Ögmundur Jónasson:
Hæstv. forseti. Þingflokkur óháðra ræddi á sérstökum þingflokksfundi í morgun þá ákvörðun hv. þm. Kristínar Halldórsdóttur að ganga til liðs við þingflokk óháðra. Þingflokkurinn fagnar ákvörðun Kristínar Halldórsdóttur og samþykkti aðild hennar að þingflokknum samhljóða.
Þetta vildi ég tilkynna hæstv. forseta og þingheimi.