Ferill 600. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1401 – 600. mál.
Svar
fjármálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur og Svavars Gestssonar um starfs
Í svari forsætisráðherra við fyrirspurn Svavars Gestssonar um starfslokasamninga í þskj. 263 á 118. löggjafarþingi kom fram að sá skilningur er lagður í orðið starfslokasamningar að þar sé um að ræða samninga við ríkisstarfsmenn sem hætta störfum áður en 67 ára aldri er náð og sem fela í sér greiðslur til lengri tíma en hefðbundins þriggja mánaða uppsagnar
1. Hve margir af þeim starfslokasamningum sem nefndir voru í svari forsætisráðherra í þskj. 263 á 118. löggjafarþingi og samningum sem gerðir hafa verið síðan eru í sam
Ekki verður annað séð en að í nokkrum tilvikum sem tilgreind eru í svari forsætisráðherra við fyrirspurn Svavars Gestssonar hafi starfslok verið í samræmi við starfsmannalögin, þ.e. greidd hafi verið biðlaun samkvæmt þeim lögum. Hér er því ekki um að ræða starfsloka
Eins koma fram í svari forsætisráðherra samningar við starfsmenn sem komnir eru að því að láta af störfum vegna aldurs, en við þá hefur verið gert samkomulag um að þeir inni af hendi ákveðna vinnu fyrir stofnunina og fái greiðslu fyrir. Í þessum tilvikum er það ekki ná
Fjármálaráðuneytinu er ekki kunnugt um hvort og/eða hvaða samningar um starfslok hafa verið gerðir hjá einstökum ráðuneytum síðan framangreint svar var gefið þar sem ákvarðana
2. Hafa starfslokasamningar, sem ekki samræmast framangreindum lögum, einhverja lagastoð og þá hverja?
3. Hvaða heimildir hafa einstök ráðuneyti til að gera einstaklingsbundna starfslokasamninga umfram biðlaunarétt í starfsmannalögum?
Engar almennar lagareglur eru til um starfslokasamninga heldur verður að horfa til þess hvaða heimildir til ákvarðana um starfskjör starfsmanna, þar á meðal hvernig staðið er að starfslokum, almennt er talið að felist í stjórnunarrétti hvers yfirmanns.
4. Eru starfslokasamningar gerðir í samráði við fjármálaráðuneytið, hver ber ábyrgð á því að þeir samrýmist lögum og hefur fjármálaráðuneytið gert athugasemdir við starfslokasamninga sem einstök ráðuneyti hafa gert?
5. Telur ráðherra að gætt hafi verið jafnræðissjónarmiða í starfslokasamningum á þessu tímabili?
6. Er ráðherra reiðubúinn að beita sér fyrir því með tilliti til jafnræðisreglunnar að þeir sem sannanlega hefur verið mismunað í starfslokakjörum fái leiðréttingu sinna mála?
Starfslokasamningar hafa ekki verið gerðir í samráði við fjármálaráðuneytið. Undanfarið hefur verið unnið að valddreifingu samfara aukinni ábyrgð stjórnenda. Vald til ákvarðana sem varða starfsmenn hefur verið fært frá ráðuneytum, þar á meðal fjármálaráðuneytinu, til stjórnenda einstakra stofnana. Stofnanir fara sjálfar með starfsmannamál sín. Fjármálaráðu
7. Telur ráðherra að rétt sé að allir starfslokasamningar séu gerðir af fjármálaráðuneytinu og á ábyrgð þess og mun hann beita sér fyrir því að settar verði samræmdar reglur um slíka samninga?
Fjármálaráðherra er reiðubúinn til þess að beita sér fyrir því að settar verði leiðbeinandi reglur um hvernig eigi að standa að gerð samninga um starfslok áður en aldurshámarki er náð.