Ferill 642. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1390 – 642. mál.



Breytingartillögur



við frv. til l. um stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



1.      Við 1. gr. bætist: á árunum 1998–2000.
2.      Við 2. gr. Í stað fyrri málsliðar b-liðar komi: Skipta skal a.m.k. 90% af þeim árlegu heildarveiðiheimildum sem í hlut Íslands koma milli þeirra skipa, sem veiðar stunduðu úr norsk-íslenska síldarstofninum eitthvert áranna 1995, 1996 eða 1997, eða skipa sem komið hafa í þeirra stað. Skal skipta 60% á grundvelli veiðireynslu miðað við tvö bestu ár af þremur, á árunum 1995–1997, en 40% í samræmi við burðargetu skipanna miðað við stærsta landaðan farm.