarhæfur og um umboð stjórnar til að skuldbinda sveitarsjóði. Þá skulu vera ákvæði um í hvaða tilvikum þörf er staðfestingar sveitarstjórna á samþykktum sem gerðar eru í stjórn byggðasamlags.
Þar sem eigi er öðruvísi ákveðið í samþykktum byggðasamlags gilda eftir því sem við eiga meginreglur laga þessara um meðferð mála, skyldur og réttindi stjórnarmanna, starfslið, meðferð fjármála og endurskoðun ársreikninga.
Sveitarsjóðir bera einfalda ábyrgð á fjárhagslegum skuldbindingum byggðasamlags sem þeir eru aðilar að en innbyrðis skiptist ábyrgðin í hlutfalli við íbúatölu.
83. gr.
Endurskoðun samþykkta byggðasamlaga.
Til þess að breyting á samþykktum fyrir byggðasamlag nái fram að ganga þurfa 2/ 3 hlutar sveitarstjórna aðildarsveitarfélaga að staðfesta hana eða hún hafi verið samþykkt í almennri atkvæðagreiðslu á starfssvæði byggðasamlagsins, en 2/ 3 hlutar stjórnarmanna geta krafist þess að slík atkvæðagreiðsla fari fram um tillögu til breytinga á samþykktunum.
84. gr.
Úrganga úr byggðasamlagi.
Óski sveitarstjórnin eftir því að fá nettóeignarhluta sinn í byggðasamlagi innleystan er eigi skylt að greiða hann á skemmri tíma en 20 árum. Náist eigi samkomulag um verðmæti eignarhlutans eða greiðslukjör skal það úrskurðað af þremur dómkvöddum, hæfum og óvil
85. gr.
Starfsemi byggðasamlags hætt.
Nú er ákveðið að hætta starfsemi byggðasamlags eða svo er fyrir mælt í lögum og skal þá skipa því sérstaka skiptastjórn er gerir upp eignir þess og skuldir og slítur rekstri þess. Heimilt er skiptastjórn að auglýsa eftir kröfum á hendur byggðasamlaginu með opinberri innköllun. Eftir að kröfur hafa verið greiddar skal afgangi eigna eða eftirstöðvum skulda jafnað á viðkomandi sveitarsjóði í hlutfalli við íbúatölu.
Skiptastjórn skal kjörin af stjórn byggðasamlags.
86. gr.
Landshlutasamtök sveitarfélaga.
Sveitarstjórnir kjósa fulltrúa á ársfund landshlutasamtaka eftir þeim reglum sem ákveðnar eru í samþykktum samtakanna.
87. gr.
Samband íslenskra sveitarfélaga.
VIII. KAFLI
Stækkun sveitarfélaga.
88. gr.
Almennt.
89. gr.
Skyldubundin sameining sveitarfélaga.
Nefndin skal gera tillögu um hverra kosta skuli leita varðandi sameiningu sveitarfélagsins við annað eða önnur sveitarfélög.
Þegar tillaga nefndarinnar liggur fyrir skal ráðuneytið fara þess á leit við viðkomandi sveitarfélag eða sveitarfélög að þau tilnefni til viðbótar fulltrúa í nefndina þannig að hvort eða hvert sveitarfélag eigi þar tvo fulltrúa. Nú berst ráðuneytinu eigi tilnefning í nefndina innan tilskilins frests og skal þá ráðuneytið skipa fulltrúa í nefndina án tilnefningar.
Nefndin skal síðan gera tillögu til viðkomandi sveitarstjórna um hvernig að sameiningu sveitarfélaganna skuli staðið.
Sé um fleiri en eina tillögu að ræða getur ráðuneytið ákveðið að láta fara fram almenna atkvæðagreiðslu meðal íbúa viðkomandi sveitarfélaga um tillögurnar.
Ráðuneytið skal óska eftir umsögn viðkomandi sveitarstjórna um sameiningarmálið en síðan ákveður ráðuneytið hvernig að sameiningu sveitarfélaganna skuli staðið.
Heimilt er ráðuneytinu að fresta sameiningu sveitarfélaga þar sem svo stendur á sem segir í 3. mgr. 6. gr.
90. gr.
Frjáls sameining sveitarfélaga.
Skal hvor eða hver sveitarstjórn kjósa tvo fulltrúa eða fleiri í nefndina eftir samkomulagi. Nefndin kýs formann úr sínum hópi.
Samstarfsnefnd skal starfa í samráði við ráðuneytið og skal það láta henni í té þá aðstoð er það telur nauðsynlega og úrskurða um vafaatriði er upp kunna að koma.
Þegar samstarfsnefnd hefur skilað áliti sínu um sameiningu skulu viðkomandi sveitar
Að lokinni umræðu sveitarstjórna skal síðan fara fram atkvæðagreiðsla innan sveitar
Samstarfsnefndin eða viðkomandi sveitarstjórnir skulu kynna íbúum sveitarfélaganna þá tillögu sem greiða skal atkvæði um með hæfilegum fyrirvara og með tryggum hætti, svo sem með dreifibréfi eða almennum fundi.
