[prenta uppsett í dálka] 3. fundur, 123. lþ.
Árni Johnsen (andsvar):
Virðulegi forseti. Þegar forustumaður stærsta sveitarfélags landsins sendir bréf til fjárln. sem er að bera saman bækur um alla þætti þjóðfélagsins á sviði fjármála og segir: Ég hef ekkert við ykkur að tala. Þið ráðið hvort þið talið við mig, hinn stóra og háa, þá er það óeðlilegt og ástæða til að hafa áhyggjur af því.
Margt gott hefur komið út úr þessum samskiptum sveitarfélaganna við fjárln. og það hefur margsannast að á mikinn rétt á sér og er kannski eina beina tenging þingsins við þorra talsmanna og forustumenn talsmanna sveitarfélaganna í landinu og forustumenn á ýmsum sviðum. Ég held að það sé a.m.k. alveg ljóst að út úr þeim samtölum hefur komið markvissari niðurstaða og meiri árangur en í 70 ára spjalli svokallaðra vinstri manna um sameiningu.