Stjórnarskipunarlög

Fimmtudaginn 25. mars 1999, kl. 10:50:47 (0)

1999-03-25 10:50:47# 123. lþ. 91.2 fundur 254. mál: #A stjórnarskipunarlög# frv. +, ÖJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 91. fundur, 123. lþ.

[10:50]

Ögmundur Jónasson:

Hæstv. forseti. Ég tel að þar sem ákveðið hefur verið að ráðast í breytingar á kosningafyrirkomulaginu, fyrirkomulagi sem hefur ýmsa ótvíræða kosti, hefði þurft að gera miklu róttækari breytingar en hér er verið að leggja til. Landið ætti að gera að einu kjördæmi samhliða því að pólitískt og efnahagslegt vald yrði fært til einstakra landshluta með fylkjafyrirkomulagi.

Hér er hins vegar að fæðast óskapnaður sem ég mótmæli með því að greiða atkvæði gegn stjórnarskrárbreytingunni.