[prenta uppsett í dálka] 69. fundur, 123. lþ.
Jón Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Hv. 9. þm. Reykv. segist hafa skýra stefnu. Eigi að síður vil ég spyrja hann tveggja spurninga. Hann sagði að það ætti að setja punkt fyrir aftan allar málmbræðslur og málmframleiðslu vegna orkumála. Það er skoðun út af fyrir sig.
Þá spyr ég: Gildir þetta bara fyrir álframleiðslu á Reyðarfirði eða gildir þetta fyrir öll áform sem eru í gangi? Gildir þetta fyrir magnesíumverksmiðju á Reykjanesi? Gildir þetta fyrir stækkun Grundartanga? Gildir þetta fyrir Norðurál? Á að setja punkt fyrir aftan þetta allt saman?
Ég spyr líka: Eru þetta persónulegar skoðanir hv. þm. eða eru þetta skoðanir samfylkingarinnar nýju? Er þetta stefna hennar? Hver er stefna flokksins sem hann er fer fram fyrir í þessu máli? Er þetta stefnan?