Ferill 510. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1477– 510. mál.



Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 142/1996, um póstþjónustu.

(Eftir 2. umr., 2. júní.)



1. gr.

    1. mgr. 6. gr. laganna orðast svo:
    Íslenska ríkið hefur einkarétt á póstmeðferð eftirfarandi póstsendinga:
     1.      Bréfa í umslögum eða sambærilegum umbúðum með sýnilegri áritun, allt að 250 g að þyngd án tillits til innihalds. Einkarétturinn fellur þó niður sé burðargjald slíkra send inga meira en fimmfalt burðargjald fyrir bréf sem falla undir lægsta gjaldflokk sam kvæmt gjaldskrá.
     2.      Annarra ritaðra orðsendinga eða prentaðra tilkynninga með utanáskrift og sérstöku innihaldi sem eru innan þeirra marka um þyngd og burðargjald er greinir í 1. tölul., þar með talinna póstkorta.

2. gr.

    Á eftir 1. mgr. 12. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
    Póst- og fjarskiptastofnun getur heimilað íþróttafélögum, skátafélögum, hjálparsveitum eða öðrum sambærilegum aðilum, öðrum en einkaréttarhafa, póstmeðferð á póstsendingum skv. 1. mgr. 6. gr., enda sé slík starfsemi ekki í atvinnuskyni. Samgönguráðherra setur nánari reglur um framkvæmd þessa ákvæðis.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.