Ferill 548. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1508 – 548. mál.



Svar



viðskiptaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um kaup Landsbankans á veiðileyf um í Hrútafjarðará.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hve mörg laxveiðileyfi keypti Landsbankinn og einstakir sjóðir, fyrirtæki, stofnanir og dóttur- og hlutdeildarfyrirtæki hans árlega af leigutaka Hrútafjarðarár sl. 15 ár, sundurliðað eftir fjölda veiðiferða, fjölda stanga í hverri veiðiferð og fjölda stangar daga?
     2.      Hvað kostuðu þessi laxveiðileyfi í Hrútafjarðará, sundurliðað eftir árum, og hvað er innifalið í laxveiðileyfinu?
     3.      Hver var annar kostnaður bankans og einstakra sjóða, fyrirtækja, stofnana og dóttur- og hlutdeildarfyrirtækja hans árlega við þessar ferðir, sundurliðað eftir ferðakostnaði, gistingu og öðrum uppihaldskostnaði og hvernig sundurgreindist sá kostnaður?
     4.      Hve margir stangardagar, sundurliðað eftir innlendum gestum, erlendum gestum og starfsmönnum bankans og einstakra sjóða, fyrirtækja, stofnana og dóttur- og hlut deildarfyrirtækja hans, skiptust milli þessara aðila?
     5.      Hvaða stöðu gegndu þeir sem voru gestir í þessum ferðum hvert ár um sig? Sérstaklega er spurt um hvort þátttakendur hafi verið:
       a.      fyrrverandi bankastjórar og fyrrverandi og núverandi bankaráðsmenn og á hvaða árum og af hvaða tilefni,
       b.      fyrrverandi og núverandi ráðherrar og á hvaða árum og af hvaða tilefni,
       c.      forstöðumenn ríkisstofnana og þá í hvaða atvinnugrein, á hvaða árum og af hvaða tilefni,
       d.      forstöðumenn einkafyrirtækja og þá í hvaða atvinnugrein, á hvaða árum og af hvaða tilefni.
     6.      Getur ráðherra nefnt dæmi um að laxveiðiboð íslenskra banka til fulltrúa erlendra fjármálastofnana hafi leitt til lækkunar á vaxtakjörum landsmanna eða betri vaxta kjara í samningum við erlenda aðila?


    Í framhaldi af því að fyrirspurn þessari var beint til viðskiptaráðherra, í byrjun marsmán aðar, óskaði viðskiptaráðherra eftir viðræðum við forseta Alþingis um tilhögun svara við henni. Fram var komið að ríkisendurskoðandi væri með laxveiðikostnað Landsbankans til skoðunar og varð það að samkomulagi milli forseta Alþingis, fyrirspyrjanda og viðskiptaráð herra að ráðherra óskaði eftir því við ríkisendurskoðanda að hann ynni greinargerð sem byggði á spurningum þeim sem fram koma í fyrirspurninni. Var þess óskað að greinargerðin bærist Alþingi fyrir 10. apríl ef þess væri nokkur kostur. Við eftirgrennslan í lok aprílmánað ar kom í ljós að vegna anna væri ekki von á greinargerð ríkisendurskoðanda fyrir þinglok. Í framhaldi af því hafði viðskiptaráðherra samráð við forseta Alþingis og fyrirspyrjanda og á grundvelli þess var ákveðið að í stað þess að ríkisendurskoðandi ynni sérstaka greinargerð um málið mundi viðskiptaráðherra óska eftir því við Landsbanka Íslands hf. að veittar yrðu þær upplýsingar sem hann hefði undir höndum um málið vegna áranna 1991–97.
    Viðskiptaráðuneytinu hefur nú borist svar Landsbanka Íslands við málaleitan ráðuneytis ins. Eins og fram kemur í svari bankans er ekki að finna í gögnum hans upplýsingar sem svara á fullnægjandi hátt þeim spurningum sem fram koma í fyrirspurninni. Því hefur við skiptaráðuneytið á ný óskað eftir því við Ríkisendurskoðun að hún taki málið til athugunar með hliðsjón af þeim upplýsingum sem ráðuneytið aflaði og fyrirspurninni að öðru leyti.
    Svar bankans við fyrirspurninni er svohljóðandi:
    „Í greinargerð ríkisendurskoðunar samkvæmt þingskjölum 899 og 1151 er að finna upp lýsingar er varða keypt veiðileyfi í Hrútafjarðará á árunum 1994–97 og kostnað bankans við veiðiferðir.
    Á árunum 1991–97 keypti Landsbankinn og dótturfélög hans laxveiðileyfi af leigutaka Hrútafjarðarár sem hér segir:
Ár Kr.
1991
1.053.900
1992
1.280.200
1993
1.323.200
1994
1.242.250
1995
1.194.000
1996
1.194.000
1997
1.457.000
Samtals
8.744.550
    Annar kostnaður bankans og dótturfélaga hans við veiðiferðir var ekki sérgreindur í bók haldi bankans. Samkvæmt úttekt Ríkisendurskoðunar virðist annar kostnaður við veiðiferðir vera um 50% af kostnaði við veiðileyfi.
    Bankinn er ekki í aðstöðu til að veita upplýsingar úr reikningum fyrirtækja sem ekki eru í meirihlutaeigu hans.
    Á kvittunum fyrir veiðileyfum kemur ekki fram hvað er innifalið. Almenna reglan við kaup á veiðileyfum í Hrútafjarðará er sú að afnot af veiðihúsi fylgi með en ekki fæði.
    Í skjalasafni bankans eru ekki gögn um fjölda laxveiðileyfa, veiðiferða eða stangardaga. Þar eru ekki heldur upplýsingar um þá sem fóru í þessar veiðiferðir, hvorki gesti né starfs menn bankans.“
    Í framhaldi af þessu svari hefur Landsbanki Íslands upplýst að hann hafi leitað til fyrir tækja sem ekki eru í meirihlutaeigu bankans og óskað eftir svörum við þeim spurningum sem fram koma í fyrirspurninni. Samkvæmt upplýsingum sem bankinn fékk höfðu engin hlut deildarfyrirtækja bankans keypt veiðileyfi í Hrútafjarðará að undanskildu fyrirtækinu Lýs ingu hf. Lýsing hf. hefur nú veitt upplýsingar um kostnað af veiðiferðum og hefur Lands bankinn komið þeim á framfæri við ráðuneytið. Samkvæmt upplýsingunum voru keypt lax veiðileyfi í Hrútafjarðará á árunum 1993–97 og var kostnaður við þau 494.550 kr. árið 1993, 621.900 kr. árið 1994 og 720.000 kr. fyrir hvert áranna 1995–97. Annar kostnaður við veiðiferðir var 521.755 kr. samtals fyrir öll árin.
    Vegna liðar 6 í fyrirspurninni er rétt að taka fram að Ríkisendurskoðun hefur lagt mat á tilefni veiðiferða Landsbankans í greinargerð sinni til bankaráðsins um kostnað bankans vegna veiðiferða, risnu o.fl., frá apríl sl., en greinargerðinni hefur verið dreift á Alþingi. Að öðru leyti hefur ráðherra ekki undir höndum upplýsingar eða gögn sem gera honum kleift að svara spurningunni.