Ferill 639. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1447 – 639. mál.
Frumvarp til laga
um breytingar á lögum nr. 38 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, og lögum nr. 92 24. maí 1994, um Þróunarsjóð sjávarútvegsins, með síðari breytingum.
(Eftir 2. umr., 28. maí.)
I. KAFLI
Breyting á lögum nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða.
1. gr.
a. Á eftir 3. málsl. 2. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Óheimilt er að flytja veiðileyfi frá báti sem stundar veiðar með þorskaflahámarki til báts sem stundar veiðar með tilteknum fjölda sóknardaga.
b. Á eftir 1. málsl. 5. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Óheimilt er að flytja veiðileyfi frá báti sem stundar veiðar með þorskaflahámarki til báts sem stundar veiðar með tilteknum fjölda sóknardaga.
2. gr.
a. Í stað orðanna „sem leyfi hefur fengið til veiða með tilteknum fjölda sóknardaga“ í 6. málsl. 5. mgr. kemur: sem stundað hefur veiðar með tilteknum fjölda sóknardaga síðastliðin tvö fiskveiðiár.
b. Í stað orðsins „Veiðiferð“ í 3. málsl. 6. mgr. kemur: Sóknardegi.
II. KAFLI
Breyting á lögum nr. 92/1994, um Þróunarsjóð sjávarútvegsins.
3. gr.
III. KAFLI
Gildistaka.
4. gr.