Ferill 721. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1457 – 721. mál.



Tillaga til þingsályktunar



um mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar Fljótsdalsvirkjunar.

Flm.: Hjörleifur Guttormsson.


    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta fara fram mat samkvæmt lögum nr. 63/1993 á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar Fljótsdalsvirkjunar, þrátt fyrir að virkjunarleyfi hafi verið veitt.

Greinargerð.


Heimildarlög og virkjunarleyfi.
    Með lögum nr. 60/1981 var ríkisstjórninni heimilað að semja við Landsvirkjun m.a. um að reisa og reka virkjun Jökulsár í Fljótsdal (Fljótsdalsvirkjun). Með þingsályktun um virkj unarframkvæmdir og orkunýtingu 6. maí 1982 ályktaði Alþingi um virkjanaröð þannig að Blönduvirkjun skyldi verða næsta stórvirkjun landsins en á eftir henni yrði ráðist í byggingu Fljótsdalsvirkjunar. Með breytingu á lögum um raforkuver með lögum nr. 74/1990 var ályktun um röðun virkjana frá 1982 felld úr gildi og skyldi röð við virkjanir og aðrar stór framkvæmdir í raforkumálum ráðast af væntanlegri nýtingu orkunnar. Þó var í ákvæði til bráðabirgða gert ráð fyrir að ráðist yrði í Fljótsdalsvirkjun sem næstu virkjun, ef samningar næðust um byggingu álbræðslu á Keilisnesi á grundvelli yfirlýsingar frá 13. mars 1990.
    Hinn 24. apríl 1991 veitti iðnaðarráðherra Landsvirkjun virkjunarleyfi fyrir Fljótsdals virkjun, 210 MW að stærð ásamt aðalorkuveitum. Í bréfinu segir að með vísan til vatnalaga muni ráðuneytið birta auglýsingu í Lögbirtingablaðinu varðandi hina ráðgerðu virkjun „þar sem þeim er hagsmuna eiga að gæta, er gefinn kostur á að koma fram með athugasemdir við virkjunaráformin. Er leyfi þetta bundið því skilyrði, að Landsvirkjun ábyrgist úrlausn þeirra vandamála, sem upp kunna að rísa vegna slíkra athugasemda, að höfðu samráði við ráðuneytið.“ Í umræddri auglýsingu var vísað til framlagðra gagna um virkjunina. Allmargar athugasemdir bárust í kjölfar auglýsingarinnar, bæði varðandi tilhögun og umhverfisáhrif virkjunarinnar.

Lög um mat á umhverfisáhrifum.
    Árið 1993 voru sett lög um mat á umhverfisáhrifum, nr. 63/1993. Markmið laganna er skv. 1. gr. „að tryggja að áður en tekin er ákvörðun um framkvæmdir sem kunna, vegna staðsetningar, starfsemi sem þeim fylgir, eðlis eða umfangs, að hafa í för með sér umtalsverð áhrif á umhverfi, náttúruauðlindir og samfélag hafi farið fram mat á umhverfisáhrifum, svo og að tryggja að slíkt mat verði fastur liður í gerð skipulagsáætlana“. Í 5. gr. laganna eru taldar upp framkvæmdir sem háðar eru umhverfismati og eru þar efst á blaði „vatnsorkuvirkjanir með uppsett afl 10 MW eða meira eða vatnsmiðlanir þar sem meira en 3 km² lands fara undir vatn vegna stíflumannvirkjanna og/eða breytinga á árfarvegi“. Þess má geta að lagning nýrra vega og þjónustumiðstöðvar fyrir ferðamenn utan byggða eru matsskyldar. Í bráðabirgðaákvæði II við lögin segir: „Þrátt fyrir ákvæði 17. gr. laga þessara eru framkvæmdir samkvæmt leyfum útgefnum fyrir 1. maí 1994 ekki háðar mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum þessum.“ — Vegna þessa ákvæðis og virkjunarleyfis sem út var gefið 1991 virðist að óbreyttu ekki lagaskylda að láta fara fram mat á umhverfisáhrifum Fljótsdalsvirkjunar, nema til komi breytingar á virkjunartilhögun.

Verndargildi Eyjabakkasvæðisins.
    Fegurð og verndargildi Eyjabakkasvæðisins sem færi undir miðlunarlón Fljótsdalsvirkj unar samkvæmt fyrirliggjandi virkjunaráætlun eru almennt viðurkennd. Eyjabakkasvæðið hefur lengi verið á náttúruminjaskrá og þegar Náttúruverndarráð ályktaði um virkjun Jökulsár í Fljótsdal 26. mars 1981 var það með miklum trega að ráðið vildi „fyrir sitt leyti ekki leggjast gegn Fljótsdalsvirkjun, telji orkuyfirvöld hana nauðsynlega. Sú afstaða mótast m.a. af því að samkomulag hefur tekist um varanlega verndun Þjórsárvera, sem frá sjónarmiði náttúruverndar og samkvæmt niðurstöðum rannsókna á báðum þessum svæðum eru talin enn mikilvægari hálendisvin.“ Í ítarlegri greinargerð Náttúruverndarráðs um málið segir m.a.:
    „Eyjabakkar eru gróskumikið flæðiland í fögru umhverfi. Á hálendinu eru fá gróðurlendi á borð við þá. Fyrst og fremst eru það Þjórsárver við Hofsjökul, Hvítárnes og örfáir staðir á Möðrudalsöræfum. Allir þessir staðir eru hentugir fyrir miðlunarlón vegna virkjana, en jafnframt er náttúruverndargildi þeirra mikið. Náttúruverndarráð telur ekki annað koma til greina en þyrma einhverjum þessara svæða, og því þarf að líta á þau í samhengi þegar áformað er að taka eitthvert þeirra undir miðlunarlón.“ Umsögn Náttúruverndarráðs endurspeglar á heildina litið fremur veika stöðu þess og náttúruverndar í landinu á þessum tíma.
    Mikil breyting hefur orðið á viðhorfum til verndunar hálendissvæða síðustu tvo áratugi og tengist það aukinni kynningu, ferðalögum almennings og gildi lítt snortinnar náttúru fyrir ferðaþjónustu. Jafnframt hafa framhaldsrannsóknir á náttúrufari Eyjabakkasvæðisins gert mönnum ljósari en áður þýðingu þess, meðal annars fyrir heiðagæsarstofninn. Margir forkunnarfagrir fossar í Jökulsá í Fljótsdal hafa einnig vakið menn til umhugsunar um það sem tapast með virkjun árinnar. Að frumkvæði Náttúruverndarsamtaka Austurlands, NAUST, var á níunda áratugnum mótuð tillaga um friðlýsingu Snæfells og Vesturöræfa. Sú tillaga hefur hins vegar enn ekki náð fram að ganga þrátt fyrir atbeina Náttúruverndarráðs og nú Náttúruverndar ríkisins. Virðist einkum fyrirstaða hjá virkjunaraðilum við framgang þessarar sjálfsögðu verndaraðgerðar þótt hún snerti ekki með beinum hætti virkjun Jökulsár í Fljótsdal.

