Ferill 714. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1458 – 714. mál.



Svar



félagsmálaráðherra við fyrirspurn Ástu B. Þorsteinsdóttur um launagreiðslur á vernduðum vinnustöðum.

    Leitað var til svæðisskrifstofa málefna fatlaðra, Akureyrarkaupstaðar og Vestmannaeyja bæjar um svör við fyrirspurninni.

     1.      Hvaða tímalaun/mánaðarlaun eru greidd á eftirfarandi vinnustöðum: vinnustað Öryrkjabandalags Íslands, vinnustofu Blindrafélagsins, vernduðum vinnustað Örva, Reykjanesi, vernduðum vinnustað á Akranesi, vernduðum vinnustað á Egilsstöðum, vernduðum vinnustað á Selfossi, vinnustofunni Ási, Reykjavík, vinnustofunni Bjargi, Akureyri, vinnustofunni Heimaey, Vestmannaeyjum, vinnustofunni Iðjulundi, Akur eyri, vinnustofunni Múlalundi, Reykjavík og vinnustofunni Hólabergi, Reykjavík?
    Á vinnustað Öryrkjabandalags Íslands, vernduðum vinnustað Örva í Kópavogi, vernduð um vinnustað á Akranesi, vernduðum vinnustað á Egilsstöðum, vernduðum vinnustað á Sel fossi, vinnustofunni Ási í Reykjavík og vinnustofunni Heimaey í Vestmannaeyjum eru greidd tímalaun á bilinu 115–428,90 kr.
    Á vinnustofunni Bjargi á Akureyri eru greidd 7.000 kr. mánaðarlaun fyrir hálfan daginn. Á vinnustofunni Hólabergi, vinnustofu Blindrafélagsins, vinnustofunni Múlalundi í Reykja vík og vinnustofunni Iðjulundi á Akureyri eru greidd 2.500–97.053 kr. mánaðarlaun.

     2.      Eru greidd lögboðin gjöld vinnuveitenda vegna starfsmanna á vernduðum vinnustöðum, svo sem greiðslur í lífeyrissjóði, tryggingagjöld og veikindadagar?
    Vinnustofa Blindrafélagsins, vinnustofan Múlalundur og verndaður vinnustaður á Akra nesi greiða í lífeyrissjóð, tryggingagjöld, veikindadaga og orlof.
    Vinnustofan Heimaey greiðir tryggingagjald, orlof og í lífeyrissjóð.
    Vinnustofan Ás greiðir tryggingagjald, veikindadaga og orlof.
    Verndaður vinnustaður á Selfossi greiðir veikindadaga og orlof.
    Vinnustaður Öryrkjabandalags Íslands greiðir tryggingagjald, veikindadaga og orlof.
    Vinnustofan Hólaberg í Reykjavík og verndaður vinnustaður á Egilsstöðum greiða trygg ingagjöld.
    Verndaði vinnustaðurinn Örvi í Kópavogi greiðir orlof og tryggingagjald.