Ferill 524. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1553 – 524. mál.


Breytingartillaga



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur, Sighvati Björgvinssyni og Steingrími J. Sigfússyni.



    Við bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Ákvæði B-liðar 69. gr. laganna um vaxtabætur verði endurskoðað fyrir 1. október 1998 með það að markmiði að tryggja að þeir sem fara úr félagslega húsnæðiskerfinu og notið hafa niðurgreiddra vaxta verði ekki verr settir í nýju kerfi með niðurgreiðslu í formi vaxtabóta en þeir voru áður. Nauðsynlegar breytingar á ákvæðinu til að ná framangreindu markmiði skulu taka gildi eigi síðar en 1. janúar 1999.