Ferill 445. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1392 – 445. mál.



Nefndarálit



um frv. til l. um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhalds skólakennara og skólastjóra .

Frá minni hluta menntamálanefndar.



    Í gildandi lögum um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, fram haldsskólakennara og skólastjóra er kveðið á um endurskoðun þeirra eftir fjögur ár. Frum varp um endurskoðun laganna var fyrst lagt fram árið1990 á 113. löggjafarþingi og síðan á 121. löggjafarþingi án þess að hljóta afgreiðslu. Löngu er tímabært að endurskoða umrædd lög.
    Eftir umræðu í þjóðfélaginu um nauðsyn bætts skólastarfs veldur miklum vonbrigðum að ríkisstjórnin skuli leggja fram jafnmetnaðarlaust lagafrumvarp um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra og raun ber vitni.
    Þrátt fyrir stór orð um mikilvægi þess að efla kennaramenntun í kjölfar TIMMS-rann sóknanna á árangri íslenskra grunn- og framhaldsskólanema í raungreinum í nýlegri heildar úttekt á kennaramenntun í landinu og þrátt fyrir kröfur um aukna fagmennsku framhalds skólakennara í námsmati, mati á skólastarfi og skólanámskrárgerð í framhaldsskólalögunum ber lítið á metnaði í frumvarpinu og sums staðar er dregið úr menntunarkröfum frá því sem nú er. Mest er dregið úr kröfum um kennslufræðimenntun tveggja hópa framhaldsskólakenn ara, þ.e. tæknifræðinga og iðnmeistara annars vegar og þeirra sem hafa lokið 120 eininga námi eða meira á fagsviði framhaldsskóla hins vegar. Segja má að frumvarpið gengisfelli starfsréttindi framhaldsskólakennara. Þá er rýrt gildi kennararéttinda listgreinakennara í framhaldsskólum, sbr. 21. gr. frumvarpsins og breytingartillögu meiri hlutans við hana. Þetta er gert þvert á vilja samtaka kennara, þ.e. HÍK og KÍ, sem harma trúnaðarbrest sem varð milli samtakanna og menntamálaráðherra við samningu frumvarpsins, en því var breytt eftir að kennarasamtökin komu að málinu. Þetta gengur sömuleiðis þvert á vilja Félags íslenskra myndlistarkennara, en stjórn þess harmar að 30 eininga kennsluréttindanám, sem félagsmenn þeirra sækja til HÍ, er með þessu frumvarpi gert óþarft. Þetta er einnig gagnstætt vilja allra stofnana sem veita kennaramenntun, þ.e. Kennaraháskóla Íslands, Háskólans á Akureyri og Háskóla Íslands, sem mæla með að halda kröfum óbreyttum eða auka þær. Háskóli Íslands telur að skerðing á kennslufræðináminu sé í ósamræmi við tillögur matsnefndar um kennara menntun sem mælir með að kennsluárið sé lengt, það er 40 vikur víða erlendis en 26 vikur hér, og segir að ekki megi skerða grunnmenntun kennara og að auk 30 eininga kennslufræði náms í HÍ eigi að bjóða kennslufræði greina innan BA- og BS-námsins í deildum HÍ og auka æfingakennslu. Þá hefur verið bent á margs konar fagleg og fjárhagsleg rök gegn þessari skerðingu. Þau hafa verið ítarlega kynnt nefndinni og menntamálaráðherra. Enn eitt dæmið um gengisfellingu réttinda er að með frumvarpinu eru felld úr lögunum öll ákvæði um starfs heiti og starfsréttindi sérkennara, bæði í almennum skólum og sérskólum. Auk þess að minnka gildi menntunar sérkennara mun þetta gera erfiðara að ráða sérkennara til framhalds skóla, eins og bent er á í umsögn Skólameistarafélags Íslands. Þetta er gert án þess að sérkennarar hafi fengið tækifæri til að veita umsögn um frumvarpið. Af þessum sökum mun minni hlutinn fara fram á að menntamálanefnd hitti fulltrúa sérkennara á milli 2. og 3. um ræðu. Þá mun hann flytja breytingartillögur þar að lútandi við 3. umræðu ef ástæður þykja til.
    Í nefndaráliti meiri hlutans er því haldið fram að í frumvarpinu sé lögð áhersla á mikil vægi aukinnar fagmenntunar kennara. Í því sambandi er bent á ákvæði 5. gr. um að kennari geti fengið forgang til að kenna faggrein sína í 8.–10. bekk grunnskóla. Spyrja má, hvers vegna eingöngu í þessum bekkjum? Meiri hlutinn bendir á að í 15. gr. er miðað við að fram haldsskólakennari kenni þær greinar eða á því sviði sem hann er menntaður til. Þetta orðalag takmarkar í raun ekki að landfræðingur sem ekki hefur mikla stærðfræðiþekkingu kenni stærðfræði. Einnig er bent á að í 11. gr. er gert ráð fyrir að í leyfisbréfi framhaldsskólakenn ara skuli tilgreina kennslugrein þeirra eða sérsvið. Af frumvarpinu má skilja að nóg sé að hafa próf í aukagrein, þ.e. 30 einingar, til að kenna grein í framhaldsskóla. Það eru verulega minni kröfur en samkvæmt gildandi lögum þó að þetta svari þörfum smærri skóla fyrir kenn ara sem geta kennt fleiri en eina grein. Því verður alls ekki séð að hér séu gerðar meiri kröfur um þekkingu í faggrein en áður og ekki er farið að tilmælum KHÍ um kandídatsár eða að fjórða árinu sé bætt við BEd-námið í KHÍ. Þá má benda á að ekki eru gerðar sérstakar menntunarkröfur til skólastjóra eða skólameistara umfram kennara í þessu frumvarpi, þótt annað mætti ráða af nafni frumvarpsins.
    Minni hluti menntamálanefndar er sammála því að mikilvægt sé að auka fagþekkingu kennara. En forustuhlutverkið sem góðu fagfólki er oft falið í framhaldsskólunum í þróun kennslu í einstökum námsgreinum krefst þess ekki síður að þessir aðilar hafi trausta undir stöðu í kennslufræði.
    Vandann við að ráða sérhæfða kennara í fámennum tæknigreinum eða öðrum greinum verður að leysa með skýrari ákvæðum í framannefndum greinum frumvarpsins, en ekki með því að skerða færni þeirra sem hafa mestu fagmenntunina til að miðla henni með því að draga úr menntun í kennslufræði.
     Minni hlutinn mun flytja breytingartillögur við 12. og 21. gr. í sérstöku þingskjali og styður þær breytingartillögur meiri hlutans sem eru til bóta.

Alþingi, 8. maí 1998.



Sigríður Jóhannesdóttir,


frsm.

Guðný Guðbjörnsdóttir.



Svanfríður Jónasdóttir.