Ferill 581. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1526 – 581. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands, nr. 36/1986, með síðari breytingum.
(Eftir 2. umr., 4. júní.)
1. gr.
a. F-liður orðast svo: að vera banki innlánsstofnana og stuðla að traustum og heilbrigðum viðskiptum á fjármagnsmarkaði.
b. Á eftir f-lið kemur nýr liður, g-liður, svohljóðandi, og breytist röð annarra liða samkvæmt því: að stuðla að greiðri, hagkvæmri og öruggri greiðslumiðlun í landinu og við útlönd.
2. gr.
a. 1. mgr. orðast svo:
Seðlabankinn tekur við innlánum frá innlánsstofnunum en til þeirra teljast viðskipta
b. 2. mgr. orðast svo:
Seðlabankinn má ákveða að taka við innlánum frá öðrum lánastofnunum en bönkum og sparisjóðum og frá fyrirtækjum í verðbréfaþjónustu.
3. gr.
a. 1. mgr. orðast svo:
Seðlabankinn getur veitt þeim aðilum sem fjallað er um í 6. gr. og eiga innlánsviðskipti við bankann lán með kaupum verðbréfa eða á annan hátt gegn tryggingum sem bankinn metur gildar. Lánsviðskipti þessi geta verið í innlendri eða erlendri mynt.
b. 2. mgr. fellur brott.
4. gr.
Seðlabankanum er heimilt með samþykki ráðherra að ákveða að lánastofnanir skuli eiga fé á bundnum reikningi í bankanum sem nemi tilteknu hlutfalli af ráðstöfunarfé eða innlánsfé þeirra. Þá er bankanum heimilt að ákveða að tiltekinn hluti aukningar innlána eða ráðstöf
Seðlabankinn setur nánari reglur um grundvöll og framkvæmd bindingar skv. 1. mgr. að fengnu samþykki ráðherra, þar á meðal til hvaða lánastofnana og verðbréfasjóða hún tekur. Í þeim reglum má ákveða að bindihlutfall sé mismunandi eftir eðli lánastofnana og verð
Seðlabankanum er heimilt að setja reglur um lágmark eða meðaltal lauss fjár lánastofnana sem þeim ber ætíð að hafa yfir að ráða. Í þeim má ákveða að mismunandi ákvæði gildi um einstaka flokka lánastofnana. Með lausu fé er átt við peninga í sjóði, óbundnar nettóinnstæð
Seðlabankanum er heimilt að setja lánastofnunum reglur um gjaldeyrisjöfnuð. Í slíkum jöfnuði skal auk gengisbundinna eigna og skulda telja skuldbindingar og kröfur sem tengdar eru erlendum gjaldmiðlum utan efnahags, svo sem framvirka samninga og valréttarsamninga.
Seðlabankinn getur beitt lánastofnanir og verðbréfasjóði viðurlögum samkvæmt ákvæðum 37. gr. sé ákvörðunum bankans varðandi bindiskyldu, laust fé og gjaldeyrisjöfnuð ekki hlítt.
5. gr.
6. gr.
a. 1. mgr. orðast svo:
Í því skyni að vinna að markmiðum sínum í peningamálum er Seðlabankanum heimilt að kaupa og selja ríkisskuldabréf og önnur trygg verðbréf á skipulegum verðbréfamark
b. 2. mgr. orðast svo:
Seðlabankanum er heimilt að gefa út verðbréf í innlendri eða erlendri mynt til að selja lánastofnunum sem geta átt viðskipti við hann. Óheimilt er að framselja slík verðbréf til annarra en lánastofnana sem geta átt innlánsviðskipti við bankann.
7. gr.
a. (13. gr.)
Seðlabankinn getur milliliðalaust aflað upplýsinga frá innlánsstofnunum, öðrum lána
Á grundvelli ákvæða 1. mgr. getur Seðlabankinn krafist þess að þargreindar stofnanir og félög veiti upplýsingar um efnahag, rekstur og önnur atriði sem bankinn metur nauðsynlegar. Upplýsingarnar skulu veittar á þann hátt sem óskað er. Þess skal gætt sem frekast er kostur að samnýta upplýsingar sem aflað er samkvæmt lögum um opinbert eftirlit með fjármála
b. (14. gr.)
Nú er kröfum Seðlabankans um upplýsingar skv. 13. gr. ekki sinnt og getur bankinn þá gripið til viðurlaga gagnvart hlutaðeigandi aðila, sbr. ákvæði 37. gr.
8. gr.
a. Orðin „evrópsku mynteiningunni (ECU) og“ í 2. málsl. 1. mgr. falla brott.
b. Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein sem orðast svo:
Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. getur Seðlabankinn ákveðið að skrá gengi krónunnar eins og þar segir þótt bankastofnanir séu almennt lokaðar til viðskipta.
9. gr.
Seðlabankinn hefur heimild til að hafa milligöngu um gjaldeyrisviðskipti og versla með erlendan gjaldeyri. Um heimildir annarra aðila til að hafa milligöngu um gjaldeyrisviðskipti og versla með erlendan gjaldeyri fer eftir ákvæðum laga um gjaldeyrismál á hverjum tíma.
10. gr.
11. gr.
Orðin „og 2. mgr. 9. gr.“ í niðurlagi fyrri málsliðar 1. mgr. 31. gr. laganna falla brott.12. gr.
13. gr.
a. 3. mgr. orðast svo:
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er Seðlabankanum heimilt að eiga gagnkvæm upplýsinga
b. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Seðlabanki Íslands skal veita Fjármálaeftirlitinu allar upplýsingar sem bankinn býr yfir og nýtast kunna í starfsemi Fjármálaeftirlitsins. Upplýsingar, sem veittar eru sam
14. gr.
a. Í stað orðanna „26. gr.“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: 22. gr.
b. Í stað orðanna „28. gr.“ í 2. og 3. málsl. 2. mgr. kemur: 24. gr.
15. gr.