Ferill 723. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1489 – 723. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um skipun rannsóknarnefndar samkvæmt 39. gr. stjórnarskrárinnar til að fjalla um málefni Landsbanka Íslands hf. og samskipti framkvæmdarvalds og Alþingis.
Flm.: Sighvatur Björgvinsson, Margrét Frímannsdóttir, Guðný Guðbjörnsdóttir,
Rannveig Guðmundsdóttir, Svavar Gestsson, Kristín Ástgeirsdóttir.
Alþingi ályktar að kosin skuli nefnd fimm alþingismanna, sbr. ákvæði 39. gr. stjórnar
1. Mál þau er leiddu til afsagnar þriggja bankastjóra Landsbankans í apríl sl.
2. Málefni Lindar hf., einkanlega orsakir þess að ekki var orðið við ábendingum Ríkisendurskoðunar um opinbera rannsókn á málefnum sem vörðuðu fyrirtækið.
3. Samskipti viðskiptaráðherra við Alþingi þar sem ráðherrann ýmist flutti þinginu rangar upplýsingar eða leyndi það upplýsingum.
Alþingi ályktar enn fremur að nefndin hafi rétt, í samræmi við 39. gr. stjórnarskrárinnar, til að heimta skýrslur, munnlegar og bréflegar, bæði af embættismönnum og einstökum mönnum.
Nefndin skal skila Alþingi skýrslu um málið, endanlegri eða áfangaskýrslu, fyrir 1. októ
Kostnaður við störf nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði.
Greinargerð.
Hér er flutt tillaga til þingsályktunar um skipun sérstakrar nefndar alþingismanna til þess að fjalla bæði um málefni Landsbanka Íslands hf. og samskipti Alþingis og framkvæmdar
Umræðan um starfsemi Landsbanka Íslands að undanförnu er nú komin á svo alvarlegt stig að ekki er unnt að jafna því við neitt sem gerst hefur á síðustu árum. Erfitt er fyrir Al
Eitt af því sem nefndin þarf að kanna er að sjálfsögðu fjárhagsleg tengsl, svo og hvort pólitísk tengsl hafi ráðið efnistökum. Nefndin þarf einnig að meta hvað er unnt að gera til að koma í veg fyrir að vegna pólitískra hagsmuna verði slegin skjaldborg um slæman rekstur og ónákvæmni sem leiðir síðan til taps upp á hundruð milljóna króna. Sérstaklega virðist nauðsynlegt að fara yfir málefni eignarleigufyrirtækisins Lindar í þessu sambandi, ekki síst framgöngu bankaeftirlitsins í því máli. Þá þarf nefndin að kanna og gera grein fyrir því hverjir fengu það fé sem tapaðist.
Nauðsynlegt er að hraða störfum nefndarinnar eftir því sem kostur er. Því er gerð tillaga um að nefndin skili skýrslu til Alþingis fyrir 1. október nk. með það að markmiði að Alþingi fjalli um málið þegar í þingbyrjun. Ef nefndin hefur ekki lokið umfjöllun sinni fyrir þann tíma skilar hún áfangaskýrslu til þingsins fyrir sama tíma.
Með þessari tillögu er ekki tekin afstaða til þess hvort eða hvenær flutt verður tillaga um vantraust á ráðherra eða ríkisstjórn.