Sveitarstjórn lætur gera atkvæðaseðil til afnota við atkvæðagreiðsluna í samráði við ráðu
91. gr.
Skilyrði fyrir frjálsri sameiningu.
Hljóti tillaga samstarfsnefndar skv. 90. gr. ekki samþykki í öllum hlutaðeigandi sveitar
92. gr.
Fjárhagslegar ráðstafanir eftir samþykki sameiningartillögu.
93. gr.
Staðfesting ráðuneytisins.
Séu sveitarfélög þau sem sameinuð eru í umdæmi tveggja eða fleiri sýslumanna skal ráðu
94. gr.
Sameining yfir mörk kjördæma.
95. gr.
Birting ákvörðunar um sameiningu.
96. gr.
Kosning nýrrar sveitarstjórnar.
97. gr.
Endurskoðun reglugerða og samþykkta.
98. gr.
Fjárhagsleg aðstoð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
99. gr.
Afsláttur af fasteignaskatti.
IX. KAFLI
Samskipti ríkis og sveitarfélaga.
100. gr.
Samstarfssáttmáli.
101. gr.
Breyting á verkaskiptingu eða fjármálalegum samskiptum.
102. gr.
Eftirlitshlutverk ráðuneytisins.
Vanræki sveitarstjórn skyldur sínar skal ráðuneytið veita henni áminningu og skora á hana að bæta úr vanrækslunni.
Verði sveitarstjórn eigi við áskorun ráðuneytisins innan frests sem ráðuneytið tiltekur er því heimilt að stöðva greiðslur til sveitarsjóðs úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga þar til bætt hefur verið úr vanrækslunni. Jafnframt getur ráðuneytið með lögsókn krafist dagsekta af þeim sem ábyrgð bera á vanrækslunni og mega dagsektir nema allt að fimmföldum dag
103. gr.
Úrskurðarvald ráðuneytisins.
Ráðuneytið skal leitast við að kveða upp úrskurð innan tveggja mánaða frá því að því berst mál til úrskurðar.
Ráðuneytið skal árlega gefa út úrskurði sína í sveitarstjórnarmálefnum.
X. KAFLI
Önnur ákvæði.
104. gr.
Almennar atkvæðagreiðslur og borgarafundir.
Skylt er að halda almennan borgarafund ef 1/ 4 hluti atkvæðisbærra manna í sveitarfélaginu óskar þess.
Til almenns borgarafundar skal boðað með opinberri auglýsingu og skal þar taka fram hverjir hafi atkvæðisrétt á fundinum ef ætlunin er að atkvæðagreiðsla fari þar fram.
Ályktanir slíkra funda eru ekki bindandi fyrir sveitarstjórn.
Sveitarstjórn getur efnt til almennrar atkvæðagreiðslu í sveitarfélagi eða hluta þess til þess að kanna vilja kosningarbærra íbúa um tiltekið málefni. Niðurstaða atkvæðagreiðsl
Við framkvæmd atkvæðagreiðslu skv. 5. mgr. skal farið eftir meginreglum laga um kosn
105. gr.
Gildistaka.
Jafnframt falla úr gildi sveitarstjórnarlög, nr. 8/1986, með síðari breytingum, og lög um heimild sveitarfélaga til stofnunar og starfrækslu atvinnu- og þjónustufyrirtækja með tak
Ákvæði til bráðabirgða.
Eignarlandi skal skipað innan staðarmarka sama sveitarfélags og sú jörð sem það hefur áður tilheyrt nema fyrir liggi sérstakar heimildir um annað.
Nú eiga íbúar tiltekins sveitarfélags upprekstrarétt í afrétt sem ekki hefur verið skipað innan staðarmarka neins sveitarfélags og skal hann þá teljast til þess sveitarfélags. Ef íbúar fleiri en eins sveitarfélags eiga upprekstrarrétt í afréttinn og ekki næst samkomulag um til hvers þeirra hann skuli teljast sker úr um málið óbyggðanefnd, sem starfar samkvæmt lögum um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta. Óbyggðanefnd skal einnig skera úr ágreiningi sem rís vegna 2. mgr.
Þegar óbyggðanefnd úrskurðar að landsvæði skuli teljast þjóðlenda skal nefndin kveða á um hvernig þeim hluta þess sem ekki telst afréttur skuli skipað innan staðarmarka sveitar
Meðan óbyggðanefnd hefur ekki úrskurðað um einstök landsvæði, sem ekki hefur verið skipað innan staðarmarka sveitarfélaga, getur félagsmálaráðherra staðfest samkomulag sem sveitarfélög hafa gert um staðarmörk sveitarfélaga á slíkum svæðum.
Félagsmálaráðuneytið skal birta auglýsingu um ákvörðun á staðarmörkum sveitarfélaga samkvæmt ákvæði þessu í Stjórnartíðindum.