Svavar Gestsson:
Herra forseti. Varðandi brtt. þá geri ég ráð fyrir því að þær sjái dagsins ljós fljótlega. Það hefur ekki gefist mikill tími til að ganga frá þeim vegna þess að nefndin hefur nýlega lokið störfum þannig að við getum uppfyllt þrá ráðherranna eftir brtt. eftir skamma stund. Ég vænti þess að þær verði samþykktar á dagskrá með afbrigðum á eftir þegar þar að kemur.
Ég lít ekki á gagnrýni stjórnarandstöðunnar, þá sem hér hefur komið fram, öðruvísi en að menn séu að segja sem svo: Það hefði ekki þurft að kalla þingið saman 6. janúar, þ.e. alla 63 þingmennina. Það hefði verið nóg að kalla saman sjútvn. til þess að fara í málið. Þetta sögðum við reyndar fyrir áramót, ekki vegna þess að við vildum tefja málið --- það er ósanngjarnt að setja það þannig upp --- heldur vegna þess að við vildum fyrst og fremst fara betur í málið og vanda okkur við það. En veruleikinn er ekki sá að stjórnarandstaðan vilji tefja málið. Af hverju ætti hún að vilja það? Hvaða tal er þetta eiginlega? Það er alla vega ekki mjög diplómatískt eins og hér var kallað fram í áðan, herra forseti.