Raforkuver

Fimmtudaginn 18. febrúar 1999, kl. 14:01:24 (3874)

1999-02-18 14:01:24# 123. lþ. 69.3 fundur 471. mál: #A raforkuver# (Vatnsfells-, Búðarháls- og Villinganesvirkjanir) frv., iðnrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 69. fundur, 123. lþ.

[14:01]

Iðnaðarráðherra (Finnur Ingólfsson) (andsvar):

Herra forseti. Málið er lagt fram í fullri sátt við Landsvirkjun.

Annað þykir mér verra. Hv. þm. segist sitja sem áheyrnarfulltrúi í iðnn. Mér sýnist að hv. þm. hafi ekki lesið frv. Ég verð að biðja hv. þm. að lesa frv. Þrátt fyrir að hv. þm. sé ekki í iðnn. þá getur hún engu að síður lesið frv. Villinganesvirkjun er rennslisvirkjun og ekkert lón. Vatnsfellsvirkjun er rennslisvirkjun og ekkert lón, það er skýrt tekið fram. Búðarhálsvirkjun er partur af Hrauneyjafoss- og Sigölduvirkjun. Gert er ráð fyrir því að lón geti orðið á svörtum söndum sem eru sjö ferkílómetrar og þar er lón fyrir. Þetta er bara misskilningur hjá hv. þm. Það er ekki verið að leggja neinar náttúruperlur undir. Þetta eru umhverfisvænustu virkjanir sem í dag er hægt að byggja á Íslandi.