Ferill 547. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1519 – 547. mál.



Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur.

(Eftir 2. umr., 4. júní.)



1. gr.

    Í stað orðanna „og lífeyrissjóðir, sbr. lög nr. 55/1980“ í niðurlagi 3. mgr. 2. gr. laganna kemur: líftryggingafélög, sbr. 23. gr. laga nr. 60/1994, og lífeyrissjóðir, sbr. lög um skyldu tryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

2. gr.

    5. tölul. 1. mgr. 5. gr. laganna fellur brott.

3. gr.

    Við 6. gr. laganna bætist nýr málsliður er verður 3. málsl. og orðast svo: Ef tilgreint er á kvittun til rétthafa vaxtanna að um sé að ræða upplýsingar sem færa beri á skattframtal og heildarfjárhæð skattskyldra vaxta er undir 10.000 kr. þarf þó ekki að láta yfirlit þetta í té að tekjuári liðnu, nema rétthafi óski sérstaklega eftir því.

4. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi og skulu gilda um afdrátt staðgreiðslu frá og með árinu 1998.