Þörf á víðtæku mati.
    Þrátt fyrir margháttaða viðleitni Náttúruverndarráðs og áhugamanna um náttúruvernd til að fá fram heildstætt mat á verndargildi hálendisins og einstakra þátta í náttúrufari þess hefur takmarkaður árangur náðst til þessa. Fjárveitingar til slíkrar vinnu hafa verið litlar sem engar á sama tíma og miklu fé er varið til rannsókna á hagnýtingu vatnsaflsins og undirbúnings einstakra virkjana.
    Hinn 24. apríl 1989 samþykkti Alþingi þingsályktun um verndun vatnsfalla og jarðhita svæða, svohljóðandi:
    „Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta undirbúa á vegum Náttúruverndarráðs í samráði við yfirvöld orkumála áætlun um verndun vatnsfalla og jarðhitasvæða, fossa og hvera. Drög að slíkri áætlun verði lögð fyrir Alþingi til kynningar fyrir árslok 1990 og áætl unin fullbúin til staðfestingar síðar.“
    Þessu verki hefur enn ekki verið lokið þrátt fyrir nokkra viðleitni til að þoka því áfram, aðallega í samstarfi iðnaðarráðuneytis og Náttúruverndarráðs í svonefndri SINO-nefnd, sem sett var á fót þegar árið 1972. Þetta verkefni er enn sem fyrr brýnt.

Svæðisskipulag — ástæða til endurskoðunar.
    Í tillögu að svæðisskipulagi miðhálendisins til 2015, sem unnin var á vegum samvinnu nefndar héraðsnefnda sveitarfélaga á árunum 1994–97 og skilað í maí 1997, segir um Fljótsdalsvirkjun á vatnasviði Jökulsár í Fljótsdal: „Hugsanlega tengd Kárahnjúkavirkjun, stærð allt að 1.200 GWh/ári. Fyrirvari um lónastærðir á Eyjabakkasvæðinu. Gildi Eyjabakkasvæðisins vegna sérstæðs gróðurfars, dýralífs, landslags o.fl. er svo mikið að ástæða er til að endurskoða tilhögun virkjunar samkvæmt gildandi lögum. Svæðið hefur einnig mikið gildi fyrir ferðaþjónustuna. Gert er ráð fyrir að skoðaðir verði til hlítar möguleikar á að virkja saman Jökulsá á Brú (Kárahnjúkavirkjun) og Jökulsá í Fljótsdal með þeim hætti að Kárahnjúkalón geti nýst sem miðlun fyir bæði vatnasviðin. Heimiluð með lögum 1981 og leyfi ráðherra var veitt fyrir 1. 5. 1994. Virkjunin er því aðeins matsskyld ef um breytingar er að ræða frá upphaflegum áætlunum.“

Krafa margra um mat á umhverfisáhrifum.
    Náttúruverndarsamtök Austurlands, NAUST, hafa ítrekað talað fyrir verndun Eyjabakka svæðisins. Vorið 1997 var Félag um verndun hálendis Austurlands stofnað og hefur það meðal annars beitt sér fyrir því að áform um virkjun Jökulsár í Fljótsdal fari í formlegt um hverfismat samkvæmt lögum nr. 63/1993. Vaxandi undirtektir hafa verið við slíka máls meðferð heima fyrir á Austurlandi og annars staðar á landinu. Hafa fjölmargir orðið til að lýsa fylgi við þá málsmeðferð. Sú staðreynd að uppi eru áform um víðtæka nýtingu vatnsafls norðan Vatnajökuls, allt frá Hraunum í austri til Jökulsár á Fjöllum, ætti að hvetja til að litið sé heildstætt á þetta svæði og óeðlilegt að undanskilja Fljótsdalsvirkjun eina mati á umhverfisáhrifum. Seytján ár eru liðin frá því að heimildarlög voru sett um virkjunina og sjö ár frá því að stjórnvöld veittu virkjunarleyfi. Með því að samþykkja áskorun til ríkisstjórnarinnar um að mat fari fram á umhverfisáhrifum virkjunarinnar, eins og lögbundið er um hliðstæð mannvirki, legði Alþingi sitt af mörkum til að sem skýrust mynd lægi fyrir og almannaviðhorf kæmi fram um málið eins og eðlilegt verður að teljast.