Ferill 614. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


122. löggjafarþing 1997–1998.
Nr. 14/122.

Þingskjal 1469  —  614. mál.


Þingsályktun

um staðfestingu samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 1998.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 1998 sem gengið var frá með orðsendingaskiptum í Reykjavík og Þórshöfn 9. og 15. janúar 1998.

Samþykkt á Alþingi 2. júní 1998.